Morgunblaðið - 17.09.1983, Side 20

Morgunblaðið - 17.09.1983, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983 Nýj* beitiskipid, sem Rússar sendu út í Miðjarðsrhaf í gær. Það er af krasína-gerð og er fyrsta skip sinnar tegundar. Það var smíðað í Nikolayev-skipasmíða- stöðinni yið Srartahaf. AP-Stoamynd Ný tegund beitískipa í herskipaflota Rússa IsUabél, 11 Katember. AP. laUabél, 16. septcmber. NÝ TEGUND sovézks beiti- skips fór um tyrknesku sund- in Bosporus og Dardanella f jómfrúrferð sinni í dag, en margt bendir til vaxandi um- svifa Rússa á Miðjarðarhafí, að sögn tyrkneskra sérfræð- inga í sjóhernaði. Beitiskipið nýja, sem nefnist Shaba, er 13 þúsund smálestir. í fylgd þess um tyrknesku sundin var tundurspillir af Kashin-gerð. Samkvæmt Jane’s uppsláttar- ritinu um herskip, er Shaba fyrst þriggja beitiskipa af Krasina- gerð, en um borð í þeim verða m.a. SSM- og SAM-stýriflaugar og venjulegar fallbyssur. Tveir þyrlu- Veður víða um heim Akureyri 8 skýjaó Amsterdam 17 skýjaó Aþena 30 heióakírt Barcelona 28 þokumóóa Bangkok 32 hsióskírt Beirút 28 heióskfrt Bertín 20 skýjaó BrUsael 17 skýjaó Buenoa Airea 20 heióskírt Chicego 17 rigning Dehlí 36 heiöskírt DyfHnni 17 heióskfrt Feneyjar 22 þokumóóa Frankfurt 24 rígníng Genf 25 rígning Helainki 15 heióskfrt Hong Kong 32 heióskfrt Jerúaalem 28 heiöskírt Jóhannesarborg 22 heiðskírt Kaupmannahöfn 18 heióskfrt Las Pelmas 25 hólfskýjaó Lissabon 26 heiðskfrt London 17 skýjað Los Angeles 32 heióskfrt Madrid 31 heióskírt Malaga 27 lóttskýjaó Mallorka 29 skýjaó Manila 34 heióskfrt Mexíkóborg 23 skýjaó Miami 33 skýjaó Montreal 19 skýjaó Moskva 16 heióskfrt New York 24 skýjað Dsló 13 rigning París 21 skýjaö Peking 30 haióskfrt Perth 19 heiðskfrt Reykjavík 9 skýjaó Rio 31 heióskfrt Róm 28 heióskfrt San Fransisco 22 heióskfrt Stokkhóimur 17 skýjaó Sydney 17 skýjaó Tel Aviv 28 heióskfrt Tókýó 21 skýjaó Toronto 18 heióskírt Vancouver 17 skýjaó Vín 21 heióskírt Varsjá 21 heióskfrt Pórshöfn 11 alskýjaó pallar eru á skipinu, sem gengur 32 sjómílur. Smiði skipanna var hafin 1976 og lauk prófunum á Svartahafi í lok síðasta árs, og var þá ákveðið að skipið sigldi til liðs við Miðjarð- arhafsflota Rússa. Nýju beitiskipunum er ætlað að vera stærri kjarnorkuknúnum beitiskipum af Kirov-gerð til halds og trausts. Heimildir herma að Rússar ætli að vera með a.m.k. fjögur Kirov-beitiskip á úthöfun- um fyrir lok þessa áratugs. Talið er að Rússar haldi úti 55 skipum á Miðjarðarhafi um þessar mundir, en 10 hafa bætzt við á síðustu tveimur mánuðum. Leitað að braki úr kóresku farþegaþotunni á ströndum nyrstu eyja Japans. Helmingur flugferða til Moskvu liggur niðri Washington, Helninki, 16. september. AP. UM ÞAÐ BIL helmingur allra flugferða milli Sovétríkjanna og annarra ríkja, eins og þær eru við eðlilegar aðstæður, liggur niðri vegna refsiaðgerða gegn Rússum fyrir að skjóta niður kóresku farþegaþotuna. Af þessum sökum liggja 80 af franska stjórnin hafi ekki lýst 156 vikulegum áætlunarferðum til og frá Moskvu niðri. Talan gæti átt eftir að hækka vegna aðgerða flugmanna. I ríkjum þeim sem þátt taka í ferðabanninu fara fram 60% af öllu almannaflugi í veröldinni. Af rikjum Atlantshafsbandalagsins taka Frakkar, Tyrkir og Grikkir ekki þátt í ferðabanninu. Vegna ferðabannsins og vegna aðgerða flugumferðarstjóra í ýms- um ríkjum, hefur þriðjungur allra ferða Aeroflot fallið niður. Þó svo lendingarbanni á sovézkar flug- vélar, falla ferðir þangað niður, þar sem sovézkar flugvélar fá ekki að fljúga um loftrými Vestur- Þýzkalands og Sviss. Gunnar Korhonen forstjóri Finnair sagði að kyrrsetja ætti allar flugvélar Korean Air Lines, Kóreuflugfélagsins, þar til fyrir liggur hvort starfsemi flugfélags- ins sé í samræmi við kröfur, sem gerðar eru. Korhonen sagði að lönd þau og flugmannafélög, sem gripið hefðu Rússar njósna við Hawaii Pearl limrbour, 16. september. AP. EITT nýjasta njósnaskip Rússa lón- ar nú við Hawaii og er augljóslega að fylgjast með hernaðarumsvifum Bandaríkjamanna á eyjunum, að talsmanns sjóhersins. dag var skipið, Balzam, suður af eynni Oahu, en bæði Honolulu og Pearl Harbour, eru á þessari eyju. Flugvélar bandaríska sjóhersins fylgjast með ferðum þess. Balzam hafði lengi haldið sig undan meiriháttar stöðvum sjó- hersins á vesturströnd Bandaríkj- anna, þar til skipið flutti sig til Hawaii, þar sem talið er að það afli upplýsinga um ferðir herskipa og kafbáta. Balzam er, að því er bezt verður vitað, eina njósnaskip Rússa, sem er vopnum búið. Er það m.a. búið loftvarnarflugskeytum og 30 millimetra fallbyssu. til refsiaðgerða gegn Rússum fyrir árásina á farþegaþotuna, ættu að grípa til sömu aðgerðá gagnvart flugvélum Kóreuflugfélagsins. „Það er fyrst og fremst við Kóreumenn að sakast. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir hafa stofnað iífi farþega í hættu, þeir hafa gert það tvisvar áður að minnsta kosti," sagði Korhonen. Korhonen sagði að ef farþega- þotan hefðí ekki verið í njósna- flugi, eins og ráðamenn í Kreml halda fram, þá væri það alvarlegt ef ekki væri hægt að fljúga henni á réttum leiðum með jafn full- komnum siglingatækjum og í henni voru. Af slíkum vélum staf- aði mikil hætta. „Ef flugvélar Finnair færu jafn mikið af leið, ætti ekki að leyfa okkur að fljúga fyrr en leitt hefði verið í ljós hvað úrskeiðis hefði farið." Finnskir flugmenn hættu að fljúga til Moskvu á mánudag, og gildir bann þeirra í 30 daga. Finnskir flugumferðarstjórar ákváðu hins vegar að afgreiða sov- ézkar flugvélar. Korhonen sagði að Rússum væri velkomið að fjölga ferðum til Helsinki til að bæta upp bann við lendingum annars staðar í Evrópu. Sannkallað smásjón- varp Lundúnum, 16. aeptember. AP. BRESKI milíjónamæringurinn og uppfinningamaðurinn Clive Sinclair kallaði fréttamenn á sinn fund f gær og sýndi þeim nýjustu uppflnningu sfna. Reynd- ist hún vera „minnsta sjónvarp veraldar". Varla deilir neinn við hann um það, því sjónvarpið passar í jakkavasa og skermur- inn er aðeins 5 sentimetrar á breidd og hæð, sem sagt minna en venjuleg pappírskilja. Sinclair var rúm fimm ár að setja dverginn saman og alls kostaði fyrirtækið 10,5 milljón- ir dollara. Tækið tafðist vegna verkfalla á síðasta ári og kom fyrir vikið á markaðinn níu mánuðum á eftir helsta keppi- nautinum, Sony Whatchman. En Sinclair segir það í raun engu skipta, „tækið mitt er helmingi minna, helmingi ódýrara og helmingi betra en önnur tæki af þessu tagi. Eg býst við því að það seljist svona milljón tæki á ári,“ sagði hann í gær. Tækið er aðeins 280 grömm að þyngd og í næstu viku geta Bretar fengið það keypt í póstkröfu. Mun það kosta 120 dollara stykkið, en Sinclair sagði að strax á næsta ári myndi hann kynna það f Bandaríkjunum og þar myndi hvert tæki kosta undir 100 dollurum hvert. Watchman- tæki japanska fyrirtækisins Sony selst í Bretlandi fyrir 373 dollara stykkið um þessar mundir. Sinclair er afkastamikill uppfinningamaður, sagt er að hann sé að hanna rafmagns- bifreið um þessar mundir, sem muni skipta sköpum í fram- leiðslu slíkra bifreiða. Hann vildi ekki tjá sig um hvernig gengi með bílinn, en lofaði upplýsingum hins vegar innan tíðar. Hitti Bongo í vondu skapi Zanesrilk, Ohio, 16. september. AP. SIMPANSINN Bongo var ekki í góðu skapi í gær, eigandi hans, Jimmy Estep, hafði hlekkjað hann við tré og hreinlega gleymt honum þar sem þeir félagar voru á hjólhýsaplani skammt frá borg- inni Zanesville. Garry Morrison, tæplega flmmtugur vélhjóla- knapi, fékk að flnna fyrir reiði Bongos. Bongo er enginn putti, 120 sentimetrar á hæð og 61 kíló. Einhvern veginn tókst honum að losa sig við hlekkina og síð- an arkaði hann af stað. Hvert förinni var heitið er óljóst mjög, en á vegi Bongos varð hraðbraut númer 22 í Ohio. Bílar þutu til og frá og Bongo hikaði er út á miðja götuna kom. Stóð hann þar stjarfur er Morrison kom á vélhjóli sínu. Það munaði hársbreidd að hann skylli á Bongo, en náði þó að hemla. Vatt Bongo sér þá að Morrison, dró hann af baki og beit hann hér og þar. Þýddi lít- ið fyrir Morrison að berjast á móti, því Bongo gekk berserks- gang og tuggði handleggi hans, fætur og hnúa. Eigandinn, fyrrnefndur Estep, var kominn á vettvang og tókst honum að yfirbuga Bongo og hneppa hann í keðjur á nýjan leik. Sagði hann vini sínum til málsbóta að hann hefði varað Morrison við því að aka strax af stað á ný. Þess í stað hefði Morrison reiðst og reynt að sparka í Bongo með fyrr- greindum afleiðingum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.