Morgunblaðið - 25.09.1983, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1983
DJÚPAVÍK á Ströndum
að fara í eyði
■
Séé yfír Djúpuvík sem nú er að fara í eyði.
Úr tveimur húsum þorpsins
liðaðist reykur upp um
strompa, kyrrt yfir öllum
öðrum mannvirkjum stað-
arins, hrópandi andstæður í
mannvirkjum athafnatíma
annars vegar og hins vegar í
barnahóp sem lék sér sem
ein hönd á fjörukambinum.
Þorpið Djúpavík að fara í
eyði í vetur, köld hús fram-
undan, en börnin eiga fram-
tíð sína á öðrum stöðum.
Hvers vegna, er spurt?
Vegna einangrunar, vegna
lélegrar aðstöðu í sambandi
við samgöngur, vegna
skólagöngu, vegna þess að
ekki hefur verið rímað á
móti þeim athafnamönnum
sem lögðu kapp á að halda
byggð í plássinu meðal ann-
ars með því að byggja eigin
bryggju.
Grein:
Árni Johnsen
Myndir:
Ragnar Axelsson
Suðurlandið á Djúpuvík var á sínum tíma hótel fyrir mik-
inn fjölda fólks sem vann í plássinu á sfldarævintýrisárun-
um milli ’30 og '40.
Leikið með kettlinga.
að var búið í tveimur
húsum í Djúpavík sl.
vetur, en nú er fólkið á
förum, hjón á miðjum
aldri, Páll Sæmunds-
son og Lilja Jónsdóttir og Þórður
Markússon, en Lýður Hallbergs-
son ásamt konu og sjö börnum
lokar einnig sínu húsi í vetur. Þau
fóru til Skagastrandar sl. haust og
Lýður var þar yfir rækjutímann
ásamt Karli bróður sínum á bát
þeirra, Dagrúnu, en síðan hefur
hann verið í Djúpuvík. Það stefnir
hins vegar allt í háfjöru mannlífs-
ins i plássinu þrátt fyrir það að
þessi staður hafi gefið íbúum sín-
um góðar tekjur.
Þegar við litum við var fólk að
búa sig undir að flytja, Lýður í
Húnavatnssýsluna, Páll og Lilja
til Reykjavíkur og Þórður til
Akraness. Páll og synir voru að
reyna að bjarga hrút úr sjálfheldu
í fjöllunum austan við plássið, en
Þórður var að bjarga lambi úr
björgunum vestan við plássið.
„Við sem erum að flytja héðan
verðum að byrja upp á nýtt, við
fáum ekkert fyrir eigur okkar,
hvorki hús né höfn, svo það er
andskoti erfitt að standa í þessu,"
sagði Lýður sem flutti til Djúpa-
víkur ásamt fjölskyldu sinni árið
1961.
„Við vorum mest að vinna við
stauragerð úr rekavið í sumar,
fiskiríið var mjög lítið, hrein smá-
kóð, svo smá að þorskurinn var
ekki hirðandi. Við höfum því sinnt
rekaviðnum og bjóðum staura hér
á staðnum fyrir 40 kr. en þeir inn-
fluttu sem Sambandið selur eru
allt að helmingi dýrari og mun
verri. Það hefur hins vegar verið
mjög erfitt að selja staura í sumar