Morgunblaðið - 08.07.1983, Qupperneq 1
56 SÍÐUR
152. tbl. 70. árg.
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaösins
Samdrætti í liði
í Líbanon lofað
Tel A»ít, Kaíró, 7. júlí. AP.
Forsætisráðherra ísraels,
Menachem Begin, sagði í dag að
ísraelsmenn væru að íhuga aft-
urköllun herliðs nær landamær-
um ísraels í Líbanon, þar eð Sýr-
lendingar hefðu staðfastlega
neitað að kalla hersveitir sínar
brott frá landinu. Begin lét orð
þessi falla aðeins nokkrum
klukkustundum eftir fund hans
og utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, George Shultz, í Tel Aviv.
Kanzlara hrósað
við heimkomuna
Bonn, 7. júlí. AP.
KANZLARI Vestur-Þýzkalands,
Helmut Kohl, sneri heimleiðis til
Bonn í dag að lokinni fjögurra daga
ferð til Sovétríkjanna. Kanzlarinn var
ekki fyrr kominn heim en umræður
hófust um hvort tilraunir hans til að
hafa áhrif á Sovétmenn í vígbúnað-
armálum heföu borið árangur eða
ekki.
Kristilegir demókratar voru þeg-
ar önnum kafnir við að lofa för leið-
toga síns við komu hans. Kohl,
sögðu þeir, lét ekkert fara milli
mála um afstöðu Vestur-Þjóðverja
til vopnabúnaðar, til Atlantshafs-
bandalagsins og málefna, er snúa
að sameiningu Vestur- og Austur-
Þýzkalands. Kohl tók af öll tvímæli
um „að staður okkar er með frjáls-
um þjóðum og hinum bandarísku
vinum okkar," sagði Franz Josef
Strauss, fylkisstjóri í Bayern og
foringi systurflokks kristilegra
demókrata, Kristilega sósíalbanda-
lagsins.
Talsmenn stjórnarandstöðunnar
gagnrýndu á hinn bóginn einstreng-
ingslegan málflutning kanzlarans
Hamingjan
er í
Hollandi
Brussel, 7. júlí. AP.
HOLLENDINGAR eru hamingju-
samastir allra í Efnahagsbanda-
lagi Evrópu, en Grikkir óham-
ingjusamastir, ef marka má skoð-
anakönnun sem birt var í dag.
I könnuninni voru Hollend-
ingar spurðir hvort þeir væru
ánægðir eða sáttir við tilveruna
og svöruðu 93 af hundraði ját-
andi en 7 af hundraði sögðu nei
eða svöruðu ekki. í Grikklandi
svöruðu 51 af hundraði sömu
spurningu játandi, en 49 af
hundraði sögðust vera óham-
ingjusamir eða svöruðu ekki.
Velsældarröð annarra ríkisborg-
ara í bandalaginu kom út þannig
að Bretar voru í öðru sæti, síðan
frar, Belgar, Lúxemborgarar,
Danir, Vestur-Þjóðverjar,
Frakkar og ítalir.
Hin vísindalega könnun var
framkvæmd á vegum Efna-
hagsbandalagsins sem liður í
rannsóknum á afstöðu Evrópu-
búa til félagslegra, pólitískra og
efnahagslegra málefna. Leiddi
hún í ljós að þrátt fyrir að efna-
hagsmál séu flestum ofarlega í
huga, telja fáir að peningar séu
lykillinn að lífshamingjunni.
Líta langflestir svo á að heil-
brigði skipti mestu máli og því
næst gott hjónaband.
varðandi viðhorf vesturveldanna og
sögðu að ekki væri undrunarefni
þótt Sovétmenn veittu þvergirð-
ingsleg svör, líkt og hann.
Kohl gaf engar yfirlýsingar við
komuna til Bonn, en sagði frétta-
mönnum í Moskvu í gær að hann
væri ánægður með heimsóknina og
vongóður um fund Reagans og And-
ropovs. Á fundi sínum með And-
ropov hafði kanzlarinn sagt að Atl-
antshafsbandalagið væri staðráðið
í að byrja að koma fyrir meðal-
drægum kjarnorkueldflaugum í
desember hefðu Sovétmenn ekki
samþykkt afvopnunartillögur í
Genf fyrir þann tíma.
í ávarpi, sem hann hélt á mið-
stjórnarfundi Herut-flokksins,
sagði Begin að ákvörðun hefði enn
ekki verið tekin í ríkisstjórninni,
en ganga mætti að því sem vísu að
ákveðin yrði brottkvaðning liðs að
hluta til innan tíðar. Embættis-
menn hafa sagt að ráðagerðirnar,
sem á döfinni eru, feli í sér að
hermenn í nágrenni Beirút verði
kallaðir aftur að mörkum í um
fjörutíu kílómetra fjarlægð frá
landamærum ísraels.
Shultz, utanríkisráðherra
Bandarikjanna, kom til Kaíró í
dag til viðræðna við Hosni Mubar-
ak forseta um brottför útlendra
hersveita frá Líbanon. Á fundin-
um með Shultz eru Philip Habib,
sérlegur erindreki Bandaríkja-
forseta, og Alfred Atherton,
sendiherra Bandaríkjanna í
Egyptalandi. Við komuna til
Kaíró í dag lét Shultz svo um
mælt að sér hefði mistekizt að „ná
umtalsverðum árangri" í tilraun-
um sínum til að fá útlendar her-
sveitir til að yfirgefa Líbanon.
Ráðherrann sagði þó að hann
hefði orðið var við „sterkan stuðn-
ing“ við markmið Bandaríkja-
stjórnar í för sinni um Líbanon,
Sýrland, ísrael og Saudi-Arabíu.
Skjótur endir
ránsæfíntýris
París, 7. júlí. AP.
SEX íranskir flugræningjar með al-
væpni gáfust upp á Orly flugvelli í
Paris í dag og leyfðu 179 farþegum
og 19 manna áhöfn íranskrar Boeing
þotu að fara frá borði samkvæmt
fyrirskipun skæruliðaforingjans
Massoud Rajavi.
Flugræningjarnir, með hvíta
vefjarhetti, gengu frá þotunni að bif-
reiðum, sem biðu þeirra, undir
ströngu eftirliti sérþjálfaðrar her-
lögreglu. í fimmtíu mínútna löngum
viðræðum foringja flugræningjanna
og Rajavis skæruliðaleiðtoga hafði
hinn síðarnefndi þráfaldlega dregið í
efa staðhæfingar ræningjanna um
að þeir væru félagar Mujahedin-
skæruliðahópsins. Skipaði Rajavi
þeim að lokum að leggja niður vopn
sín og hlýddu ræningjarnir skipun-
inni þegar.
Rajavi sagði að hann myndi ráð-
leggja flugræningjunum að leita
pólitísks hælis í Frakklandi. Tals-
maður frönsku stjórnarinnar, Max
Gallo, sagði að engin ákvörðun hefði
verið tekin um hvort flugræningjun-
um yrði veitt viðtaka eða ekki, en til
að byrja með yrðu sexmenningarnir
leiddir fyrir rétt. (Itvarpið í Teheran
sagði í dag að íranska stjórnin
myndi krefjast þess að ræningjarnir
yrðu framseldir.
Boeing-þotunni, sem er af gerðinni
747 og í eigu flugfélagsins „Iran
Air“, var rænt í flugi frá Dubai við
Persaflóa til Teheran á miðvikudag.
Tóku bófarnir völdin með byssum
skömmu eftir að flugvélin hóf sig til
flugs frá viðkomustaðnum Shiraz í
suð-vesturhluta íran og neyddu flug-
stjórann til að fljúga til Kuwait. Þar
létu ræningjarnir 184 farþega, kon-
ur, börn og gamalmenni, lausa. Þeg-
ar síðan var komið til Parísar kröfð-
ust flugræningjarnir aðeins áheyrn-
ar Rajavis, en hann var leiðtogi
Mujahedin-skæruliðahópsins og í
andstöðu við stjórn Ayatollah
Khomeinis í íran.
EMANUELA OREANW
TÝNDA STÚLKAN OG TYRKINN AGCA — Veggspjald t.v. sýnir Em-
anuelu Orlandi, fímmtán ára dóttur starfsmanns í Páfagarði. Tilræðis-
maður páfa, Ali Agca, er t.h. eftir að hann var handtekinn 1981. Rann-
sóknarlögregla kannar nú hvort stúlkunni kunni að hafa verið rænt til að
fá Agca sleppt lausum.
Dularfullt hvarf
unglings í Róm
Róm, 7. júlí. AP.
STAÐFEST var í dag að hringt hefði verið í Páfagarð vegna fímmtán
ára dóttur starfsmanns þar, en dótturinnar hefur verið saknað síðan 22.
júní. Lögregluyfírvöld sögðu hins vegar að enn væri allt á huldu um
afdrif stúlkunnar og væri hugsanlegt að henni hefði verið rænt í þeim
tilgangi að fá tilræðismann páfa, Ali Agca, lausan. Agca er í lífstíðar-
fangelsi eftir að hann særði páfa skotsári á Péturstorgi 13. maí, 1981.
Rannsóknarlögreglumenn í
Róm segjast forviða eftir að
ókunnur maður hringdi í frétta-
stofu þar í borg á miðvikudag og
sagðist hafa Emanuelu Orlandi í
haldi til að fá Ali Agca sleppt.
„Allt er mögulegt. Við útlokum
ekkert," sagði talsmaður dóms-
málaráðuneytisins, Arturo
Chiodi. Hann bætti við að símtal-
ið hefði verið einkennilegt að því
leyti að hringjandinn kvaðst ekki
tala í nafni neins ákveðins hóps
hryðj uverkamanna.
Stúlkan, sem er dóttir sendi-
boða nokkurs í Páfagarði hvarf
22. júní eftir að hún hafði sótt
tónlistartíma í miðborg Rómar.
Talsmaður Páfagarðs, séra Rom-
eo Panciroli, sagði að símhring-
ing hefði borizt á þriðjudag en
neitaði að skýra frá innihaldi
samtalsins. Hann gat þess þó að
viðmælandinn hefði beðið um að
skilaboðum yrði komið til utan-
ríkisráðherra Páfagarðs. Maður-
inn, sem hringdi til fréttastof-
unnar, tók fram að hann hefði
haft samband við Páfagarð, en
sagði að þar hefði sér enginn
gaumur verið gefinn. Benti hann
fréttamönnum á að þeir gætu
kíkt ofan í ruslatunnu fyrir fram-
an þingbygginguna í Róm til að
sannfærast um að alvara væri á
ferð. Fréttamennirnir fundu síð-
an ljósrit af skólaskírteini stúlk-
unnar ásamt öðrum skilríkjum í
umræddri ruslatunnu.
Faðir stúlkunnar, Ercole, seg-
ist einnig hafa fengið hringingu
frá manni, sem þóttist hafa dótt-
ur hans í haldi. Spilaði maðurinn
af segulbandstæki í símtólið og
segir Ercole að þar hafi hann
heyrt rödd, sem líktist rödd dótt-
ur sinnar.
Meira en þrjú þúsund vegg-
spjöldum með mynd af stúlkunni
hefur verið dreift um Róm í von
um að einhver kunni að geta sagt
til hennar.
UPPGJÖF — Tveir franskir lögreglumenn leita vopna á flugræningja t.v., meðan aðrir lögreglumenn nálgast fímm
fíugræningja í uppgjafarstöðu á Orly flugvelli ( Parls í dag. Flugræningjarnir höfðu þá nýlega látið 180 farþega og 19
manna áhöfn lausa úr Boeing þotu „Iran Air“-flugfélagsins.