Morgunblaðið - 17.07.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.07.1983, Blaðsíða 1
72 SIÐUR 160. tbl. 70. árg. ____________________SUNNUDACUB 17. Jl i.l 1983__________________________________Prenlsmiðjo MorgiinblaOsina Ljósm. KÖE SAMTAKA NÚ! Ekki er gott að segja hvað þær stöllur ætluðust fyrir með samstilltu átaki sínu, en augsýnilega nutu þær fáeinna sólarstunda í Reykjavík í vikulokin. iviaana, npani, in. juii. \r. STÓRVELDIN hafa náð bráða- birgðasamkomulagi um loka- samþykkt á öryggismálaráðstefnu Evrópu í Madrid. Ráðstefnan, sem fylgjast átti með framkvæmd Hels- inki-sáttmálans um öryggismál og mannréttindi frá 1975, byrjaði fyrir tveimur og hálfu ári, en komst í sjálfheldu vegna þráteflis stórveld- anna í síðasta mánuði. Græddu fætur á ungbarn Belgrad, 16. júlí. AP. Læknum í Ljublana hefur tekist að græða báða fætur á tveggja ára pilt, og eru bjartsýnir á að hann eigi eftir að ganga og hlaupa á ný eins og ekkert hafi í skorist. Pilturinn, Dusan Valentic, varð fyrir garðsláttuvél og missti báða fætur ofan ökkla. Aðgerðin tók átta stundir og bendir allt til að hún hafi tek- ist eins og best verður á kosið samkvæmt upplýsingum lækn- anna. í Washington skýrði háttsettur embættismaður frá því í gær, að samkomulagið væri „mikilsverð betrumbót" á Helsinki-sáttmálan- um þar sem kveðið væri á um „grundvöll til að dæma um og meta meðferð mannréttindamála í Sovétríkjunum og Austur- Evrópu". Aðalsamningamaður Bandaríkjanna á ráðstefnunni, Max Kampelman, sagðist í dag vera „himinlifandi" yfir lokayfir- lýsingunni. Helstu ágreiningsefni stórveld- anna undir lok ráðstefnunnar voru hernaðarítök Sovétmanna í Afganistan og herlögin í Póllandi. í texta samþykktarinnar er hvergi að finna margar breytingartil- lagna vestrænna ríkja, sem stung- ið var upp á í nóvember, svo sem um almennan verkfallsrétt, trufl- un útvarpssendinga og ferðafrelsi blaðamanna. Hins vegar benti Kampelman á að yfirlýsingin styddi rétt verkamanna til að mynda og gerast félagar í frjáis- um verkalýðssamtökum svo og friðhelgi trúrænna minnihluta- hópa og þjóðarbrota. Talið er að utanríkisráðherrar flestra aðild- arþjóðanna þrjátíu og fimm muni formlega undirrita yfirlýsinguna á lokafundi ráðstefnunnar, sem haldinn verður annað hvort síðar í mánuðinum eða í september. Áður en af undirritun getur orðið þarf þó að leysa úr minniháttar vanda- málum. Möltumenn hafa t.d. neit- að að samþykkja yfirlýsinguna nema að bætt verði við ákvæði um sérstaka ráðstefnu um öryggi Miðjarðarhafsríkja. í fréttum frá Moskvu í dag segir að einn af frumkvöðlum Hels- inki-nefndarinnar, andófsmaður- jaröar án þess að springa. Skeytinu var skotið af u.þ.b. eitthundrað metra færi. Það sveigði af leið og lenti fyrst á girð- ingu, síðan á bifreið, fleytti svo kerlingar á götunni en tókst á loft og fór síðan gegnum tvö íbúðarhús með því að fara inn og út um glugga. Blaðafulltrúi lögreglunnar í Belfast sagði árásina „vitfirr- ingabrjálæði", en írski lýðveldis- herinn gekkst við henni í tilkynn- ingu sem gefin var út í gærkvöldi. inn Yuri Orlov, hafi byrjað hung- urverkfall þann tíunda júlí í þrælkunarbúðum í Úralfjöllum þar sem hann er í haldi. Að sögn eiginkonu hans, Irinu, ákvað Orlov að fara í hungurverkfall í þeim tilgangi að knýja sovésk yfirvöld til að láta pólitíska fanga lausa. Efnt var til ofbeldisaðgerða sjötta daginn í röð í Norður- (rlandi. Um 50 unglingar réðust með bensínsprengjum að lögreglu- stöð í Londonderry. Einnig rændu þeir bifreiðum í Creggan-hverfinu, lögðu þeim á mikla umferðargötu og báru eld að. Enginn slasaðist í aðgerðunum í Londonderry og heldur ekki þegar fjarstýrð sprengja sprakk á sveit- arvegi við Carrickmore suður af Belfast, nokkrum sekúndum eftir að lögreglubifreið ók þar fram hjá. Stórsala vopna til Taiwan Washington, 16.júlí. AP. BANDARÍSKA varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt um meiri háttar vopna- sölusamning við Taiwan. Ríkisstjórn Reagans hefur að undanförnu unnið að því að bæta sambúð Bandaríkj- anna og Kína, helsta andstæðings Taiwan-búa, og kemur því vopnasalan á óvart. í bréfi, sem varnarmálaráðuneyt- ið sendi bandaríska þinginu í gær, segir að Bandarikin muni selja hergögn að jafnvirði fimm hundruð og þrjátíu rnillj. Bandarikjadala til Taiwan, þ.á m. sjö hundruð fimmtíu og tvær loftvarnaeldflaugar og út- búnað til að endurnýja úrelta skriðdreka, sem smíðaðir voru í Kóreu. Vopnasölusamningurinn er ann- ar stærsti samningur sinnar teg- undar milli Bandaríkjanna og Taiwan, en bandaríska þingið sam- þykkti síðastliðið sumar að sjá eyj- arskeggjum fyrir sextíu orrustuþot- um af gerðinni F-5E og F-óF fyrir um sex hundruð tuttugu og tvær millj. Bandaríkjadala. Bretar ætla að afhenda Hong Kong Tókjé, 16. júlí. AP. MARGARET Thatcher, for- sætisráðherra Bretlands, seg- ir í bréfí, sem hún ritaði Deng Xiaoping, leiðtoga Kín- verja, að Bretar muni af- henda Kínverjum alla Hong Kong, ekki einvörðungu þann skika sem þeir leigja, árið 1997, samkvæmt frétt japanska blaðsins Asahi Shimbun. Blaðið vitnar í „mjög áreið- anlegar heimildir" í Hong Kong sem segja að Thatcher segist vera að bíða eftir réttu augnabliki til að leggja tillögur um framtíð Hong Kong fyrir breska þingið. Hér virðist um sama bréf að ræða og vitnað var í fyrir skömmu þar sem sagt var að Thatcher hefði óbeint viður- kennt yfirráðarétt Kínverja yf- ir nýlendunni. Bretar tóku nýlenduna á leigu til 99 ára árið 1898, og rennur leigusamningurinn út 1997. Nær samningurinn til mestallrar Hong Kong. Hong Kong-eyja og mestur hluti Kowloon féll Bretum í hendur á miðri síðustu öld og hafa breskir ráðamenn sagt að Bret- ar muni ekki afsala sér yfir- ráðarétti yfir þeim svæðum. Breskir embættismenn vilja ekki tjá sig um frétt Asahi og segja að samningaviðræður um framtið Hong Kong fari fram „í kyrrþey". Breskir og kín- verskir embættismenn fjölluðu um framtíð Hong Kong á tveggja daga fundi í síðustu viku þar sem Sir Edwar Youde, landstjóri, var viðstaddur. Leynd hvílir yfir viðræðunum, sem þó voru sagðar jákvæðar af beggja hálfu og verður ann- ar fundur eftir 10 daga. Skriðdrekaskeyti skotið að lögreglu BelfaHt, 16. júlí. AP. Hefndarverkamenn írska lýðveldishersins IRA skutu flugskeyti, sem ætlað er að granda skriðdrekum, á lögreglustöð í Springfield Road í Belfast á föstudagskvöld en hittu ekki og þykir kraftaverk að enginn skyldi slasast, en flugskeytið fór m.a. í gegnum tvö íbúðarhús áður en það brann upp og félí til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.