Morgunblaðið - 17.09.1983, Síða 35

Morgunblaðið - 17.09.1983, Síða 35
ffclk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1983 35 + Eftir fimm ára hjónaband eru þau akilin. Alana aatlar aö búa í Bandaríkjunum með bömin en Rod sest líklega aó í Englandi. Rod Stewart og fllana skilin — til mikillar ánægju fyrir móður hans Hjónabandi Rod Stewarts og Al- önu er lokiö. Alana hefur tekiö saman allt sitt hafurtask og yfirgef- iö heimili þeirra í Hollywood ásamt tveimur börnum þeirra hjóna. Rod er hins vegar farinn heim til Eng- lands en þar kom hann fram á tón- leikum til styrktar gömlum vini sín- um, sem þjáist af heila- og mænu- siggi. Skilnaöurinn kemur flestum á óvart. Rod hefur ekkert tækifæri látið ónotaö til aö lýsa yfir blessun heimilislífsins og þegar hann var í Kaupmannahöfn í vor sagöi hann, aö hann væri einskis virði sem listamaöur ef hann gæti ekki horfiö á vit fjölskyldunnar á milli þess sem hann heldur tónleika. Síöan eru hinsvegar liönir þrír mánuöir. Þeir eru til, sem fagna því bæöi hátt og í hljóði, aö Rod og Alana skuli ætla aö skilja, t.d. móöir Rods, sem aldrei hefur getaö fellt sig við tengdadótturina. „Ég hef aldrei skilið hvers vegna Rod var aö kvænast Alönu. Hún er ekki rétta stúlkan fyrir hann, alltof fín og stór uppá sig. Hún er ekki manneskja sem hægt er aö rabba við um daginn og veginn yfir kaffi- bolla, enda hef ég aldrei gert þaö. Þegar hún kom í heimsókn sagði hún ekki eitt einasta orö heldur horföi bara í kringum sig með van- þóknunarsvip," segir móöir Rods. Vinum Rods og kunningjum lík- aöi heldur ekki alls kostar viö Al- önu, sem aldrei hefur dregiö dul á, aö henni finnst lítiö til þeirra flestra koma. „Rod hefur alltof lengi látiö plata sig og ekki áttaö sig á því aö ekkl eru allir viðhlæjendur vinir. Smjaö- ur og axlaklapp er ekki nóg og þaö er engin eftirsjá í þessum lýö,“ segir Alana aftur á móti. Þaö sýndi sig lika, aö þegar Alana kom til skjalanna komst loksins einhver reiða á fjármálin hjá Rod og hon- um tókst aö hafa hemil á drykkju- skapnum og ólifnaðinum. Þeir, sem til þekkja, telja fullvíst, aö þau Rod og Alana muni ekki taka saman aftur og spá því, aö nú þegar hún er farin meö börnin, geti tekiö aö halla allsnarlega undan fæti fyrir Rod, sem þeir segja, aö veröi aö fara aö gera hreint fyrir sínum dyrum gagnvart flöskunni. Manilow ástfanginn af Ungfrú Alheimi + Söngvarinn og kvennagulliö Barry Manilow er ástfanginn og hann ræöst ekki á garöinn þar sem hann er lægstur. Þaö er hvorki meira né minna en Ungfrú alheimur, Maria Lebron, sem hann hefur falliö fyrir aö þessu sinni. Þaö geröist í Vestur-Berlín Barry Manilow þar sem hann var aö vinna viö sjónvarpsþátt. „Þar hitti ég þá fegurstu konu, sem ég hef nokkru sinni augum litiö, Mariu Lebron, sem kjörin var Ungfrú alheimur á þessu ári. Viö snæddum saman og þótt ég hafi ekki veriö ánægöur meö framhaldiö þá fer ekki á milli mála aö ég er hrifinn af henni. Hún er aö vísu ekki nema 21 árs, sem mér finnst ákaflega ungt en þó ekki of ungt,“ segir Barry Manilow, sem sjálfur er 37 ára gamall. Barry Manilow á sum helstu topplögin á þessum og síöasta áratug og hefur selt meira en 40 milljónir stórra platna. „Fegursta kona, sem ég hef augum litiö,“ segir Barry Manilow um Maríu Lebron, Ungfrú Alheim. VIÐ KYNNUM NYJAR BAÐ& ELDHÚS INNRÉTT- INGAR Innréttingahúsið kynnir um þessar mundir nýjar eld- hús- og baðinnréttingar frá dönsku HTH verk smiðjun- um. Við höfum breytt verslun okkar að Háteigsvegi 3, Rvík., - og bjóðum þér að kynnast þessum gæða inn- réttingum frá stærsta innréttinga framleiðanda á, Norðurlöndum. HTH innréttingar hafa hlotið bæði Varefakte og Möbel- fakta viðurkenningar fyrir gæði, sem er einstakt. HTH innréttingar fást m.a. í eik, beiki, furu eða bara hvítmálaðar. Fulningahurðir eða sléttar hurðir, — allt eftir þínum óskum. Hringdu og fáðu heimsendan bækling. Varefakte og Möbelfakta viðurkenningar Opin leið að réttu vali. 4- Dansk VAREFAK1A j V* A Innréttfngahúsíð ■ Háteigsvegi 3 Verslun Sími 27344

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.