Morgunblaðið - 17.07.1983, Side 35

Morgunblaðið - 17.07.1983, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚLÍ 1983 35 Matthías Bjarnason um áætlunarleyfisveitingu Helga Jónssonar: Til að tryggja betur flug- samgöngur við Grænland Semundur GuAvinsson — Aðfinnslur Flugleiða vegna franska leiguflugsins eiga fyllilega rétt á sér „EINGÖNGU til að tryggja betur flugsamgöngur við Kulusuk og Grænland," sagði Matthías Bjarnason samgönguráðherra, er hann var spurður ástæðu þess að hann hefur ákveðið að veita Helga Jónssyni áætlunarleyfi til Grænlandsflugs. Aðspurður um hvort hann teldi þá að Flugleiðir hefðu ekki staðið sig í stykkinu sagði hann: „Ég er ekkert að segja neitt um það. Ég held að þeir segi það mest sjálfir, að þeir hafa ekki alltof mikinn áhuga á því.“ Þar með væri útilokað að Flug- leiðir gætu síðar haft upp í þann kostnað sem félagið hefur lagt í vegna áætlunarflugsins til Narss- arssuaq og miðaður var við fram- tíðaruppbyggingu þessa flugs. Að lokum skal ítrekað, að Flug- leiðum hafa ekki borist neinar skaðabótakröfur vegna þessarar ákvörðunar, enda stendur félagið við allar skuldbindingar gagnvart farþegum sínum. Þeim sem eiga staðfestar pantanir til Narss- arssuaq verður séð fyrir fari þang- að eða boðið upp á ferðir til Angmaksalik í staðinn. Matthías sagðist ákveðinn í því að veita Helga áætlunarleyf- ið, þrátt fyrir öll mótmæli og um ástæðu þeirrar ákvörðunar sagði hann ennfremur: „Borgar- stjórinn í Kulusuk og fleiri hafa mælt mjög ákveðið með því. Helgi hefur stundað þarna leiguflug með mikilli prýði og það er mikill þrýstingur frá þessum aðilum. Eg tel að við ís- lendingar eigum góða samvinnu við Grænlandsstjórnina og eig- um því að taka tilit til óska og þarfa grænlenskra aðila. Þetta hefur ekki verið talinn það ábatasamur flugrekstur og hann ekki verið eftirsóttur, því tel ég einnig feng í því að Helgi vill sinna því. Þá var hann og fyrst- ur til að svara ráðuneytinu." Matthías var í framhaldi af þessu spurður hver ástæða þess væri að frönsku flugfélagi var veitt heimild til leiguflugs milli Keflavíkur og Parísar, en það er í sambandi við sölu ferða til Parísar á vegum Hagkaupa. „Það er mál sem ég hafði ekki hugmynd um, en veitt var heim- ild fyrir einhvern tíma í vor, og það var fyrir mína ráðherratíð. Mér finnast aðfinnslur Flug- leiða út af því máli eiga fullan rétt á sér. Það er of seint að stöðva þetta núna, en það verður Matthías Bjarnason að gera allt sem hugsanlegt er með reglugerðarbreytingu til að koma í veg fyrir að slíkt endur- taki sig,“ svaraði Matthías Bjarnason samgönguráðherra. SÖFN, SAGA OG SÝNINGAR Samstarfsnefnd um . ferðamál í Reykjavík: Gefur út bækling um söfn og merka staði Á FUNDI borgarráðs í desember á síðasta ári var kosin sarastarfsnefnd sem gerir tillögur til borgarráðs og hagsmunaaðila í feröamálastarfsemi um sameiginlegar aðgerðir á sviði ferðamála. Nefndin hefur á sl. vik- um unnið að útgáfu bæklings sem geymir upplýsingar um söfn, sýn- ingar o.fl. í Reykjavík, og er hann þegar kominn út á íslensku. I samstarfsnefndinni eiga sæti 3 fulltrúar tilnefndir af borgarráði og átta fulltrúar tilnefndir af nokkrum samtökum og hags- munaaðilum. Bæklingi samstarfs- nefndarinnar um söfn og sýningar í Reykjavík verður dreift til þeirra sem annast þjónustu við ferða- menn í Reykjavík og innan skamms verður hann gefinn út á ensku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.