Morgunblaðið - 17.07.1983, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 17.07.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚLÍ 1983 33 Frá móttökunni f skrifstofu sænska sendiráósins. Á mjndinni eru Svíarnir ásamt þeim unglingum sem héðan fóru til Svíþjóðar og fararstjórum sínum. w Atján sænskir unglingar í heimsókn lagið þeim matarboð á Garðaholti Sagði Pálmar ólafsson, móttöku- í Garðabæ, en þar var síðan haldin stjóri, að unglingunum hefði þótt kvöldvaka og síðan var diskótek. það einn hápunkta ferðarinnar. Athugasemd frá Brunamálastofnun HÉR Á landi hafa dvalið í hálfan mánuð 18 sænskir unglingar á aldr- inum 12—14 ára. Er koma þeirra hingað til lands á vegum alþjóðlegr- ar hreyHngar sem heitir CISV (Children’s international summer villages) en héðan frá íslandi höfðu áður farið á þeirra vegum 18 íslensk- ir unglingar til Svíþjóðar. Unglingarnir sem hingað komu eru frá Bohuslán og komu þau 2. júlí og hafa dvalið á heimilum þeirra unglinga sem fóru til Sví- þjóðar í júní. Parið var með þau í skoðunar- ferðir og var m.a. farið að Gull- fossi, Geysi, Laugarvatni og Þing- völlum. Þá fóru þau einnig austur í Þórsmörk. Einnig var farið með þau í skoð- unarferð um Reykjavík og var þá móttaka fyrir þau í skrifstofu sænska sendiráðsins, Lágmúla 7, en þar fræddi m.a. Dr. Esbjurn Rosenblad, sendiráðunautur, þau um ísland og samskipti þess við Svíþjóð. Þá skoðuðu þau einnig atvinnu- fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og á fimmtudag hélt Norræna fé- Morgunblaðinu hefur borist eftirfar- andi athugasemd frá Brunamálastofn- un ríkisins: „í frétt í Morgunblaðinu þann 12. júlí sl. undir fjrirsögninni „Einangrun- arplastið kemur fullbúið úr tækjasam- stæðunni" er sagt frá nýrri framleiðslu hjá Nkagaplasti hf. á Akranesi. Þar kemur fram að Brunamálastofnun ríkisins hafi viðurkennt einangrunar- plastið sem tregtendranlegt. Síðan seg- ir: Þetta einangrunarplast flokkast í sama flokk og glerull og má því notast sem einangrun í timburhús. Samkvæmt uppsetningu fréttar- innar mætti ætla að Brunamála- stofnun hafi viðurkennt að plastið væri jafngott og glerull gagnvart eldi. Það er þó fjarri sanni, því að viðurkenningin á aðeins við treg- tendranleika plastsins og i viður- kenningunni segir einnig að notkun plastsins sé háð sömu skilyrðum og notkun annarrar brennanlegrar ein- angrunar sbr. greinar 7.3.3.4 — 7.3.3.6 í byggingarreglugerðinni. Samkvæmt byggingarreglugerð- inni er heimilt að nota brennanlega einangrun í ákveðnar gerðir timbur- húsa t.d. íbúðarhús, en ekki í stærri timburhús svo sem skóla, hótel og slíkar byggingar. Brennanlega einangrun er ekki hægt að nota í veggi sem eiga að uppfylla ákveðin skilyrði um bruna- mótstöðu, t.d. B 60-veggur milli sam- byggðs íbúðarhúss og bílskúrs. Þar kemur helst til greina að nota press- aða steinull því hún gefur einnig mun betri eldvörn en glerullin." Björgvin HaKdórsson og Magnús Kjartansson (áka íjúf iog fynr gesú okkar kl. 19:30 Metsölublad á hverjum degi! Nánarl upplyslngar fást hjá söluskrifstofum okkar, umboðsmönnum og feröaskrlfstofum Opinhús fyrir sumardvalargesti Flugleióaí sumar! Vikugisting í 2ja til 4ra manna eða 6 manna húsum í mjög skemmtilegu sumarhúsahverfi við Móseldalinn, sem er einhver fallegasti dalur í Evrópu. Aðeins 2ja klukkustunda akstur frá Luxemborg. Leiga á sumarhúsi frá 10.673.- krónum á viku. Svartlskógur Ævintýrabókaumhverfi Svartaskógar gerir dvölina ánægjulegri, enda varla völ á fallegra umhverfi. Vikggisting i fallegum íbúðum í Alpahúsum. 2ja manna stúdíó eða 2-4ra manna íbúðir. Leiga á sumarhúsi frá 4.940 - krónum á viku. Elfel (nágrenni Móseldalsins bjóðast 2ja til 4ra manna íbúðir í stórglæsilegu sumarhúsahverfi með sundlaug, tennisvöllum, billjard, minigolfi, vínstofu, bjórkrá, barbequekofa, útitafli, og hvers konar aðstöðu. Leiga á sumarhúsi frá 7.685.- krónum á viku. Aðrir staðlr Við bjóðum einnig 3-5 manna íbúðir á fallegum stað við Bayaraskóg, að ógleymdum húsunum í Lochanully við Inverness í Skotlandi, en pað er nú önnur saga. Leyfðu okkur að segja bér allt um sumarhúsaferðirnar. Komdu, hringdu, skrifaðu. FLUGLEIÐIR Gott fólk hjá traustu félagi P.S. Það á ekki að þurfa að taka fram, að sumarhúsum og ibúðum Flugleiða i Pýskalandi fylgir allur nauðsynlegur búnaður án aukagreiðslu Rafmagn, hiti, vatn, handklæði, borðbunaður, útvarp og jafnvel litasjónvarp er innifalið í verðinu í tengslum við sumarhúsin i Pýskalandi minnum viö á Pex gjaldið til Luxemborgar, Frankfúrt eöa „flug og bil' Cengi 13/7 '83

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.