Morgunblaðið - 17.09.1983, Page 41

Morgunblaðið - 17.09.1983, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1983 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS fítí/iMOEA Óréttlátt að þurfa að borga fullorðinsgjald Anna Lísa Rúnarsdóttir og María Gylfadóttir skrifa: „Velvakandi. Okkur langar til að koma á framfæri fyrirspurn til yfirmanna Landleiða, hvort 12 ára bðrn séu orðin unglingar eða jafnvel full- orðin. Okkur finnst að 12 ára börn séu ennþá börn og verði það til 14 ára aldurs. Sum 11 ára börn þurfa að borga fullorðinsgjald í strætó vegna stærðar sinnar og verða að koma með sjúkrasamlagsskírteini til að sanna aldur sinn. Þið, lesendur góðir, furðið ykkur e.t.v. á því, sem við erum að tala um, en við erum einfaldlega að segja, að okkur finnist óréttlátt að þurfa að borga fullorðinsgjald, eða 39 krónur, aðra leið til Reykjavík- ur. Við erum ekki einusinni komin á lögaldur og getum því ekki talist fullorðin. Tölum ekki meira um það. Sumir strætisvagnastjórar eru líka svo tillitslausir og langar okkur að spyrja yfirmenn Land- leiða, hvort þeir vandi ekki val á starfsmönnum fyrirtækisins. Við getum nefnt dæmi um tillitsleysi vagnstjóranna. Einu sinni komum við inn í vagn hjá einum þeirra og réttum honum 14 kr. (barnagjald), en um leið kallaði hann reiðilega til okkar (ekki í venjulegum kurt- eisistón): Hvað eruð þið gamlar? Ellefu, svöruðum við. Það getur ekki verið. Getið þið sannað það? spyr hann með miklum æsingi. Við erum fæddar 71 og verðum 12 seinna á árinu, svöruðum við. Þó að þessi bílstjóri sé alveg einstaklega ókurteis (meira að segja fullorðið fólk talar um það), þá eru sijunir þeirra mjög almenni- legir, bjóða góðan dag og segja bless, þegar við göngum út úr vagninum. í því sambandi viljúm við sérstaklega nefna einn sem er nýbyrjaður hjá Landleiðum. Við biðjum þá, sem skilja hvað við erum að fara með þessum orð- um og þekkja til, að láta í ljós álit sitt.“ GÆTUM TUNGUNNAR Ýmist er sagt: að lýsa einhverju yfir eða: að lýsa yfir einhverju. Hvorttveggja er rétt. rlucfkoótwc m jÆT- tilefni af 10 ára ^afmœ^lugleiða^^ Helgina 17.-18. september gefst þeim, sem leggja leið sína í Esjuberg og Veitingabúð Hótels Loftleiða, kostur á að upplifa „flug-stemmningu“. Á hverri áœtlunarleið Flugleiða, - til New York, Glasaow. London. Luxemborg og Kaupmannahafnar. fá farþegar ljúffengan flug-kost. Nú geta menn reynt úrvalið á einum stað. Komið og snœðið „flugmat" um helgina. &HDTEL3* HÓTEL LOFTLEIÐIR FLUGLEIDA ' HOTl I ALLTAF Á SUNNUDÖGUM OG EFNISMEIRA BLAÐ! Staðfestir kattastofninn í Boston landnám Leifs heppna? Fimmtugur unglingur á Seyðisfirði — rætt við Jóhann Sveinbjörnsson um íþróttir. Dostoevsky var ekki aðeins mikiö skáld — heldur einnig magnaður elskhugi. Við hugrækt í Himalayafjöllum — viðtal við Þórhöllu Björnsdóttur. Arthur og Cynthia — um dauðdaga Koestlers og konu hans. Svarti folinn og Tess — sagt frá tveimur nýjum kvikmyndum. Meistaranjósnari brezku leyni- þjónustunnar Erskine Caldwell — síðari hluti samtals Morgunblaðsins við hann. Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.