Morgunblaðið - 17.07.1983, Síða 1
72 SIÐUR
160. tbl. 70. árg. ____________________SUNNUDACUB 17. Jl i.l 1983__________________________________Prenlsmiðjo MorgiinblaOsina
Ljósm. KÖE
SAMTAKA NÚ!
Ekki er gott að segja hvað þær stöllur ætluðust fyrir með samstilltu átaki sínu, en augsýnilega nutu þær fáeinna sólarstunda í Reykjavík í vikulokin.
iviaana, npani, in. juii. \r.
STÓRVELDIN hafa náð bráða-
birgðasamkomulagi um loka-
samþykkt á öryggismálaráðstefnu
Evrópu í Madrid. Ráðstefnan, sem
fylgjast átti með framkvæmd Hels-
inki-sáttmálans um öryggismál og
mannréttindi frá 1975, byrjaði fyrir
tveimur og hálfu ári, en komst í
sjálfheldu vegna þráteflis stórveld-
anna í síðasta mánuði.
Græddu
fætur á
ungbarn
Belgrad, 16. júlí. AP.
Læknum í Ljublana hefur tekist
að græða báða fætur á tveggja
ára pilt, og eru bjartsýnir á að
hann eigi eftir að ganga og
hlaupa á ný eins og ekkert hafi í
skorist.
Pilturinn, Dusan Valentic,
varð fyrir garðsláttuvél og
missti báða fætur ofan ökkla.
Aðgerðin tók átta stundir og
bendir allt til að hún hafi tek-
ist eins og best verður á kosið
samkvæmt upplýsingum lækn-
anna.
í Washington skýrði háttsettur
embættismaður frá því í gær, að
samkomulagið væri „mikilsverð
betrumbót" á Helsinki-sáttmálan-
um þar sem kveðið væri á um
„grundvöll til að dæma um og
meta meðferð mannréttindamála í
Sovétríkjunum og Austur-
Evrópu". Aðalsamningamaður
Bandaríkjanna á ráðstefnunni,
Max Kampelman, sagðist í dag
vera „himinlifandi" yfir lokayfir-
lýsingunni.
Helstu ágreiningsefni stórveld-
anna undir lok ráðstefnunnar
voru hernaðarítök Sovétmanna í
Afganistan og herlögin í Póllandi.
í texta samþykktarinnar er hvergi
að finna margar breytingartil-
lagna vestrænna ríkja, sem stung-
ið var upp á í nóvember, svo sem
um almennan verkfallsrétt, trufl-
un útvarpssendinga og ferðafrelsi
blaðamanna. Hins vegar benti
Kampelman á að yfirlýsingin
styddi rétt verkamanna til að
mynda og gerast félagar í frjáis-
um verkalýðssamtökum svo og
friðhelgi trúrænna minnihluta-
hópa og þjóðarbrota. Talið er að
utanríkisráðherrar flestra aðild-
arþjóðanna þrjátíu og fimm muni
formlega undirrita yfirlýsinguna
á lokafundi ráðstefnunnar, sem
haldinn verður annað hvort síðar í
mánuðinum eða í september. Áður
en af undirritun getur orðið þarf
þó að leysa úr minniháttar vanda-
málum. Möltumenn hafa t.d. neit-
að að samþykkja yfirlýsinguna
nema að bætt verði við ákvæði um
sérstaka ráðstefnu um öryggi
Miðjarðarhafsríkja.
í fréttum frá Moskvu í dag segir
að einn af frumkvöðlum Hels-
inki-nefndarinnar, andófsmaður-
jaröar án þess að springa.
Skeytinu var skotið af u.þ.b.
eitthundrað metra færi. Það
sveigði af leið og lenti fyrst á girð-
ingu, síðan á bifreið, fleytti svo
kerlingar á götunni en tókst á loft
og fór síðan gegnum tvö íbúðarhús
með því að fara inn og út um
glugga.
Blaðafulltrúi lögreglunnar í
Belfast sagði árásina „vitfirr-
ingabrjálæði", en írski lýðveldis-
herinn gekkst við henni í tilkynn-
ingu sem gefin var út í gærkvöldi.
inn Yuri Orlov, hafi byrjað hung-
urverkfall þann tíunda júlí í
þrælkunarbúðum í Úralfjöllum
þar sem hann er í haldi. Að sögn
eiginkonu hans, Irinu, ákvað Orlov
að fara í hungurverkfall í þeim
tilgangi að knýja sovésk yfirvöld
til að láta pólitíska fanga lausa.
Efnt var til ofbeldisaðgerða
sjötta daginn í röð í Norður-
(rlandi. Um 50 unglingar réðust
með bensínsprengjum að lögreglu-
stöð í Londonderry. Einnig rændu
þeir bifreiðum í Creggan-hverfinu,
lögðu þeim á mikla umferðargötu
og báru eld að.
Enginn slasaðist í aðgerðunum í
Londonderry og heldur ekki þegar
fjarstýrð sprengja sprakk á sveit-
arvegi við Carrickmore suður af
Belfast, nokkrum sekúndum eftir
að lögreglubifreið ók þar fram hjá.
Stórsala
vopna til
Taiwan
Washington, 16.júlí. AP.
BANDARÍSKA varnarmálaráðuneytið
hefur tilkynnt um meiri háttar vopna-
sölusamning við Taiwan. Ríkisstjórn
Reagans hefur að undanförnu unnið
að því að bæta sambúð Bandaríkj-
anna og Kína, helsta andstæðings
Taiwan-búa, og kemur því vopnasalan
á óvart.
í bréfi, sem varnarmálaráðuneyt-
ið sendi bandaríska þinginu í gær,
segir að Bandarikin muni selja
hergögn að jafnvirði fimm hundruð
og þrjátíu rnillj. Bandarikjadala til
Taiwan, þ.á m. sjö hundruð fimmtíu
og tvær loftvarnaeldflaugar og út-
búnað til að endurnýja úrelta
skriðdreka, sem smíðaðir voru í
Kóreu.
Vopnasölusamningurinn er ann-
ar stærsti samningur sinnar teg-
undar milli Bandaríkjanna og
Taiwan, en bandaríska þingið sam-
þykkti síðastliðið sumar að sjá eyj-
arskeggjum fyrir sextíu orrustuþot-
um af gerðinni F-5E og F-óF fyrir
um sex hundruð tuttugu og tvær
millj. Bandaríkjadala.
Bretar ætla
að afhenda
Hong Kong
Tókjé, 16. júlí. AP.
MARGARET Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands, seg-
ir í bréfí, sem hún ritaði
Deng Xiaoping, leiðtoga Kín-
verja, að Bretar muni af-
henda Kínverjum alla Hong
Kong, ekki einvörðungu
þann skika sem þeir leigja,
árið 1997, samkvæmt frétt
japanska blaðsins Asahi
Shimbun.
Blaðið vitnar í „mjög áreið-
anlegar heimildir" í Hong
Kong sem segja að Thatcher
segist vera að bíða eftir réttu
augnabliki til að leggja tillögur
um framtíð Hong Kong fyrir
breska þingið.
Hér virðist um sama bréf að
ræða og vitnað var í fyrir
skömmu þar sem sagt var að
Thatcher hefði óbeint viður-
kennt yfirráðarétt Kínverja yf-
ir nýlendunni.
Bretar tóku nýlenduna á
leigu til 99 ára árið 1898, og
rennur leigusamningurinn út
1997. Nær samningurinn til
mestallrar Hong Kong. Hong
Kong-eyja og mestur hluti
Kowloon féll Bretum í hendur
á miðri síðustu öld og hafa
breskir ráðamenn sagt að Bret-
ar muni ekki afsala sér yfir-
ráðarétti yfir þeim svæðum.
Breskir embættismenn vilja
ekki tjá sig um frétt Asahi og
segja að samningaviðræður um
framtið Hong Kong fari fram
„í kyrrþey". Breskir og kín-
verskir embættismenn fjölluðu
um framtíð Hong Kong á
tveggja daga fundi í síðustu
viku þar sem Sir Edwar Youde,
landstjóri, var viðstaddur.
Leynd hvílir yfir viðræðunum,
sem þó voru sagðar jákvæðar
af beggja hálfu og verður ann-
ar fundur eftir 10 daga.
Skriðdrekaskeyti
skotið að lögreglu
BelfaHt, 16. júlí. AP.
Hefndarverkamenn írska lýðveldishersins IRA skutu flugskeyti, sem ætlað
er að granda skriðdrekum, á lögreglustöð í Springfield Road í Belfast á
föstudagskvöld en hittu ekki og þykir kraftaverk að enginn skyldi slasast, en
flugskeytið fór m.a. í gegnum tvö íbúðarhús áður en það brann upp og félí til