Morgunblaðið - 17.09.1983, Page 40

Morgunblaðið - 17.09.1983, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1983 Ást er... * 2<i ... að muna eftir að veita honum viðurkenningu. TM U.S. Pat Oft.—all rights reserved c 19p3 Los Angeles Times Syndicate 830 Hér þarf gírkassaflutning, sam anber hjartaflutning ... AUTO-SERV Nú, þetta er þá konan þín, eda skjátlast mér enn einu sinni? HÖGNI HREKKVÍSI Þessir hringdu . . . Hvað veldur? Kr. Kr. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Ásmundur Stefánsson greindi okkur frá því í útvarpsviðtali nýlega, að nú þyrfti svo mörgum vinnustund- um fleira en í fyrra til að kaupa fyrir sama magn af vörum og þjónustu. Nefndi hann niður- skurð vísitölubóta í því sam- bandi. Ég vísa Ásmundi á að kynna sér ástand þessara mála i Færeyjum. Þeir ÁSÍ-menn geta margt lært af frændum okkar Færeyingum. Það er t.d. fróðlegt að bera saman verð á matvörum hér og hjá þeim, en það mun vera helmingi eða meira en helmingi lægra hjá þeim en okkur. Fyrir utan það að lamba- kjötið sem vísitölubændurnir okkar selja þangað er helmingi ódýrara þar en hér. Hvað er það eiginlega sem veldur? Af hverju er matvara svona miklu dýrari hér en í nágrannalöndum okkar? Skömm og sví- virða Guðrún H. hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Eg las í Velvakanda-dálkunum í dag (fimmtudag) það sem Magnea Ingólfsdóttir sagði um hunda- haldið við Hafravatn. í fram- haldi af því Iangaði mig að vita, hver bæri ábyrgð á þessari vos- búð og vanlíðan dýranna. Eða er enginn ábyrgur? Mér finnst það hræðileg skömm og svívirða að loka dýrin inni og búa að þeim, eins og lýst var í viðtalsklausu Magneu. Væri það til of mikils mælst, að ábyrgðarmaður þessa hundahalds við Hafravatn skýrði almenningi frá því, hvað þarna hefur farið úrskeiðis og hvers vegna? Vel heppnuð ferð Kona úr Garðabæ hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég fór í ferð með ms Eddu þann 31. ágúst sl. með Hvatarkonum. Ferðin var f einu og öllu sérstak- lega vel heppnuð og þarna kynntist ég góðum konum. Hóp- urinn var eins og keðja og á far- arstjórinn okkar, Sigríður Ha- nnesdóttir, miklar þakkir skilið fyrir frábæra aðstoð og skemmtilegheit bæði á sjó og landi. Ég veit ég tala fyrir fleiri úr hópnum. Vona ég að slík ferð verði farin aftur næsta sumar og ég fái tækifæri til að ferðast með svo ágætum konum aftur. Þökk sé Hvöt fyrir að hafa gefið þetta góða tækifæri. Fjölmiðlagleði ráðherranna Norðlendingur hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Eg get ekki annað en hlegið að öllum þessum fjölmiðlaleik hjá ríkis- stjórninni. Einn morguninn kemur frétt um það, höfð eftir félagsmálaráðherra, að hækka eigi húsnæðisstjórnarlánin upp í 50% af byggingarkostnaði. Sama morguninn er einnig í fréttunum, að fjármálaráðherra segi, að engir peningar séu til, þó að leitað sé með logandi ljósi til þess að standa undir kostnaði við slíka hækkun lánanna. Hvers konar fjölmiðlagleði er þetta að hlaupa út og suður með alls kon- ar yfirlýsingar, sem oft á tíðum stangast á, svo ekki sé meira sagt. Má ekki skoða þessi mál í rólegheitum, áður en farið er að gefa yfirlýsingar? Fólk í nauðum mænir til okkar Jóhann Á. Kristjánsson, Vest- mannaeyjum, skrifar: „Ágæti Velvakandi. Mig langar til að biðja þig, Vel- vakandi góður, vinsamlegast, að vekja athygli á hjálparstarfi Sjöunda dags aðventista meðal þurfandi fólks I þróunarlöndum og víðar í heiminum. í blaði, sem gefið er út á vegum safnaðarins, segir nokkuð frá því starfi sem unnið hefur verið fyrir það fé, sem áður hefur safnast. Þar segir m.a.: „Hjálparstarf ’83 er í framhaldi af svipuðu starfi sem í heilan mannsaldur hefur farið fram hér í landi og í mörgum öðrum löndum. Ennþá einu sinni leitum við eftir fjárgjöfum til heilsu- og hjálpar- starfs aðventista sem fram fer um allan heim. Það er vegna þinna gjafa og margra annarra sem við getum haldið starfinu áfram og jafnvel stækkað starfssviðið. Þetta starf er innt af höndum á 146 sjúkrahúsum og heilsuhælum, 251 heilsugæslustöðvum og heima- gönguhjúkrunarstöðvum, 15 trú- boðsbátum og 14 hjúkrunarflug- vélum. Skýrslur sýna að árið 1981 nutu meira en 12 milljón manns hjálpar gegnum 5107 hjálparstöðvar sem við rekum um veröld alla. Frá Norðurlöndum fóru á árinu 1982/83 margar sendingar til Pól- lands í formi matgjafa, skófatnað- ar og annars fatnaðar. Þetta blað sýnir nokkrar augna- bliksmyndir frá sumum þeirra landa þar sem trúboðar frá Norð- urlöndum starfa. Stærsta viðfangsefni okkar árið 1983 er að auðsýna kærleik, skiln- ing og vináttu. Milljónir manna eru enn háðar hjálpfýsi okkar. Þessi fjársöfnun fer fram undir ströngu eftirliti og með fullri vit- und yfirvalda. Allir safnarar hafa heimildarskjöl. Þegar þú gefur þina gjöf til hjálparstarfsins ’83 máttu treysta því að upphæðin kemst til skila. Aðalféhirðirinn sér um að peningunum verði skil- að til þeirra staða sem þeim var ætlað að fara til. Þar eð pen- ingarnir eru afgreiddir eftir leið- um sem þegar eru til er komist hjá stjórnunarútgjöldum. Þúsundir sjálfboðaliða taka þátt í þessu söfnunarstarfi án nokkurrar þóknunar. Þeir nota frítíma sinn í þessu skyni af þvf að þeir hafa trú á málefninu og hafa séð að það kemur að gagni. Þú get- ur öruggur trúað þeim fyrir framlagi þínu til HJÁLPARSTARFSINS ’83“. Þessa dagana eru Sjöunda dags aðventistar að dreifa blöðum, sem útskýra þetta mannúðar- og kær- leiksstarf, og taka á móti frjálsum peningagjöfum til hjálparstarfs- ins. Margir hafa látið fé af hendi rakna til þess á undanförnum ár- um og áratugum og gera enn, því að þörfin er brýn. Fólk í nauðum mænir til okkar og væntir hjálpar. Starfið verður að halda áfram og mun halda áfram, því að alltaf verða ein- hverjir sem tala máli hinna þurf- andi eða fórna sjálfum sér í kær- leiksverkum meðal þes°a fólks. Veist þú að m«' ~ .enskum krónum er hægt að borga mat og hælisvist fyrir tvö bðrn í þrjá daga í Vestur-Afríku? Og fyrir sömu upphæð mætti gefa barni með lungnabólgu fúkkalyfjameð- ferð. Með gjöf þinni, kæri lesandi, hvort sem hún er stór eða smá, verður hægt að lækka tölu þeirra sem þjást og bæta Hfskjör manna í heiminum. í hinni Helgu bók stendur: Sá lánar Drottni er líknar fátækum og Guð mun launa honum góðverk hans. Jesús segir: Hungraður var eg og þér gáfuð mér að eta. Þyrstur var eg og þér gáfuð mér að drekka. Gestur var eg og þér hýstuð mig. Nakinn var eg og þér klædduð mig. Sjúkur var eg og þér vitjuðuð mín. í fangelsi var eg og þér kom- uð til mín. — Hvað sem þér gjörið einum þessara minna minnstu bræðra, hafið þér mér gjört. Ég lýk þessum línum með versi úr sálmi: Að líkna þeim sem líða er lífsins skyldugrein. Þess þörf mun vera víða því víða heyrast kvein. Sjá, sumir sjúkir liggja og suma vantar brauð, sem kaldan bústað byggja þá broöurhönd er snauð.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.