Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLl 1983 31 gjöld til tslands var verðmunur hins vegar í mörgum tilvikum minni en ætla hefði mátt á þeim vörum sem fluttar eru inn. Meðal helstu atriða sem úr könn- uninni má lesa eru eftirtalin: 1. Ósekkjað sement sem framleitt er í hvoru landi fyrir sig og selt steypustöðvum er allt að 60% dýrara í Reykjavík en t.d. í Stokkhólmi. Hins vegar er lítill verðmunur á sekkjuðu sementi og er það að jafnaði heldur dýr- ara í Svíþjóð. Ef miðað er við verðlag á sementi nú væri jafn- vel ódýrara fyrir steypustöðvar í Reykjavík að flytja það inn frá Suður-Svíþjóð en að kaupa það frá Sementsverksmiðju ríkisins. Söluverð ísl. verksmiðjunnar er það sama fyrir sekkjað og ósekkjað sement þrátt fyrir mikinn kostnaðarmismun vegna pökkunar (reyndar er steypu- stöðvum selt með 4—9% af- slætti). 2. Ef flutningskostnaður er dreg- inn frá timburverði væri það í sumum tilvikum lægra í Reykja- vík en í Svíþjóð. 3. Mikill kostnaður leggst á inn- kaupsverð glerullar (flutnings- kostnaður og vörugjald), hrein- lætistækja (138% tollur og vör- ugj.), veggflísa (67% tollur og vörugj.) og fleiri vörutegunda. Þrátt fyrir það eru sumar þessar vörur ódýrari til kaupenda í Reykjavík en í Svíþjóð. Bendir það til hagstæðra innkaupa inn- flytjenda á markaði þar sem samkeppni er mikil. 4. Einangrunargler er mun ódýr- ara í Reykjavík en í Svíþjóð þrátt fyrir sömu gæði skv. upp- lýsingum frá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Sam- keppnin er mikil á glermarkaði hérlendis og hvetur vafalaust til hagstæðra innkaupa og hag- kvæmni í rekstri. Jafnhliða verðkönnuninni voru laun starfsmanna í byggingarvöru- framleiðslu og starfsmanna í bygg- ingarvöruverslunum á íslandi bor- in saman við laun sömu starfs- stétta í Svíþjóð. Nokkurrar óvissu gætir um launin á Islandi, einkum er varðar skatta en reynt var að bera saman ráðstöfunartekjur. Má þó með nokkurri nákvæmni segja að tekjur fyrrnefndra stétta að frá- dregnum þeinum sköttum séu um 30% hærri í Svíþjóð en á tslandi. Gefur það vísbendingu ásamt verðupplýsingum um hvað það kostar þessa launþega á íslandi að kaupa byggingarvörur í hlutfalli við laun með hliðsjón af sömu starfsstéttum í Svíþjóð. Ljósmjnd Mbl. Guðjón. Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, og Áke Hallmann, verðlagsstjóri Svíþjóðar til vinstri. Niðurstöðurn- ar komu mér verulega á óvart — segir Áge Hallmann, verðlagsstjóri Svíþjóðar „NIÐURSTÖÐUR verðkönnunarinnar komu mér töluvert á óvart. Ég átti óneitanlega von á mun meiri verðmun, en þarna kemur fram,“ sagði Áke Hallman, verðlagsstjóri Svíþjóðar, í samtali við Mbl. Georg Ólafsson, verðlagsstjóri tók í sama streng og sagði verðmuninn vera mun minni en hann hefði átt von á. Það sem hins vegar ylli sér ákveðnum áhyggjum, væri hinn gríðarlega mikli verðmunur á sementi, ísíending- um í óhag. Það kom fram hjá sænska verð- lagsstjóranum, að verðlag er frjálst á sem næst öllum vöruteg- undunum sem um ræðir. Hins veg- ar væri um ákveðna verðgæzlu að ræða, sem reynzt hefði vel. Georg Ólafsson sagði þessa könnun stað- festa þá skoðun sína, að frjálst verðlag ætti við í ákveðnum til- fellum, síðan þyrfti að hafa ákveð- na verðgæzlu í öðrum tilvikum. Hann nefndi sem dæmi, að verð á gleri sem er mun lægra hér á landi heldur en í Svíþjóð. Þar virkaði mikil samkeppni greinilega vel, auk þess sem launakostnaður er lægri hér á landi. Georg Ólafsson sagði könnunina ótvírætt gefa til kynna, að í mörg- um tilvikum gerðu íslenzkir inn- flytjendur mjög hagkvæm inn- kaup og væri það ánægjulegt. Áke Hallmann tók undir það og sagði eina skýringuna á hagstæðu inn- kaupsverði íslenzkra fyrirtækja eflaust vera þá, að framleiðendur litu íslendinga sérstökum augum, smæðarinnar vegna. Þeir sæju einfaldlega fram á, að lækkuðu þeir verðið ekki nægilega mikið yrði ekkert af sölu. Georg ólafsson vakti sérstaka athygli á litlum verðmun á hrein- lætistækjum, sem framleidd væru að hluta í Svíþjóð. Verðmunurinn væri ekki nema á bilinu 4—27%, en á CIF-verð hreinlætistækja legðust 138% í tollum og vöru- gjaldi hér á landi. Verðið væri því í raun mun lægra hér á landi. Sömu sögu væri reyndar að segja af veggflísum og gólfefni. Aöalfundur sýslunefnd- ar Norður-Múlasýslu SÝSLUNEFND Norður-Múlasýslu hélt aðalfund sinn á Seyðisfirði dagana 10.—12. júní sl. og voru lögð fram og afgreidd 97 mál á fundinum. Á fundinum var fjárhagsáætlun sýslusjóðs 1983 samþykkt en heild- artekjur eru um kr. 711.577.000. Þá var ítrekuð fyrri samþykkt um Fljótsdalsvirkjun og skorað á Hafnar- málastofnun að hraða hafnarfram- kvæmdum á Bakkafirði, Vopnafirði og Borgarfirði. Einnig var skorað á Al- þingi að samþykkja frumvarp um kís- ilmálmverksmiðju á Reyðarfirði og vegaframkvæmdir yfir Hellisheiði. Sýslufundurinn samþykkti að koma á fót sýsluráði sem starfaði milli aðal- funda og yrðu í því tveir úr hópi sýslu- nefndarmanna sem væru kosnir, ásamt sýslumanni sem yrði sjálfkjör- inn. Þá var ákveðið að fela sýsluráði að leita úrbóta á ranglátum og úrelt- um úthlutunarreglum sýsluvegafjár í landinu. Áð lokum var gerð sérstök sam- þykkt vegna tillagna um bre.vtt verk- svið sýslunefnda og frumvarps til laga, 79. mál á 104. löggjafarþingi 1981, um að leggja sýslunefndir niður. Hljómar samþykktin svo: Hjá sýslu- nefndum er enn það eina sem eftir er af stjórnarfarslegu valdi landsbyggð- arinnar. Afnám þess valds er í and- stöðu við yfirlýst sjónarmið flestra MBL. HEFUR borist ályktun frá stjórn og trúnaðarráði Málarafé- lags Reykjavíkur sem samþykkt var á fundi þann 14. júní sl. Álykt- unin er svohljóðandi: „Stjórn og trúnaðarráð Málara- félags Reykjavíkur mótmælir harðlega þeim harkalegu árásum landsmanna um valddreifingu. Sýslu- nefnd Norður-Múlasýslu leggur höf- uðáherslu á sjálfstæði og sjálfs- ákvörðunarrétt sveitarfélaga að margvíslegum málum. Ályktunin var samþykkt samhljóða. Oddviti sýslunefndar Norður-Múla- sýslu er Sigurður Helgason, sýslumað- ur og bæjarfógeti á Seyðisfirði. á kjör launafólks sem felast í bráðabirgðalögum ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar og tekur undir framkomin mótmæli miðstjórnar ASÍ. Stjórn og trúnaðarráð Málarafélags Reykjavíkur." Málarafélag Reykjavíkur: Mótmælir bráðabirgðalögum Jónóttar ráðleggur um mataræði. |j| Hjðrdía Magnúadóttir Dagný Péturadóttir, Jónína íþróttafræðingur danskennari. Benediktsdóttir, Samkvamitdanaar. íþróttatræóingur. Jane Fonda. Jackie Genova. Fred Schalk, nuddari. Nýjung Jackie Genova Aerobic þol og teygjur fyrir basði kynin. MÁNAÐARKORT AÐEINS 690. MÆTIÐ 0G KYNNIÐ YKKUR DAGSKRÁNA ... ÆriNGASFOÐIN ENGIHJALLA 8 * ® 46900 LÆKNIR OC LÆKNANEMAR VERÐA Á STADNUM ÞVI EKKI Heilsuhelgi hefst kl, 17.00 fimmtudag 7/7 1983 og lýkur' þriöjudaginn 12/7. Frjáls mæting.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.