Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK 159. tbl. 70. árg. LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1983 Prentsmidja Morgunblaðsins Kafbáts leitað við Grænland Kaupmannahofn, 15. júlí. AP. FLUGVÉL danska hersins leitaði ( dag að ókunnum kafbáti á Diskóflóa á vesturströnd Grænlands, en kafbátsins varð þar vart á miðvikudag, skammt frá danskri herstöð á vesturströndinni. Haft var eftir P.B.Nilsen kapteini hjá yfirstjórn danska heraflans að hér væri hvorki um danskan kafbát að ræða eða bát frá ríkjum Atlants- hafsbandalagsins. „Og ég get aðeins getið mér til um að þessi bátur hafi verið í njósnaleiðangri," sagði Nilsen. Það var grænlenzkur embættis- maður, Bertel Sandgreen i Akunaaq, sem varð kafbátsins var er hann kom upp á yfirborðið aðeins 25 Skyndileg hækkun dollarans London, 15. júlí. AP. BANDARÍKJADALUR hækk- aði verulega í verði á gjaldeyr- ismörkuðum í dag þar sem bú- ist var við tilkynningu um veru- lega aukið peningamagn í um- ferð í Bandaríkjunum með kvöldinu. Dollar hefur aldrei verið verðmeiri gagnvart franska frankanum og ítölsku lírunni. Þá hefur hann eftir hækkun- ina í dag ekki verið hærri gagnvart þýzka markinu í sex og hálft ár og í niu og hálft ár gagnvart hollensku gyllini. Vegna dollarahækkunar- innar hrapaði gull í verði og brezka pundið lækkaði og hefur ekki staðið verr gagn- vart dollaranum í þrjá mán- uði. Kostaði gullúnsan 423,25 dollara við lok viðskipta í London, en minna í París, Frankfurt, Zúrich og Hong Kong. Skriðdrekum beitt í Beirút Beirút, 15. júlí. AP. LÍBANSKI herinn beitti í dag skriðdrekum í fyrstu götubardögum í Beirút frá því í fyrrasumar. Bardag- ar brutust út er vopnaðar sveitir shíta hófu skothríð á hermenn, sem komu lögreglu til hjálpar við að brjóta upp mótmælafund shíta í gamla gyðingahverfinu í Beirút. Samkvæmt upplýsingum Rauða krossins lét einn hermaður lífið í átökunum og einn úr hópi shíta. Þrír hermenn og sex óbreyttir borgarar særðust. Tugir byssu- manna shíta voru handteknir er hermenn yfirbuguðu þá og hröktu út úr hreiðri sínu. Efnt var til mótmæla við skóla- byggingu í Wadi Abu Jamil hverf- inu til að mótmæla fyrirhuguðum brottflutningi 40 fjölskyldna flóttafólks úr röðum shíta, sem þar hafast við. Skotið var á her- menn, sem komu lögreglu til hjálpar, og voru þá sendir skrið- drekar og brynvarðir vagnar á vettvang. Jafnframt gerðu vopnaðar sveitir drúsa árás á varðstöð líb- anska hersins í fjallaborginni Al- ey. Særðust 14 stjórnarhermenn en tveir drúsar féllu í skot- bardaga. metra frá skektu hans. Báturinn kafaði samstundis og virtist sigla burt, en hann var langt innan græn- lenzkrar landhelgi er hans varð vart. Auk flugvélar hefur freigátunni Ingólfi verið snúið til Diskóflóa, en vegna vegalengda er hún ekki vænt- anleg þangað fyrr en á mánudag. Um borð í Ingólfi er Lynx-þyrla sem notuð er við gæzlustörf. Leitarflug- vélin hefur ekki orðið bátsins vör, að sögn Nilsen. Á sama tíma og danski herinn hóf leit að ókunnum kafbáti við Græn- landsstrendur hóf sænski herinn leit að öðrum kafbáti við bæinn Sunds- vall við Helsingjabotn. Mörg vitni hafa gefið sig fram síðustu daga og sagst hafa séð til ferða kafbáts í grenndinni. Leit að ókunnum kafbát á þessum slóðum í mai varð árangurslaus. Fimm farast á Orly París, 15. júlf. AP. FIMM MENN létu lífið og að minnsta kosti 63 slösuðust, sumir al- varlega, í sprengingu í suðurbygg- ingu farþegaafgreiðslunnar á Orly- flugvelli í París um hádegisbilið í dag. Óttast er að fjöldi látinna eigi eftir að aukast. Sprengjan sprakk í afgreiðslu tyrknesks flugfélags. Samtök, sem nefna sig frelsisher Armeníu, hafa lýst ábyrgð á verknaðinum, sem átti sér stað að- eins sólarhring eftir að hryðju- verkamenn úr sömu samtökum myrtu tyrkneskan diplómata í Brússel. Mikið fjölmenni var í flugstöð- inni á Orly er sprengjan sprakk. Greip um sig mikil hræðsla og fólk þusti út úr byggingunni. Margir hinna slösuðu eru alvarlega særð- ir, flestir illa brenndir, sem talið er stafa af því að sprengjan var fest við gashylki, sem einnig sprakk og olli talsverðum eldi. Samkomulag um bandarískar bækistöðvar í Grikklandi: Grundvöllur að varnar- samstarfi til lengri tíma Aþenu, 15. júlf. AP. „Bæði ríkin hafa gagn af þessu samkomulagi, og einnig AtlanLs- hafsbandalagið, sem bæði löndin tilheyra,“ sagði John Hughes aðal- talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins um samkomulag um bandarískar herstöðvar í Grikk- landi næstu fimm árin. Andreas Papandreou forsæt- isráðherra sagði fréttamönnum að í samkomulaginu væri ráð fyrir því gert að Bandaríkja- menn leggi herstöðvarnar niður á 17 mánuðum eftir að fimm ára samningstímanum lýkur, en samningurinn tekur gildi 31. desember næstkomandi. Aðili, sem vegna stöðu sinnar þekkir einstök atriði samkomu- lagsins en vildi ekki láta nafns síns getið, sagði að engin ákvæði væru í samkomulaginu er gerðu ráð fyrir því að stöðvarnar yrðu lagðar niður. í tilkynningu bandaríska sendiráðsins í Aþenu var sagt að samkomulagið væri grundvöllur að varnarsamstarfi til lengri tíma, er bæði fælist í afnotum af stöðvum og ýmissri aðstoð er varðaði öryggi Grikklands. Papandreou lýsti samkomu- laginu sem „sögulegu" og að það mundi viðhalda því jafnvægi, sem ríkti á þessum slóðum. Sam- kvæmt samkomulaginu hljóta Grikkir 500 milljónir dollara í hernaðaraðstoð frá Bandaríkja- mönnum á næsta ári, sem svarar til um 70% þeirrar aðstoðar sem Tyrkir fá frá Bandaríkjunum á sama tíma. Samkomuiagið, sem undirrit- að var í Aþenu í morgun, kemur í stað varnarsamnings Grikkja og Bandaríkjamanna frá 1953. Stjórn sósíalista hafði lýst því samkomulagi sem úreltu og hétu sósíalistar í kosningabaráttunni að sjá til þess að herstöðvum Bandaríkjamanna yrði lokað ef þeir kæmust til áhrifa. Ekki verður Walesa rekinn Virajá, 15. júlf. AP. LECH WALESA, leiðtogi Samstöðu, sem tók sér sumarfrí í leyfisleysi, verður ekki rekinn úr vinnu sinni í skipasmíðastöðinni í Gdansk, sam- kvæmt upplýsingum starfsmanna pólsku upplýsingaþjónustunnar Inter- press, sem segjast hafa „áreiðanlegar heimildir" fyrir þessum upplýsing- um. Starfsmannastjóri skipasmíðastöðvarinnar sagði hins vegar að engin ákvörðun hefði verið tekin um framtíð Walesa hjá fyrirtækinu, leið- togar þess myndu fyrst taka ákvörðun er þeir hefðu rætt við Walesa. Búist er við Walesa heim úr fríinu á sunnudag og að hann mæti til vinnu sinnar árla á mánudag. Hafnir eru nefndafundir í pólska þinginu til undirbúnings tilslökunar á herlögum í tilefni þjóðhátíðardags Pólverja 22. júlí næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.