Morgunblaðið - 17.09.1983, Side 1
44SIÐUR OGLESBOK
212. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
„Þrýstingur minnkar“
— tilkynnti flugstjóri þotunnar eftir að hún varð fyrir skotinu
Tókýó, 16. september. AP.
FLUGSTJÓRI suðurkóresku
farþegaþotunnar, sem Rúss-
ar skutu niður fyrir tveimur
vikum, náði að hafa útvarps-
samband við Tókýó, er þotan
hafði orðið fyrir eldflaug
Rússa: „Þrýstingurinn
minnkar óðfluga,“ tilkynnti
hann ekki 50 sekúndum síð-
ar. Þetta hefur mátt greina
með því að hljóðmagna með
sérstökum hætti síðustu orð
flugstjórans, þannig að nú
má heyra þau, enda þótt það
hafi ekki tekizt áður. Var frá
þessu skýrt af flugmála-
stjórninni í Japan í dag.
Skyndilegur og ofsalegur af-
þrýstingur í flugvél í þessari
hæð myndi bana sérhverjum
um borð á augabragði og jafn-
vel hafa það í för með sér, að
hún splundraðist. Ekkert virð-
ist hins vegar benda til þess, að
slíkt hafi gerzt að þessu sinni,
heldur tekið einhvern tíma.
Matsumi Suzuki, yfirmaður
heyrnarrannsóknastofnunar
Japans, sagði í dag, að með því
að beita sérstökum rafeinda-
tækjum mætti greina hljóð í
sundur þannig að aðskilja
mætti mannsrödd frá hávaða í
kring. Sagði Suzuki, að rödd
flugstjórans hefði virzt mjög
æst og ólík því, sem heyra mátti
af öðrum tilkynningum, er hann
■ sendi frá sér fyrr í þessu örlaga-
þrungna flugi.
Fyrirhugaðri heimsókn Reagans mótmœlt
Námsmenn á Filippseyjum sjást hér brenna brúðu af Reagan Bandaríkjaforseta í lok mótmælagöngu, sem 5.000
námsmenn tóku þátt í í gær. Námsmennirnir voru að mótmæla fyrirhugaðri heimsókn Bandaríkjaforseta til
Manila í nóvember nk. Geysileg ólga er nú á Filippseyjum í kjölfar morðsins á stjórnarandstöðuleiðtoganum
Aquino.
Samtímis því sem ísraelsmenn hafa byrjað brottför með her sinn frá Líban-
on, hefur ófriðurinn þar f landi magnast að miklum mun. Myndin sýnir
hervagna ísraelsmanna halda um borð í skip við strönd Suður-Líbanons.
Líbanon:
Loftárásir á
stöðvar drúsa
Stjórnarflugvél skotin niður
Beirút, 16. september. AP.
SVO VIRTIST í dag sem allar
tilraunir til þess að koma á
friði í Líbanon væru sigldar í
strand og Amin Gemayel, for-
Israel:
Likud-bandalagið
eykur íylgi sitt
Jerúsalem, 16. september. AP.
ÞRÁTT fyrir afsögn Menachem Begins sem forsætisráðherra ísraels, hefur
Likud-bandalagið tvöfaldað forskot sitt fram yfir Verkamannaflokkinn, hvað
fylgi snertir. Kemur þetta fram í skoðanakönnun, sem birt var í gær, en
samkvæmt henni fengi Likud-bandalagið undir forystu Yitzhak Shamirs 52 af
120 þingsætum þjóðþingsins, færu kosningar fram nú. Verkamannaflokkurinn
fengi ekki nema 46 þingsæti samkvæmt þessari skoðanakönnun, sem náði til
1.183 manna.
seti, gaf bæði landher og flug-
her landsins fyrirskipun um
að taka frumkvæðið í þeim
hernaðarátökum, sem átt hafa
sér stað að undanförnu uppi á
hálendi landsins og ekkert lát
virðist nú á. Ein af herþotum
stjórnarinnar var nær strax
skotin niður og önnur laskað-
ist verulega, er þær steyptu
sér til árása á stöðvar upp-
reisnarmanna. Landhernum
virtist aftur á móti vegna mun
betur og síðdegis í dag hafði
honum tekizt að reka upp-
reisnarmenn á brott úr nokkr-
um fjallaþorpum og fleiri mik-
ilvægum stöðvum þeirra á
hæðunum umhverfis Beirút.
Flugherinn í Líbanon ræður að-
eins yfir fáeiiium úreltum herþot-
um og er því ekki talið, að þær
muni gegna miklu hlutverki í bar-
áttunni við uppreisnarmenn.
Stjórnin er sögð reiða sig fyrst og
fremst á landherinn og yfirmaður
hans, Ibrahim Tannous hershöfð-
ingi, sagði í ávarpi til hermanna
sinna í dag: „Líbanon verður lim-
lest og því skipt í hluta, ef þið
standið ykkur ekki.“
Bardagar breiddust enn einu
sinni út til úthverfa Beirút í dag
og þar ientu sjóliðar úr banda-
ríska flotanum í fallbyssuskot-
hríð, þar sem þeir gættu alþjóða-
flugvallarins við borgina. Þá lentu
flugskeyti í grennd við sendiráð
Breta og Bandaríkjamanna f vest-
urhluta Beirút.
Begin lagði fram formlega afsögn
sína á fimmtudag og hafði þá beðið
með hana í 18 daga eða þangað til
Shamir taldi sig öruggan með
stuðning meiri hluta þingsins. Beg-
in verður samt áfram forsætisráð-
herra, þar til ný ríkisstjórn hefur
svarið embættiseið. Afsögn Begins
hefur það hins vegar í för með sér,
að Chaim Herzog, forseti landsins,
mun eiga viðræður við leiðtoga
allra stjórnmálaflokkanna á þingi
til þess að ganga úr skugga um það
í reynd, hvaða stjórnmálamaður
hafi sterkasta aðstöðu til þess að
mynda nýja ríkisstjórn.
Shamir stendur þar bezt að vígi,
því að allir þeir sex stjórnmála-
flokkar, sem aðild eiga að fráfar-
andi ríkisstjórn, hafa gefið honumn
skriflega yfirlýsingu þess efnis að
þeir muni styðja hann sem forsæt-
isráðherra í nýrri ríkisstjórn. Engu
að síður telur Verkmannaflokkur-
inn, að hann eigi fyrstur að fá tæki-
færi til þess að mynda nýja stjórn,
þar sem þingflokkur hans á þjóð-
þinginu er stærstur.
„Síðustu
verk mín
bönnuð“
Sovézkl leikstjórinn
Lyubimov um ritskoðun
í Rússlandi
Milanó, 16. september. AP.
HINN kunni sovézki leikstjóri,
Yuri Lyubimov, sem gagnrýnt hef-
ur stjórnvöld í Kreml fyrir af-
skiptasemi þeirra af andlegu lífi í
Sovétríkjunum, sagði í dag í
blaðaviðtali á Ítalíu þar sem hann
hefur dvalið að undanförnu, að
hann vildi snúa heim til Sovétríkj-
anna en aðeins samkvæmt skil-
yrðum hans sjálfs.
„Síðustu þrjú verk mín heima
í Rússlandi hafa verið bönnuð
og ég get því ekki gert áætlanir
um fleiri. Hvernig á ég að geta
búið við þessi skilyrði," var haft
eftir Lyubimov í blaðinu Corri-
era Della Sera í Mílanó.
„Listamennirnir, sem ég
starfa með, eiga eftir að biðja
mig um að hætta, ef ég fæ ekki
að búa til verk handa þeim. Þeir
eru vonsviknir," sagði Lyubimov
ennfremur, en tók það jafn-
framt fram, að hann hygðist
ekki biðja um pólitískt hæli á
Vesturlöndum.
Lyubimov var boðið til Bol-
ogna, þar sem kommúnistar
fara með völd, til þess að
stjórna „Tristan og Isolde" í
borgarleikhúsinu þar. Hann
hefur skýrt frá því, að síðasta
tilraun hans til þess að sviðsetja
„Boris Godunov" eftir Pushkin
heima í Rússlandi hafi verið
bönnuð af sovézku ritskoðun-
inni. Lyubimov, sem áður hefur
hlotið mikið lof fyrir leikhús-
verk sem hann sviðsetti í Lond-
on, sagði í dag, að hann hefði
fengið mörg tilboð um að
stjórna leikhúsverkum á Vest-
urlöndum, m.a. frá ítölskum og
sænskum leikhúsum.