Morgunblaðið - 12.07.1983, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
155. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fiskveidideilan
enn óleyst í EBE
Bríissel, 11. júlí. AP.
EKKERT SAMKOMULAG hafði náðst í kvöld á fundi ráðherranefndar
Efnahagsbandalags Evrópu um sameiginlega stefnu í fiskveiðimálum. Stendur
aðaldeilan um skiptingu aflakvótans milli aðildarlanda EBE og þá fyrst og
fremst á þeirri sfld, sem heimilt verður að veiða innan EBE á þessu ári.
Fundinum verður haldið áfram á morgun, en hann fer fram í Briissel í Belgíu.
Vonir stóðu til, að samkomulag
næðist um veiðiheimild handa
Norðmönnum, sem nema skyldi
31.000 tonnum á þessu ári á veiði-
svæðum, sem tilheyra EBE. Til
þessa hafa Norðmenn aðeins fengið
3.500 tonna veiðiheimild til bráða-
birgða og það magn eru þeir þegar
búnir að veiða. Það eru Danir, sem
koma í veg fyrir viðbótarveiðiheim-
ild handa Norðmönnum og gera
það að skilyrði, að aðildarlönd
EBE, sem eru 10, nái fyrst sam-
komulagi um það sín á milli, hvern-
ig þau skipti innbyrðis þeim
115.000 tonnum af síld, sem heimilt
verður að veiða á þessu ári.
Pólska þingið
kallað saman
Verður herlögum aflétt bráðlega?
Varsji, ll.júlí AP.
PÓLSKA þingið kemur saman innan
tveggja vikna til þess að fjalla um
Josef Glemp kardináli kom f gær
heim til Póllands eftir 11 daga dvöl í
Páfagarði.
herlögin í landinu. Skýrði Piotr Stef-
anski, forseti þingsins, frá þessu í
pólska sjónvarpinu í kvöld. Tilkynn-
ing þessi er talin fyrirboði þess, að
herlög verði afnumin innan skamms í
Póllandi að formi til, hugsanlega fyrir
lok þessa mánaðar. Er talið líklegt, að
þingið komi saman rétt fyrir 22. júlí
nk. í þessu skyni, en þá er þjóðhátíð-
ardagur Pólverja.
Jozef Glemp kardínáli, sem í dag
sneri heim til Póllands eftir 11 daga
heimsókn til Páfagarðs, sagði í dag,
að hann gerði sér vonir um, að her-
lögum verði aflétt fyrir 22. júlí. Þá
gaf hann einnig í skyn, að sumir af
þeim félögum Samstöðu, sem hlotið
hafa fangelsisdóma, kunni að verða
náðaðir í kjölfar afnáms herlaga i
landinu.
Þrátt fyrir það, að herlögum hafi
verið aflétt að nokkru í Póllandi í
desember sl., þá hafa stjórnvöld þar
enn vald til þess að taka verksmiðj-
ur í landinu beint undir sína stjórn,
handtaka fólk fyrir brot á tilskip-
unum stjórnarinnar og ráða yfir
stofnunum þjoðfélagsins annað
hvort með því að leggja þær niður
eða setja þær beint undir yfirstjórn
stjórnarinnar.
Meistaraleg dýfa
„Stórkostleg sjón að sjá krakkana í spranginu," segir ljósmyndari
Morgunblaðsins í Vestmannaeyjum, Sigurgeir Jónasson, í bréfi
með þessari mynd, sem hann tók fyrir skemmstu í Eyjum. Þetta er
Elísabet Benónýsdóttir, sonardóttir Binna í Gröf, sem þarna tekur
meistaralega dýfu.
Ecuador:
TT9
fórust
í flug-
slysi
Quito, Ecuador, 12. júlí. AP.
FARÞEGAÞOTA frá Ecuador fórst
er hún rakst á fjall í Andesfjöllum,
rétt áður hún átti að lenda á flugvelli
við borgina Cuenca. Allir fórust sem
með henni voru en það voru 119
manns. Þotan var af gerðinni
Boeing-737 og var í eigu TAME-
flugfélagsins í Ecuador, sem ríkið
rekur. Með henni voru 112 farþegar,
þar af eitt barn og 7 manna áhöfn.
Utvarpið í Cuenca skýrði svo fra, að
sprenging hefði orðið í þotunni, áður
en hún lenti á fjallinu.
Eduardo Duran, yfirflugmála-
stjóri Ecuadors, hefur sagt, að alls
ekki sé útilokað, að þarna hafi ver-
ið um skemmdarverk að ræða. Lík
þeirra, sem fórust, lágu dreifð á
um 500 metra svæði og er miklum
erfiðleikum bundið að gera sér
grein fyrir, af hverjum þau eru,
sökum þess hve þau eru illa
brennd. Flugvélin var i farþega-
flugi frá Quito til Cuenca, er slysiö
varð og flestir þeirra, sem voru
með henni, voru frá Ecuador.
Enn kreppt að Arafat í Sýrlandi:
Helzti aðstoðarmað-
ur hans handtekinn
Tripoli, Líbanon, 11. júlí. AP.
PERSÓNULEGUR aðstoðarmaður
Yasser Arafats, leiðtoga Frelsisfylk-
ingar Palestínu-Araba (PLO), hefur
verið handtekinn í Sýrlandi. Skýrði
talsmaður PLO frá þessu í dag.
Maðurinn, sem heitir Mohammed
Ævintýralegur flótti til Svfþjóðar:
Stökk fyrir borð af pólsku
skipi og synti tii lands
Stokkhólmi, 11. júlí. AP.
SÆNSKA LÖGREGLAN hefur handtekið skipstjórann á pólskum bát
fyrir að hafa skotið með blysbyssu á einn úr áhöfn bátsins, sem flýði til
Svíþjóðar með því að stökkva fyrir borð og synda til lands. Gerðist þetta
við suðausturströnd Svíþjóðar á sunnudag. Skipstjórinn verður nú að
svara til saka fyrir rétti í Svíþjóð ákærður fyrir líkamsárás, en hann skaut
„fimm til átta sinnum" á landa sinn, Andrjez Dsuz, er sá síðarnefndi
synti til lands. Sænskt varðskip sigldi síðan í veg fyrir bátinn og færði
hann til hafnar í Kalmar.
Pólski báturinn var á
skemmtisiglingu um 600 metra
fyrir utan strönd Svíþjóðar, er
Dsuz stökk fyrir borð. Hið eina,
sem hann hafði meðferðis, var
poki með fáeinum persónulegum
munum, vegabréfi og svolitlu af
vestrænum gjaldeyri. Síðan
synti Dsuz eins hratt og hann
frekast gat til lands, en skip-
stjórinn hrópaði á eftir honum
að snúa við og hóf síðan að
skjóta á hann með blysbyssu
bátsins. Skýrði Dsuz sænsku
lögreglunni frá því, þegar í land
var komið, að tvö blys hefðu lent
í poka sínum.
„Þetta atvik hlýtur að teljast
mjög alvarlegt,“ sagði Lars
Jonsson yfirlögreglumaður í
Kalmar. „Að mínu mati hefðu
þessi skot getað valdið alvarleg-
um meiðslum. Skipstjórinn hef-
ur gerzt sekur um glæp innan
sænskrar lögsögu og svo kann að
fara, að hann verði sóttur til
saka í Svíþjóð. Pólskum yfir-
völdum hefur þegar verið skýrt
frá handtöku mannsins."
Lögreglan í Kalmar hefur þeg-
ar lokið fyrstu yfirheyrslum yfir
flóttamanninum. Hefur hann
skýrt svo frá, að hann eigi konu
og son heima í Póllandi. Hann
var rekinn úr starfi sínu sem
rafmagnsverkfræðingur í Bytom
í Suður-Póllandi 7. janúar 1982,
aðeins nokkrum vikum eftir að
herlögum var komið á þar í
landi. Ástæðan fyrir brott-
rekstrinum var sú, að hann var
virkur félagi í Samstöðu, sam-
tökum óháðu verkalýðsfélag-
anna í Póllandi, og síðan gat
hann aðeins fengið vinnu sem
ófaglærður verkamaður.
Dsuz kvaðst hafa í hyggju að
fá hæli sem pólitískur flótta-
maður í Ástralíu, þar sem hann
gerði sér vonir um að fá starf í
sinni grein þar. Hins vegar
kæmi vel til greina, að hann
settist að í Svíþjóð, ef hann fengi
þar viðunandi starf. Allar líkur
eru taldar á, að hann hljóti þar
hæli sem flóttamaður eins og
þúsundir annarra Pólverja, sem
þangað hafa flúið í kjö’.far her-
laganna 13. desember 1981 og at-
lögunnar gegn Samstöðu.
Al Ameri, en er kunnur undir nafn-
inu Abu Amer, var eini persónulegi
trúnaðarmaður Arafats, sem eftir
var í Sýrlandi. Hann var tekinn fast-
ur, er hann var á leið frá Tripoli í
Líbanon til Damaskus, höfuðborgar
Sýrlands. „llann er í fangelsi og við
vitum ekkert um afdrif hans að öðru
leyti." sagði talsmaður Arafats í
kvöld.
Um 2000 palestínskar konur
fóru í dag í hópgöngu um götur
flóttamannabúðanna í Beddawi í
grennd við Tripoli til stuðnings
Arafat og fordæmdu öll innbyrðis-
átök milli Palestínu-Araba. Hróp-
uðu þær óspart ókvæðisorð um
Hafez Assad Sýrlandsforseta og
bölvun og dauða yfir Moammar
Khadafy, leiðtoga Líbýumanna.
Hvarvetna í búðunum mátti sjá
svarta fána, sem héngu í gluggum
og á svölum og áttu að sýna andúð
á þeim bardögum, sem staðið hafa
innan PLO að undanförnu.
Drúsar héldu í dag uppi ákafri
fallbyssuskothríð á þjóðveginn
norðan við Beirút og munu tveir
menn, sem voru þar á ferð í bif-
reið, hafa beðið bana og aðrir tveir
særst alvarlega. Walid Jumblatt,
leiðtogi Drúsa, lýsti því yfir í dag,
að hermenn hans muni „aldrei
hætta að berjast" gegn her Líban-
ons, ef herinn sækir inn í miðhá-
lendi landsins til þess að taka þar
við af her ísraels. Þessi fjöll hafa
um aldir verið virki Drúsa í Líb-
anon, sem eru um 200.000 talsins.