Morgunblaðið - 15.07.1983, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1983
Egilsstaðir:
Hugdetta sem
reyndist nýtileg
Spjallað við Björn
Oddsson, ofnasmið
FfilmtMun. 13. jölí.
BJÓRN Oddsson heitir ungur mað-
ur á Egilsstöðum, fsddur og uppal-
inn Héraðsmadur. Hann hefur feng-
ist ?ið margt um ævina — enda
harðduglegur — en upp úr 1980 hóf
hann framleiðslu panelofna fyrir
húsbyggjendur á Egilsstöðum. í
fyrstu við nokkuð frumstæð skilyrði
á byggingarstað — sem síðan hefur
þróast upp í ofnasmiðju að Lagar-
braut 7 í Fellabæ.
Þar tók Ofnasmiðja Björns
Oddssonar til starfa fyrir réttu ári
við allgóðar aðstæður og nauð-
synlegan tækjabúnað og þangað lá
leið tíðindamanns Morgunblaðsins
í gær til að ná tali af Birni.
„Rekstur fyrirtækisins hefur
gengið vel. Ég framleiði um 20
ofna á dag — sem verður að telj-
ast gott þ?r sem ég hef oftast ver-
ið einn við störf hér í smiðjunni,“
segir Björn.
„Blessaður vertu, þetta leikur
allt í höndunum á honurn," skýtur
aðstoðarmaður Björns inn í,
„unglingur" á áttræðisaldri og
fyrrum bóndi að Hallgeirsstöðum
í Jökulsárhlíð, Hrafnkell Elíasson.
Hvaðan færðu aðföng, Björn?
„Ég flyt efnið inn sjálfur beint
frá Danmörku. Ms. Norræna flyt-
ur efnið fyrir mig núna til Seyð-
isfjarðar, svo að flutningskostnað-
ur aðfanga er í algjöru lágmarki."
Hverjir eru viðskiptamenn þín-
ir, Biörn?
„Það eru auðvitað húsbyggjend-
ur, einstaklingar og félög og fyrir-
tæki. Flestir eru viðskiptamenn-
irnir á Austurlandi, en ég á við-
skiptavini um land allt.“
Svo að þú stendur ekki höllum
fæti í samkeppninni eða hvað?
„Nei, það held ég alls ekki.
Viðskipti með húshitunarofna í
dag fara yfirleitt fram í gegnum
tilboð, og ég hef yfirleitt fengið
þau verk sem ég hef boðið í. Þess
vegna verð ég að álíta að ég sé vel
samkeppnisfær bæði hvað snertir
verð og gæði. Og ég vil endilega
láta þess getið hér að ég annast
flutning ofnanna fyrir viðskipta-
vinina. Landsmenn búa því við
sama verð — hvort heldur þeir
eiga heima hér í Fellabæ, í
Reykjavík eða á Isafirði."
Hver voru eiginleg tildrög þess
að þú hófst þessa ofnafram-
leiðslu?
„Satt best að segja kviknaði
hugmyndin fyrir sunnan þegar ég
vann þar um tíma í blikksmiðju
hjá tengdaföður mínum. Þangað
kom maður eitt sinn með mið-
stöðvarofn til smáviðgerðar. Nú,
og auðvitað varð nýstofnsett Hita-
veita Egilsstaða og Fella ekki til
þess að draga úr mér kjarkinn.
Þetta hefur alltént reynst nýtileg
hugdetta."
— Ólafur
Hrafnkell Elíasson, 77 ára, aöstoðar Björn við ofnasmíðina.
Björn utan við ofnasmiðju sína að Lagarbraut 7 í Fellabæ.
Eiginmaöur minn.
t
GUNNLAUGUR PÁLSSON,
arkitekt,
lést 14. júlí.
Áslaug Zoöga.
t
Eiginkona mín og móöir okkar,
JAKOBÍNA KRISTJÁNSOÓTTIR,
Hátúni 10A,
andaöist í Vífilsstaöaspítala 14. júll.
Ólafur Péturaaon og börn.
t
Eiginkona mín,
MARGRÉT SIGRÍOUR JÓHANNSDÓTTIR
frá Akranesi,
Blönduhlíö 20, Reykjavlk,
veröur jarösungin frá Akraneskirkju i dag, föstudaginn 15. júlí kl.
14.30.
F.h. vandamanna,
Lárus Þjóöbjörnsson.
Minning:
Sr. Þorgrímur V. Sigurðs-
son á Staðarstað
Sr. Þorgrímur V. Sigurðsson var
um langt skeið meðal kunnustu
kennimanna landsins. Hann sat á
tveimur merkum og fornfrægum
prestssetrum í tveimur lands-
fjórðungum, Grenjaðarstað í
Þingeyjarþringi og Staðarstað á
Snæfellsnesi, Stað á Ölduhrygg,
eins og það prestasetur var títt
nefnt til forna.
Á Grenjaðarstað var sr. Þor-
grímur prestur í 12 ár. Sagt var í
gamla daga að frá því brauði færi
aldrei prestur nema til að verða
biskup á Hólum. Hafi þetta verið
regla féll hún úr gildi við aftur-
nám Hólastóls og sr. Þorgrímur
fór að Staðarstað þar sem hann
var prestur í tæp þrjátíu ár og
prófastur í tíu ár.
Mikið orð fór af sr. Þorgrími
sem ágætum presti, enda hafði
hann til þess alla burði: Mikla,
meðfædda hæfileika, samfara
góðri menntun, einlæga trú og
brennandi áhuga til að láta gott af
sér leiða á öllum sviðum samfé-
lagsins, bæði í söfnuði og sveitar-
félagi. Þó mun hann hafa getið sér
einna mest og best orð sem af-
burða kennari ungmenna, sem þau
t
Útför eiginmanns míns og fööur okkar,
PÁLS S. PÁLSSONAR,
hœstaréttarlögmanns,
Skildinganesi 28, Raykjavik,
veröur gerö frá Dómkirkjunni, þriöjudaginn 19. Júlí nk. kl. 13.30.
Guörun Stephensen,
Stefán Pálsson,
Sesselja Pálsdóttir,
Páll Arnór Pálsson,
Signý Pálsdóttir,
Þórunn Pálsdóttir,
Sigþrúóur Pálsdóttir,
Anna Heiöa Pálsdóttir,
fvar Pálsson.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og hluttekningu viö andlát og
útför móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
ÁSTRÓSAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
Blómvallagötu 12,
(Minni Grund) áöur Grundarstíg 21.
Guö blessi ykkur öll.
Þorbjörg Ingólfsdóttir, Páll Eggertsson,
Ingibjörg Ingólfsdóttir, Bjarni Sigurbjörnsson,
Guðmundur Kr. Októsson,
Aöalsteinn Dalmann Októsson, Gyöa Erlingsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
hjón tóku á heimili sitt oft til
langdvalar. Þegar bókin „Landið
okkar" eftir Þorstein Jósefsson
kom út, var sr. Þorgrímur enn
prestur vestra. Er þess sérstak-
lega getið þar, í kaflanum um
Staðarstað, að presturinn hafi um
margra ára skeið haldið nokkurs
konar skóla fyrir unglinga og búið
þá undir stúdentspróf.
Það má skrifa langt mál um sr.
Þorgrím og starf hans í þágu
kirkju- og kennslumála og þá
jafnframt um þann ómetanlega
skerf, sem kona hans, frú Áslaug,
átti í lífsstarfi hans. Um þetta allt
verður skrifað af þeim, sem því
eru kunnugir.
Tilgangurinn með þessum línum
er að minnast sr. Þorgríms á út-
farardegi hans fyrir hönd Félags
fyrrverandi sóknarpresta. Strax
og hann fluttist hingað til Reykja-
víkur, er hann lét af embætti, ger-
ist hann virkur og trúr meðlimur
þess félags. Hann var ágætur fé-
lagi og sótti manna best fundi
meðan heilsa hans leyfði.
Lengi var hann fundarritari og
leysti það starf af hendi með mik-
illi prýði eins og hans var von og
vísa. Hans fundargerðir voru eng-
in þurr upptalning á venjubundn-
um dagskrárliðum heldur lífleg og
listileg frásögn af góðum sam-
fundum vina og félagsbræðra. —
Margs er að minnast frá þeirri
samvinnu og mörgum góðum sam-
verustundum. Allt er það geymt í
sjóði minnninganna með þakklát-
um huga.
Fyrir hönd Félags fvrrverandi
sóknarpresta eru frú Áslaugu og
börnunum sendar innilegar sam-
úðarkveðjur um leið og góður fé-
lagi er kvaddur. Skal sú kveðja
áréttuð með lokaerindi úr erfiljóði
sr. Matthíasar um kirkjuhöfð-
ingja, sem eitt sinn hélt Staðar-
stað:
Yfir Guðsmanns banabál
breiðist Drottins heiði
Guði dýrð mót glaðri sál
gráti rós á leiði.
G.Br.