Morgunblaðið - 17.09.1983, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1983
11
FramkvKmdanefnd um byggingu minnisvarðans ásamt Pálfnu Þ. Waage,
talið frá vinstri: Hjáimar Níelsson, Ástvaldur Kristófersson, Pálína Þ. Waage
og Garðar Eymundsson. Á myndina vantar tvo nefndarmenn, þá Friðþjóf
Þórarinsson Og Gunnþór Björnsson. Myndir Mbl. 6l»fur Már SigurAsaon.
Pálína Þ. Waage flytur þakkir.
Seyðisfjörður:
Minnisvarði um Þorbjörn
Arnoddsson afhjúpaður
Seyðisnrði, 12. september.
SÍÐASTLIÐINN sunnudag var af-
hjúpaður hér í blíðskaparveðri,
minnisvarði um Þorbjörn Arn-
oddsson bifreiðarstjóra sem lést 31.
ágúst 1976. Minnisvarðinn er reistur
á Neðri-Staf, þar sem kaupstaðurinn
blasir fyrst við sjónum þeirra sem
ofan Fjarðarheiði koma.
Þorbjörn Arnoddsson hóf bif-
reiðarakstur í almannaþágu árið
1935 og var það upp frá því hans
aðalstarf. Það mun svo hafa verið
veturinn 1952—1953 sem hann hóf
snjóbílaakstur yfir Fjarðarheiði
og rauf þar með þá einangrun sem
Seyðisfjörður hafði búið við allt
frá hausti og langt fram á vor i
ómuna tíð. Þorbjörn var sæmdur
riddarakrossi Hinnar íslensku
fálkaorðu 17. júní 1975 fyrir
brautryðjandastörf á sviði
samgöngumála.
í bréfi sem Ástvaldur Kristó-
fersson ritaði bæjarstjórn Seyð-
isfjarðar þann 4. desember 1976
segir m.ö.o. svo:
„Ég geri ráð fyrir að við Seyð-
firðingar þurfum ekki nú að vitna
i skýrslur sérfræðinga til að gera
okkur ljóst, hvílík lífsnauðsyn er
að halda uppi samgöngum yfir
Fjarðarheiði allan ársins hring og
í hvílíkri þakkarskuld við stöndum
við þann mann, sem öllum öðrum
fremur rauf aldagamla einangrun
þessa byggðarlags. Því vil ég gera
það að tillögu minni að við allir,
Seyðfirðingar, sameinumst um að
reisa Þorbirni Arnoddssyni verð-
ugan bautastein, sem minni okkur
og eftirkomendur okkar á, hverju
Þorbjörn Arnoddsson
ósvikin karlmennska og staðföst
barátta fyrir hugsjón sinni fær
áorkað.
Mig langar einnig að koma á
framfæri þeirri hugmynd, að slík-
um varða verði valinn staður þar
sem hátt ber við þjóðbraut á
Fjarðarheiði, svo minning Þor-
björns megi áfram vísa okkur til
vegar um þá leið, til umheimsins,
sem hann öllum öðrum fremur
opnaði."
Það var svo á fundi bæjar-
stjórnar Seyðisfjarðar þann 6.
desember það sama ár, þar sem
samþykkt var að reisa Þorbirni
Arnoddssyni bifreiðarstjóra
minnisvarða fyrir hið mikla og
óeigingjarna starf hans, fyrr og
síðar, að samgöngumálum Seyð-
firðinga eins og segir í bókun bæj-
arstjórnar.
Nú sjö árum síðar er minnis-
varðinn risinn og í tilefni af af-
hjúpun hans var kaffisamsæti í
félagsheimilinu Herðubreið í boði
bæjarstjórnar. Þar minntist Theó-
dór Blöndal, forseti bæjarstjórn-
ar, Þorbjörns heitins en síðan var
farið upp á Neðri-Staf, þar sem
minnisvarðinn var afhjúpaður af
Pálínu Þ. Waage, dóttur Þor-
björns, að viðstöddu fjölmenni.
Á varðanum stendur eftirfar-
andi: „Þessi varði er reystur af
Seyðfirðingum til minningar um
fjallagarpinn Þorbjörn Arn-
oddsson. Hann var brautryðjandi
vetrarferða yfir Fjarðarheiði. F.
13.3. 1897. D. 31.8. 1976.
Ástvaldur Kristófersson, for-
maður nefndar þeirrar er hafði
veg og vanda af gerð minnisvarð-
ans, skýrði frá byggingu hans.
Súlurnar eru úr stuðlabergi úr
Hjaltastaðaþinghá og táknar for-
súlan þann sem ryður brautina og
sækir á brattann og minni súlurn-
ar þar fyrir aftan, tákna þá sem á
eftir fylgja.
Að lokum flutti Pálína Þ.
Waage þakkir til allra þeirra sem
að verki þessu hefðu staðið og
heiðrað minningu föður síns á
þennan hátt.
— Ólafur Már