Morgunblaðið - 17.07.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚLÍ 1983
27
„Við eigum hlut í loðnustofninum“
— segir Andres Lava Olsen í Fuglafirði um rétt Færeyinga til norsk-íslenzka stofnsins
„MÉR fínnst hart að íslendingar
og Norðmenn hafí einir rétt til
þess, að ákveða hve mikið af
loðnu skuli veitt árlega, þar sem
loðnan er um fjórðung ársins inn-
an lögsögu Grænlands. Með þessu
er ég ekki að véfengja rétt íslend-
inga til loðnuveiða og ákvarðana-
töku um veiðimagn, en mér fínnst
eðlilegt að Grænlendingar séu þar
með,“ sagði Andreas Lava OJsen,
framkvæmdastjóri fiskimjölsverk-
smiðjunnar Hafsbrúnar í Fugla-
fírði, í samtali við Morgunblaðið.
„Þess vegna sendi ég Paul
Schluter, forsætisráðherra Dan-
merkur, orðsendingu þess efnis
er hann var hér í Færeyjum. Þar
gat ég þess, að danska ríkis-
stjórnin gætti ekki nægilega
hagsmuna Færeyinga í þessu
tilfelli, en svar hef ég ekki enn
fengið. Mér finnst það hart, að
Norðmenn geti gert tilkall til
alls þessa hafsvæðis vegna Jan
Mayen og Svalbarða. Það ergir
marga Færeyinga. Danir ættu
að gæta betur hagsmuna okkar
hvað varðar þessar loðnuveiðar,
við eigum rétt á okkar hlut þar,“
sagði Andres Lava Olsen.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Dagsferöir sunnud. 17. júlí:
1. Kl. 8.00 Þórsmörk. Verö kr.
400. Fritt fyrir börn.
2. Kl. 13.00 Tröllafoss — Star-
dalur. Létt ganga. Stuölaberg
og Skessukatlar. Verö kr. 200,
frítt fyrir börn.
3. Esja — Hétindur (909 m).
Verö kr. 200, fritt fyrir börn.
Brottför frá bensínsölu BSÍ.
Sjáumst.
Útivlst.
Trú og líf
Almenn samkoma veröur í Fella-
skóla í kvöld kl. 20.30. Ræöu-
maöur: Tony Fitzgerald. Beöiö
fyrir sjúkum. Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11796 og 19533.
Dagsferðir
Ferðagélagins:
Laugardag 16. júli — Kl. 09:
Ökuferö um Mýrarnar. Ekiö er
niöur aö sjó og síöan í Hítardal.
Verö kr. 400.
Sunnudag 17. júlf:
1. Kl. 08. Baula (934 m) —
Noröurárdalur. Verö kr. 400.
2. Kl. 13. Botnsdalur — Glymur
(hæsti foss landsins). Verö kr.
200.
Fariö frá Umferöarmiðstöö-
inni, austanmegin. Farmiðar
viö bít.
Miðvikudag 20. júlí:
1. Kl. 08 Þórsmörk — dvöl í
lengri tima eöa dagsferö.
2. Kl. 20. Viöey — fariö frá
Sundahöfn.
Fararstjóri: Lýöur Björnsson.
Allar upplýsingar um feröirnar á
skrifstofunni, símar 19533 og
11798
Feröafélag íslands.
Miálprœðijherinn
Sunnudag kl. 20.30, kveöju-
samkoma fyrir lautinant Míriam
Óskarsdóttur. Hermannavígsla.
Brigader Ingibjörg og Óskar
Jónsson stjórna.
Vidar Beck og Arne Brant Valer
syngja.
Velkomin.
ÚTIVISTARFERÐIR
Sumarleyfisferöir
Hornstrandir. Snjórinn er horf-
inn og blómskrúöiö tekiö viö.
Hornstrandaferðir:
1. Hornvfk — Reykjafjörður.
22.7.—1.8. 11 dagar. 3 dagar
með burö, síöan tjaldbækistöö i
Reykjafirði. Fararstj. Lovisa
Christiansen.
2. Reykjafjörður 22.7.—1.8. 11
dagar. Nýtt: Tjaldbækistöö meö
gönguferöum f. alla. Fararstj.
Þuríöur Pétursdóttlr.
3. Hornstrandir — Hornvfk
29.7.—6.8. 9 dagar. Gönguferöir
f. alla. Fararstj. Gísli Hjartarson.
4. Suður Strandir 30.7.—8.8.
Bakpokaferö úr Hrafnsfiröi til
Gjögurs. 2 hvíldardagar.
Aðrar ferðir:
1. Eldgjá — Strútslaug (bað) —
Þórsmörk 25. júlf — 1. ágúst.
Góö bakpokaferö.
2. Borgarfjörður eystri —
Loðmundarfjörður 2.—10.
ágúst. Gist í húsi.
3. Hálendishringur 4.—14.
ágúst. 11 daga tjaldferö m.a.
Kverkfjöll, Askja, Gæsavötn.
4. Lakagfgsr 5.-7. ágúst. Létt
ferö. Gist i húsi.
5. Eldgjá — Strútslaug (bað) —
Þórsmörk 8.—14. ágúst. 7 dag-
ar.
6. Þjórsárver — Arnarfell hið
mikla 11.—14. ágúst. 4 dagar.
Einstök bakpokaferö. Fararstj.
Höröur Kristinsson, grasafræö-
ingur.
7. Þórsmörk. Vikudvöl eöa 'h
vika í góöum skála í friösælum
Básum.
Helgarferðir 22.-24. júlf
Veiðivötn — Hreysið.
2. Eldgjá — Laugar (hringferð:
3. Þórsmörk. Upplýsingar og
framiöar á skrifstofunni Lækjar-
götu 6a, sími: 14606 (simsvari).
Sjáumst,
ÚTIVIST
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11796 og 19533.
Sumarleyfisferðir
1. 19,—25. júlf (7 dagar):
Baröastrandarsýsla. Gist í hús-
um. Skoöunarferðir frá gististað.
2. 20,—24. júlí (5 dagar);
Tungnahryggur — Hólamanna-
leiö. Gönguferð meö viöleguút-
búnaö.
3. 22.-26. júlí (5 dagar): Skaftár-
eldahraun. Gist á Kirkjubæjar-
klaustri. Skoöunaferöir í byggö
og óbyggö.
4. 22.-27. júlí ( 6 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
UPPSELT.
5. 3.—12. ágúst (10 dagar):
Nýidalur — Heröubreiöarlindir
— Mývatn — Egilsstaöir. Gist í
húsum.
6. 5.—10. ágúst (6 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
Gönguferð milli sæluhúsa.
7. 6.—12. ágúst (7 dagar):
Fjöröur — Flateyjardalur. Gist í
tjöldum. Ökuferð/gönguferö.
8. 6.—13. ágúst (8 dagar):
Hornvik — Hornstrandir. Tjald-
aö í Hornvík og farnar dagsferöir
frá tjaldstað.
9. 12.—17. ágúst (6 dagar):
Landmannalaugar — Þórsmörk.
Gönguferö milli sæluhúsa.
10. 13.—21. ágúst (9 dagar):
Egilsstaöir — Snæfell — Kverk-
fjöll — Jökulsárgljúfur —
Sprengisandur. Gist í tjöldum/-
húsum.
11. 18.—21. ágúst (4 dagar):
Núpsstaöaskógur — Grænalón.
Gist í tjöldum.
12. 18.—22. ágúst (5 dagar):
Höröudalur — Hitardalur —
Þórarinsdalur. Gönguferð meö
viðleguútbúnað.
13. 27.—30. ágúst (4 dagar);
Noröur fyrir Hofsjökul. Gist í
húsum.
Pantiö tímanlega í sumarleyfis-
feröirnar. Upplýsingar og far-
miöasala á skrifstofunni Öldu-
götu 3. Simar: 19533 og 11796.
Feröafélag íslands.
Því ekki að byrja á toppnum
og fljúga beint til Sviss?
Við bjóðum þér
hagstætt heildarverð
fyrir flug + hótel eða bílaleigubíl
Flestir munu sammála um að hápunktur
hverrar ökuferðar um meginland Evrópu
sé heimsóknin til Sviss. Þar eru fjöllin eins
og þau gerast fegurst, dalirnir eins og þeir
verða gróðursælastir og samspil nátt-
úrunnar allrar eins og það gerist hljóm-
þýðast.
Með vikulegu áætlunarflugi til Zurich
opnum við þér greiðfæra og beina leið til
þessarar frábæru borgar og fallega lands.
Við bjóðum þér flug + hótelgistingu á
hagstæðu heildarverði og hyggirðu á öku
ferð um Evrópu með viðkomu í Sviss er
sjálfsagt að byrja á toppnum og fljuga beint
á þennan skemmtilega áfangastað. Og
þegar þú reiknar út bílaleigutilboðin er sjálf-
sagt að spyrja: Er söluskattur innifalinn? Er
tjónatrygging innifalin? Lendi ég í óvænt-
um aukakostnaði þegar til útlanda er kom-
ið eða er ég með rétt verð í höndunum? Við
getum svarað öllum þessum spurningum
játandi. Við gefum hér upp verð sem innifel-
ur þetta allt og verndum þig fyrir öllum
aukakostnaði í erlendum gjaldeyri.
Verð miðað við 4 í bíl 1 vika 2 vikur 3 vikur
A — Fiat Panda 14.388 15.882 17.425
B — Ford Fiesta 14.465 16.137 17.808
C - VW Golf o. fl. 14.671 16.548 18.425
D — Kadett sjálfsk. 15.069 17.344 19.619
Innifalið: Flug söluskattur. tryfígingar. ótakmarkaður akstur. Bkki innifalið: Flugvallarskattur. Verð miðast við hvern einstakling. Verð miðast við gengi l. júlí 1983.
Alpaævintýrin í Sviss—ógleymanleg upplifun! 1