Morgunblaðið - 17.09.1983, Side 35
ffclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1983
35
+ Eftir fimm ára hjónaband eru þau akilin. Alana aatlar aö búa í Bandaríkjunum með bömin en Rod sest
líklega aó í Englandi.
Rod Stewart og fllana skilin
— til mikillar ánægju fyrir móður hans
Hjónabandi Rod Stewarts og Al-
önu er lokiö. Alana hefur tekiö
saman allt sitt hafurtask og yfirgef-
iö heimili þeirra í Hollywood ásamt
tveimur börnum þeirra hjóna. Rod
er hins vegar farinn heim til Eng-
lands en þar kom hann fram á tón-
leikum til styrktar gömlum vini sín-
um, sem þjáist af heila- og mænu-
siggi.
Skilnaöurinn kemur flestum á
óvart. Rod hefur ekkert tækifæri
látið ónotaö til aö lýsa yfir blessun
heimilislífsins og þegar hann var í
Kaupmannahöfn í vor sagöi hann,
aö hann væri einskis virði sem
listamaöur ef hann gæti ekki horfiö
á vit fjölskyldunnar á milli þess
sem hann heldur tónleika. Síöan
eru hinsvegar liönir þrír mánuöir.
Þeir eru til, sem fagna því bæöi
hátt og í hljóði, aö Rod og Alana
skuli ætla aö skilja, t.d. móöir
Rods, sem aldrei hefur getaö fellt
sig við tengdadótturina.
„Ég hef aldrei skilið hvers vegna
Rod var aö kvænast Alönu. Hún er
ekki rétta stúlkan fyrir hann, alltof
fín og stór uppá sig. Hún er ekki
manneskja sem hægt er aö rabba
við um daginn og veginn yfir kaffi-
bolla, enda hef ég aldrei gert þaö.
Þegar hún kom í heimsókn sagði
hún ekki eitt einasta orö heldur
horföi bara í kringum sig með van-
þóknunarsvip," segir móöir Rods.
Vinum Rods og kunningjum lík-
aöi heldur ekki alls kostar viö Al-
önu, sem aldrei hefur dregiö dul á,
aö henni finnst lítiö til þeirra flestra
koma.
„Rod hefur alltof lengi látiö plata
sig og ekki áttaö sig á því aö ekkl
eru allir viðhlæjendur vinir. Smjaö-
ur og axlaklapp er ekki nóg og þaö
er engin eftirsjá í þessum lýö,“
segir Alana aftur á móti. Þaö sýndi
sig lika, aö þegar Alana kom til
skjalanna komst loksins einhver
reiða á fjármálin hjá Rod og hon-
um tókst aö hafa hemil á drykkju-
skapnum og ólifnaðinum.
Þeir, sem til þekkja, telja fullvíst,
aö þau Rod og Alana muni ekki
taka saman aftur og spá því, aö nú
þegar hún er farin meö börnin, geti
tekiö aö halla allsnarlega undan
fæti fyrir Rod, sem þeir segja, aö
veröi aö fara aö gera hreint fyrir
sínum dyrum gagnvart flöskunni.
Manilow ástfanginn
af Ungfrú Alheimi
+ Söngvarinn og kvennagulliö
Barry Manilow er ástfanginn og
hann ræöst ekki á garöinn þar
sem hann er lægstur. Þaö er
hvorki meira né minna en Ungfrú
alheimur, Maria Lebron, sem
hann hefur falliö fyrir aö þessu
sinni. Þaö geröist í Vestur-Berlín
Barry Manilow
þar sem hann var aö vinna viö
sjónvarpsþátt.
„Þar hitti ég þá fegurstu konu,
sem ég hef nokkru sinni augum
litiö, Mariu Lebron, sem kjörin
var Ungfrú alheimur á þessu ári.
Viö snæddum saman og þótt ég
hafi ekki veriö ánægöur meö
framhaldiö þá fer ekki á milli
mála aö ég er hrifinn af henni.
Hún er aö vísu ekki nema 21 árs,
sem mér finnst ákaflega ungt en
þó ekki of ungt,“ segir Barry
Manilow, sem sjálfur er 37 ára
gamall.
Barry Manilow á sum helstu
topplögin á þessum og síöasta
áratug og hefur selt meira en 40
milljónir stórra platna.
„Fegursta kona, sem ég hef augum litiö,“ segir Barry Manilow um
Maríu Lebron, Ungfrú Alheim.
VIÐ
KYNNUM
NYJAR
BAÐ&
ELDHÚS
INNRÉTT-
INGAR
Innréttingahúsið kynnir um þessar mundir nýjar eld-
hús- og baðinnréttingar frá dönsku HTH verk smiðjun-
um. Við höfum breytt verslun okkar að Háteigsvegi 3,
Rvík., - og bjóðum þér að kynnast þessum gæða inn-
réttingum frá stærsta innréttinga framleiðanda á,
Norðurlöndum.
HTH innréttingar hafa hlotið
bæði Varefakte og Möbel-
fakta viðurkenningar fyrir
gæði, sem er einstakt.
HTH innréttingar fást m.a. í
eik, beiki, furu eða bara
hvítmálaðar.
Fulningahurðir
eða sléttar hurðir,
— allt eftir
þínum óskum.
Hringdu og fáðu
heimsendan
bækling.
Varefakte og
Möbelfakta
viðurkenningar
Opin leið að réttu vali.
4-
Dansk
VAREFAK1A j V*
A Innréttfngahúsíð
■ Háteigsvegi 3 Verslun Sími 27344