Morgunblaðið - 30.08.1983, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 30.08.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1983 5 43 þúsund manns hafa séð iðn- sýninguna AÐSÓKNIN á idnsýjiingiina í Laug- ardalshöll var meö eindtemum góö um helgina, um 13 þúsund manns komu báða helgardagana, 5.500 á laugardeginum og 7.500 á sunnudeg- inum. Sagði Sigurjón Jóhannsson, blaðarulltrúi sýningarinnar, að seld- ir miðar á sýninguna væru orðnir 43 þúsund, en börn yngri en sez ára fá frítt inn, þannig að heildartala gesta er nokkru hærri. Sýningunni lýkur sunnudaginn 4. september og taldi Sigurjón að það væri varlega áætlað að búast við að fjöldi sýningargesta færi upp í 60 þúsund manns. Að vanda er fjölbreytt skemmtidagskrá á sýningunni. Klukkan hálffimm í dag skemmta þeir Magnús Þór Sigmundsson, söngvari og lagasmiður, Ingólfur Ragnarsson, töframaður og þýsk- ur eldgleypir. Klukkan sex og níu eru tísku- sýningar, en þegar klukkan er fimmtán mínútur gengin í ellefu koma fram stúlkur úr fimleika- flokki Gerplu og karateflokkurinn Vígamenn. Sýningin er opin á virkum dögum frá þrjú til ellefu, en Höllinni er lokað klukkan tíu. Akureyri: Skartgrip- um stolið Akureyri, 29. ágúst ADFARANOTT síðastliðins laug- ardags var framið innbrot á Akur- eyri. Brotist var inn í gullsmíða- vinnustofu Sigtryggs og Péturs við Brekkugötu. Þjófarnir brutu gat á útstillingarglugga og teygðu sig eft- ir þýfinu í sýningarglugganum. Tal- ið er að verðmæti þýfisins nemi um 50—60 þúsund krónum. Þjófavarnarkerfi mun vera í búð- inni en svo virðist sem það hafi ekki farið í gang. G.Berg. Breyting- ar á Helgar- póstinum Ingólfur Margeirsson hefur verið ráðinn ritstjóri Helgarpóstsins frá og með 1. september næstkomandi. Hann tekur við af Birni Vigni Sigur- pálssyni. Ingólfur mun starfa með Arna Þórarinssyni, ritstjóra. Nokkrir starfsmenn Helgar- póstins hafa gert Vitaðsgjafa, út- gáfufélagi Helgarpóstins, tilboð um kaup á nafninu Helgarpóstin- um. Viðræður hafa staðið um nokkra hríð og var tilboðið lagt fram í gær. Stjórn Vitaðsgjafa mun væntanlega fjalla um tilboðið síðar í vikunni. Tapaði myndavél SÆNSKIJR ferðamaður tapaði Chin- on model Bellami myndavél sinni 21. júlí síðastliðinn, líklega á leið- inni frá hóteli í Reykjavík til Kefla- víkurflugvallar. Framleiðslunúmer vélarinnar er 181572. Skilvís finnandi vinsamlega látið rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík vita. HEIÐURSGESTUR:. RRISCJAN AÐALSTEinSSON,SRIPSTJORI GULLFÖSS r Minning brautryðjandans í glæstum farþegaflutningum verður í heiðri höfð I LÖRATERÐ M/S EDDU 14.9. enda margt sem minnir á gömlu góðu Gullfossferðirnar í skipulagningu þessarar ferðar. Þar verður allt með glæsibrag: Siglt verður til Kaupmannahafnar. Matur er innifalinn í fargjaldi, bæði morgunverður og kvöldverður. Aðstandendur farþega geta nú fylgt þeim að skipshlið. Kampavínsveisla og stórkostleg flugeldasýning verður á ytri höfninni í Reykjavík strax eftir brottför, þ.e. kl. 23.15. Glæsiveisla (Gala dinner) verður á Eyjafirði, eftir síðustu viðkomu á landinu, en hún verður á Akureyri. Ennfremur eru innifaldar 3 nætur á góðu hóteli í Kaupmannahöfn, og flug heim. Brottför verður, þessu sinni, kl. 23.00. Siglt verður norður um land og komið við á Isafirði og Akureyri. Þaðan verður stefnan tekin á Bergen og siglt suður með Noregs- strönd, innan skerjagarðs. Til Kaupmannahafnar verður komið kl. 9 að morgni mánudagsins 19. september. Alla leið verða úrvals skemmtikraftar um borð auk danshljómsveitar skipsins. Heildarverð kr. 12.500,fyrir hvorn í tveggja manna klefa. Afbragðs greiðsluskilmálar. Gengi 2G.Q '83, Nánari upplýsingar og bókanir á skrifstofu okkar sem og á eftirtöldum ferðaskrifstofum: Ferðaskrifstofan Atlantic Ferðaskrifstofan Úrval Samvinnuferðir-Landsýn FARSKIP AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.