Morgunblaðið - 17.07.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 17.07.1983, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚLÍ 1983 Háskólaráð: Óskar helmingshækk- unar til framkvæmda HÁSKÓLARÁÐ hefur gengiö frá fjár- Teitingabeiönum til framkvæmdaliða fyrir fjárlagafrumvarp ársins 1984. Fer ráðið fram á helmingshækkun frá fjárlögum ársins 1983, eða sem nemur 37,5 milljónum króna miðað við verð- lag í maímánuði sl. Menntamálaráðu- neytið á eftir að fara yfir tillögur há- skólaráðs um fjárveitingar til fram- kvæmdaliða. Háskólaráð hafði áður lagt fram tillögu um rekstrarfjárveitingu sem nam 279 millj. kr. Við endurskoðun menntamálaráðuneytisins var upp- hæðin lækkuð í 211 millj. kr., en það er 46,6% hækkun frá fjárlögum 1983. Guðmundur Magnússon háskóla- rektor sagði í samtali við Mbl. að taka yrði tillit til þess er litið væri á helmingshækkunarbeiðni háskól- ans varðandi framkvæmdaliðinn að fjárveitingin í ár hefði numið 13,7 millj. kr., en hún hefði öll runnið til ríkisins á ný í formi innflutnings- gjalda. Ekkert bendir til að miðbærinn sígi „MIG minnir að ég hafi einhvers staðar séð hugmyndir manna um að eitthvað benti til þess að miðbærinn væri að síga, en rök fyrir þeim hug- myndum get ég ekki fundiö í þeim hæðamælingum sem við höfum gert,“ sagði Ragnar Árnason, forstöðumaður Mælingadeildar Reykjavíkurborgar, þegar Mbl. ræddi við hann vegna fréttar um að sóknarnefnd Fríkirkj- unnar heföi farið þess á leit við Mæl- ingadeildina að athuga hvort kirkjan sigi. Þríburarnir á Djúpavogi: Lögin leyfa ekki undanþágur — segir Matthías Bjarnason „ÞAÐ er búið að veita fyrir- greiðslu að fullu og öllu, eins og Tryggingastofnun ríkisins hefur leyfi til og það er ekkert hægt að gera meira í málinu að óbreyttum lögum," sagði Matthías Bjarna- son heilbrigðis- og tryggingaráð- herra, er Mbl. spurði hvort hann hefði tekið afstöðu til óska um undanþágu til greiðslu hærra fæðingarorlofs vegna þríburanna á Djúpavogi. Matthías var þá spurður hvort hann myndi veita undan- þágu frá lögum eða beita sér fyrir lagabreytingu svo til auk- inna greiðslna gæti komið vegna þríburafæðingarinnar. Hann svaraði: „Ég ætla ekki að gefa út bráðabirgðalög um þetta. Það stendur bara eins og það er, nema það verði gerð lagabreyting, og þá verður það Alþingis að fjalla um það. Það er búið að ganga alveg eins langt og lög frekast heimila og ég hef engan rétt til þess að veita undanþágu." „Við gerðum endurmælingar á hæðapunktum á seinni hluta síð- asta áratugar og okkur fannst þá vera alveg merkilega lítill munur frá niðurstöðum fyrri mælinga. Við gerðum ekki mælingar á öllum merkjum sem komið hafði verið fyrir og um þau merki verður sára- lítið sagt.“ Aðspurður um hvar þeir hefðu aðallega mælt sagði Ragnar: „Það var mældur hringur sem lá með- fram Skúlagötu, upp hjá Ægisgötu, suður á Mela, suður í Skerjafjörð, yfir flugvöllinn, að Hótel Loftleið- um, niður Snorrabrautina og aftur niður á Skúlagötu. Þar mældum við nokkuð mörg eldri merki sem sum voru frá um 1950 og önnur frá um 1960, og þar var um alveg furðu lít- inn mun frá fyrri mælingum að ræða. Það var sjaldan sem um veru- legan mun að ræða. Þá mældum við einnig línu 1976 sem lá í gegnum miðbæinn, þá mældum við í gegn- um Tryggvagötuna og frá Háskól- anum að Landspítalanum og þar urðum við ekki heldur varir við nein merki um sig. Hins vegar mældum við frá sænska frystihús- inu, sem var, yfir hafnargarðana og yfir að Vélsmiðjunni Héðni. A þeirri línu urðum við varir við sig fremst á Ingólfsgarði og á Siysa- varnafélagshúsinu. Við drógum þær ályktanir af þessum mælingum að þetta væru mannvirki sem væru á fyllingu sem ekki væri fullsigin," sagði Ragnar að lokum. Nýi Ennisveg- urinn opnaður Nýi Ennisvegurinn verður opnaður til bráðabirgða fyrir almenna umferð í dag, sunnudag. Hinn nýi vegur liggur í fjörunni undir Ólafsvíkurenni. Nú er um 72% af framkvæmdum verktakans, Hagvirkis, lokið. í haust mun verktakinn halda áfram með verkið og ljúka því að öllu leyti fyrir 1. maí 1984. Næsta sumar verður lagt slitlag á veginn og verð- ur þá lauslega áætlaður heildar- kostnaður orðinn allt að 85 millj. kr. á núverandi verðlagi. Sirkusinn opnar í dag Fjölleikafiokkurinn Cirkus Ar- ena er kominn til Reykjavíkur. Flokkurinn, sem er danskur, kem- ur hingað frá Danmörku og mun hann dvelja hér í þrjár vikur og sýna listir sínar. í hópnum sem hingað kemur eru um 40 manns og eru þeir frá Danmörku, Þýskalandi, Rúm- eníu og Tékkóslóvakíu. Meðal þess sem fjölleikaflokkurinn býður áhorfendum sínum upp á að sjá er galdramaður, en einnig verður boðið upp á ýmislegt fleira. Cirkus Arena verður með tvær fyrstu sýningar sínar í dag, sunnudag, og hefst sú fyrri kl. 15 en sú seinni kl. 20. Aðra af meðfylgjandi mynd- um tók Ólafur Sigurvinsson, þegar sirkusinn kom í land á Seyðisfirði á miðvikudaginn og hina tók Guðjón í gærmorgun, þar sem sirkusmenn voru að byrja að koma sirkusnum fyrir á grasflötinni við Glæsibæ. Fisksölur erlendis: Minna selt og verð er lægra UM MIDJAN þennan mánuð höfðu 9 fiskiskip selt afla sinn erlendis en 12 á sama tíma í fyrra. Alls er fyrir- hugað að 16 skip selji erlendis í þessum mánuði nú, en 24 seldu í fyrra. Þá er verð erlendis heldur lægra nú en á sama tíma í fyrra og gæti það átt sinn þátt í fækkun sölu- ferða. Eftirfarandi skip hafa selt er- lendis það sem af er mánaðarins: 4. júlí seldi Patrekur BA 65,3 lestir í Hull. Heildarverð var 1.273.500 krónur, meðalverð 19,51. 5. júlí seldi Vestri BA 90,8 lestir, mest grálúðu í Hull. Heildarverð var 1.061.700 krónur, meðaiverð 11,70 krónur. Sama dag seldi Þrymur BA 62 lestir í Grimsby. Heildar- verð var 764.400 krónur, meðal- verð 12,33. 11. júlí seldi Ársæll Sigurðsson HF 101 lest í Grimsby. Heildarverð var 1.448.300 krónur, meðalverð 14,36. 12. júlí seldi Börkur NK 149,1 lest í Grimsby. Heildarverð var 2.621.100 krónur, meðalverð 17,58. 13. júlí seldi Húnaröst ÁR 106,5 lestir í Hull. Heildarverð var 1.570.000 krónur, meðalverð 14,74. Sama dag seldi Jón Vídalín ÁR 124,2 lestir í Cuxhaven. Heildarverð var 1.643.600 krónur, meðalverð 13,24. 14. júlí seldi Höfrungur II GK 45,7 lestir í Hull. Heildarverð 843.800 krónur, meðalverð 18,46. í gær seldi Vestmannaey VE 135,4 lestir í Cuxhaven. Heildarverð var 1.583.700 krónur, meðalverð 11,70. Framkvæmdir á Bakka- firði eru fjárfrekastar Unnið fyrir 143,5 millj. á vegum Vita- og hafnamálastjórnar í sumar Á ÞESSU sumri verður unnið um á vegum Vita- og hafnar- 143,5 málastjórnar. Að þessu sinni verða framkvæmdir fyrir á 40 stöðum víðs vegar um landiö að hafnarframkvæmd- milljónir kóna en í fyrra var unnið að fram- kvæmdum fyrir 100,4 millj. Frá höfninni í Bakkafirði. Handvömm hjá bönkum þegar gjaldeyrisafgreiðsla dregst — segir Sigurður Örn Einarsson, skrifstofustjóri Seðlabankans „Gengið hér er reiknað út frá opnunargengi á gjaldeyrismarkaði í London á hverjum morgni. Þegar við mætum hér kl. 8.30-9.00, þá höfum við samband við London og fáum þessi gengi og reiknum þau út. Þeg- ar það er gert er ákveðið hvernig gengið verður skráð miðað við þær breytingar sem orðið hafa á erlend- um mörkuðum," sagði Sigurður Örn Einarsson, skrifstofustjóri Seðla- bankans í samtali við Morgunblaðið vegna ábendinga til blaðsins um dæmi þess, að ekki hafi verið hægt að fá skipt í erlendan gjaldeyri í gjaldeyrisdeild Landsbankans fyrr en á tímabilinu hálf tíu og allt til þess að klukkan er langt gengin í tíu, þó svo Seðlahankinn gefi út gengisskráningu klukkan 9.15 og bankar opni þá. „Allt tekur þetta sinn tíma, til dæmis það að taka ákvörðum um gengisbreytingar í samræmi við áorðnar breytingar erlendis. Venjulega erum við búnir hér í Seðlabankanum að reikna þetta út á bilinu 9.10-9.20. Ef að bankarnir geta ekki byrjað að höndla með nýja gengið fyrr en klukkan er langt gengin tíu, þá er þar ákveðin handvömm hjá þeim. Eðlilegast er að bankarnir byrji með nýtt gengi á morgnana, en skipti ekki um á miðjum degi, eins og var hér fyrir nokkrum árum. Að ósk bankanna var þessu breytt og reynt að gera þetta svona og þá var þeim sagt að gengið gæti verið tilbúið um 9.15 og það á að standast nema að eitt- hvað óvænt komi fyrir," sagði Sig- urður ennfremur. Jóhann Ágústsson, afgreiðslu- stjóri í Landsbankanum sagði að farið væri að afgreiða eftir nýju gengi strax og það bærist bankan- um frá Seðlabankanum. Daníel Gestsson, yfirverk- fræðingur Vita- og hafnarmála- stjórnar, sagði í samtali við Mbl., að unnið yrði við það sem kallað væri almennar hafnir fyrir 132 milljónir, en að með- töldum landshöfnum, ferju- bryggjum og sjóvarnargörðum yrði upphæðin sem unnið væri fyrir 143,5 milljónir. Hann sagði, að ríkið styrkti fram- kvæmdir við hafnargerð að þremur fjórðu hlutum, en fram- kvæmdir við landshafnir, ferju- bryggjur og sjóvarnargarða væru að fullu studdar af ríkinu. Fjárfrekasta framkvæmdin á þessu sumri er á Bakkafirði, en þar verður reistur brimvarnar- garður úr grjóti og er þar um að ræða fyrsta áfanga í gerð nýrrar hafnar sem á að rísa sunnan við núverandi höfn. Fjárveiting á þessu sumri í þennan fyrsta áfanga er 14 milljónir. Áðrar helstu framkvæmdirnar í sumar verða í Hafnarfirði, en þar verð- ur 8,4 milljónum veitt í dýpkun hafnarinnar og lagfæringu á suðurhöfninni, og í Bolungavík, en þar verður komið fyrir 72 metra löngum stálþilsbakka til að bæta löndunaraðstöðu tog- ara. Þeirri framkvæmd er út- hlutað 8 milljónum. Þá verða einnig miklar framkvæmdir á Stöðvarfirði, Hofsósi og Akur- eyri. Daníel sagði, að öll stærstu verkin yrðu boðin út og að heild- aruDDhæð útboðinna fram-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.