Morgunblaðið - 15.07.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1983
3
Dansgagnrýnandi New York Times:
Ballett Helga meðal
þeirra bestu á árinu
EINS OG fram hefur komiö í Mbl.
hlaut baliett Helga Tómassonar,
Ballett d’Isoline, sem frumfluttur
var á vegum New York City Ballet
ekki alls fyrir löngu, frábæra
dóma gagnrýnenda. I sunnudags-
blaói hins virta stórblaðs New
York Times 3. júlí sl. tekur dans-
gagnrýnandinn, Anna Kisselgoff,
upp þráöinn aö nýju í ballettum-
sögn og segir aö ballett Helga hafi
verið meðal bestu nýju balletta
sem sýndir voru á árinu.
„Ekki er unnt að sniðganga
hinn fallega og frumlega Ballet
d’Isoline, en sá ballett er geysi-
lega mikilvægur bæði fyrir New
York City Ballett og amerískan
ballettdans almennt. í þessu
verki sýnir Helgi að hann er
kominn í fremstu röð balletthöf-
unda,“ segir Kisselgoff m.a. í
grein sinni. Hún segir ennfrem-
ur að með ballett sínum leiti
Helgi á náðir „klassíska balletts-
ins“, sem því miður hefði oft og
tíðum lotið í lægra haldi fyrir
öðrum dansstefnum.
Eftir greininni að dæma var
það hinn kunni balletthöfundur
George Balanchine sem hvatti
Helga til að semja ballett af
„klassíska skólanum". „Þú hefur
nægan tíma síðar til að fást við
aðra hluti í ballettgerð," á Bal-
anchine að hafa sagt við Helga.
Síðan segir Kisselgoff: „Það er
engum vafa undirorpið að sá
tími, sem Helgi Tómasson hefur
verið höfuðdansari við New York
City Ballet, hefur haft áhrif á
ballettsmíðar hans. Þó er sjald-
Helgi Tómasson
gæft að tengja ballettgerð við
ballettstíl höfundar sé hann
dansari sjálfur. En staðreyndin
er sú að Ballet d’Isoline endur-
speglar hinn fagurmeitlaða og
eðalhreina klassíska dansstíl
Helga Tómassonar."
Greinarhöfundur fjallar einn-
ig mikið um dirfsku Helga í tón-
listarvali við Ballet d’Isoline.
Segir Kisselgoff að Balanchine
hafi sýnt tónlistinni, sem er eftir
Frakkann André Messager, mik-
inn áhuga. Því næst er ballett-
nám og -ferill Helga rakinn og
telur Kisselgoff að Helgi hafi
orðið fyrir meiri áhrifum af
stefnum og straumum í ballett
en flestir samdansarar hans við
New York City Ballett. „Ef til
vill er það ástæðan fyrir ævin-
týramennsku Helga þegar um
balletttónlist er að ræða.“ Loks
klykkir Kisselgoff út með því að
segja að „nýr og mikilvægur
balletthöfundur sé kominn til
sögunnar hjá New York City
Ballett".
Norðurárdals-
vegur lokaður:
Mikil slysa-
gildra lagfærð
ÞJÓÐVEGURINN um Norðurárdal
Borgarfiröi hefur verið lokaöur vegn
vegaframkvæmda síöan á mánudag o
verður lokaður eitthvað fram eftir vik-
unni. Aö sögn Birgis Guðmundssonar,
umdæmisverkfræöings Vegagerðar
ríkisins á Vesturlandi, þá er verið aö
laga veginn á milii Brekku og Dals-
mynnis en bundið slitlag sem þar var
lagt fyrir nokkrum árum er orðið
skemmt. Er nú verið að setja nýtt
burðarlag á veginn og síðan verður
lagt nýtt slitlag.
Þá verður tíminn á meðan þjóð-
vegurinn er lokaður einnig notaður
til að laga veginn um Hvammsleiti.
Þar er mjög blint horn, sem hefur
verið einn af tíu mestu slysastöðum
á þjóðvegum landsins. Að sögn Birg-
is þá er reynt að breikka hann með
því að grafa úr hlíðinni ofan við veg-
inn og setja utan á veginn. Því verki
verður ekki lokið í þessum áfanga en
í haust er áformað að sprengja það
sem ekki næst að laga með gröfu
núna.
Á meðan á þessum framkvæmd-
um stendur er vegfarendum á leið á
milli Norður- og Vesturlands bent á
að fara syðri leiðina í Norðurárdal
og þeim sem ætla úr eða í Dalasýslu
er bent á að fara Heydalsveg. Auk
þessara framkvæmda verður í vik-
unni lagt bundið slitlag á veginn i
Grábrókarhrauni, frá Bifröst að
Hrauná, sem er um 2,5 kílómetra
langur vegarkafli.
Patreksfjörður:
Fjárskortur
dregur úr
framkvæmdum
„ÖRÐUGT er að halda uppi fram-
kvæmdum á vegum sveitarfélagsins
vegna fjárhagserfiðleika,” sagði
sveitarstjórinn á Patreksfirði, lllfar
B. Thoroddsen. „Aðalorsökin er sú,
að erfiðlega hefur gengið að inn-
heimta tekjur sveitarfélagsins.“
„Hraðfrystihús Patreksfjarðar
er stærsti atvinnurekandinn og
umsvifamesta fyrirtækið hér um
slóðir, og því fer ekki hjá því, að
þegar frystihúsið á í fjárhagsörð-
ugleikum, bitnar það á bæjarlífiinu
öllu,“ sagði Úlfar í samtali við Mbl.
Hann sagði að frystihúsið væri þó
ekki eini aðilinn sem ekki greiddi
skuldir sínar, heldur væru fleiri
sem ekki stæðu í skilum.
Úlfar B. Thoroddsen sagðist
vona að þessi mál leystust öll hið
fyrsta og þótt útlit væri dökkt um
þessar mundir tryði hann því, að
hægt væri að leysa vandann á far-
sælan hátt.