Morgunblaðið - 12.10.1983, Síða 13
Nýr bátur frá
Skagaströnd
Skagaströnd 23. september.
Skipasmíðastöðin á Skaga-
strönd afhenti nýjan 15 tonna
plastbát í dag. Eigendur eru
feðgarnir Rögnvaldur Sæ-
mundsson og Sæmundur sonur
hans í Reykjavík. Hjördís
Sigurðardóttir oddvitafrú gaf
nýja bátnum nafnið Stakkur.
Stakkur er búinn til handfæra-
veiða og verður gerður út frá
Reykjavík. Á myndinni má sjá
er Gísli Björnsson, fram-
kvæmdastjóri skipasmíðastöðv-
arinnar, afhenti Rögnvaldi bibl-
íu til að hafa um borð. ÓB.
Örn Smári Arnaldsson
íbúar Skugga-
hverfis stofna
íbúasamtök
ÍBÚAR Skuggahverfis hafa stofnað
með sér íbúasamtök og í frétt sem
Morgunblaðinu hefur borist, segir
m.a. að helstu markmið samtakanna
séu að auka samskipti og efla sam-
kennd íbúa hverfisins, hafa samráð
við borgaryfirvöld um málefni sem
varða hverfið og íbúa þess og að
standa vörð um hagsmuni íbúanna.
Á stofnfundinum voru sam-
þykktar ályktanir þar sem íbúa-
samtökin skora á borgaryfirvöld
að kynna skipulagsáform að byggð
við Skúlagötu fyrir Reykvíkingum
áður en bindandi ákvarðanir verði
teknar og skorað var á skipulags-
stjórn ríkisins að fá fram nánari
rökstuðning og úrvinnslu á skipu-
lagsáformum við Skúlagötu áður
en skipulagsbreyting verður aug-
lýst.
Stjórn íbúasamtaka Skugga-
hverfis er skipuð af Geirharði
Þorsteinssyni, formanni, Guð-
mundi Gunnarssyni, ritara,
Freyju Kristjánsdóttur, gjaldkera,
Daníel Daníelssyni, meðstjórn-
anda og Gerði Pálmadóttur, með-
stjórnanda.
WIKA
Þrýstimælar
Allar stæröir og geröir
SQtyirOjDiuigjtyiir
©<&>
Vesturgötu 16, sími 13280
»
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1983
13
„Afhelgun veraldar“
Rætt við Pétur Pétursson sem nýlega varði
doktorsritgerð sína í trúarlífsfélagsfræði
„Ritgerðin fjallar um hvernig
kirkja og trúarlífið almennt
breyttist og aðgreindist frá öðr-
„Ritgerðin gengur út á hugtakið
„afhelgun veraldar" og fjallar
þverrandi áhrif kirkju og trúarlífs
á íslandi á tímanum 1830—1930“
sagði Pétur Pétursson í spjalli við
blm. Mbl., en hann varði sl. mánu-
dag doktorsritgerð sína í trúarlífs-
félagsfræði frá félagsvísindadeild
Háskólans í Lundi. Nefndi hann
ritgerðina „Church and Social
Change — A Study of the Secular-
ization in Iceland 1830—1930“.
Nýr yfirlæknir Röntgen-
deildar Borgarspítalans
ÖRN SMÁRI Arnaldsson hefur
verið ráðinn yfírlæknir við Rönt-
gendeild Borgarspítalans frá 1.
okt. 1983.
Örn Smári er fæddur 18. apríl
1937. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri
vorið 1956 og læknaprófi frá Há-
skóla tslands árið 1964. Hann
hefur hlotið viðurkenningu sem
sérfræðingur í geislagreiningu
og starfað sem sérfræðingur við
Röntgendeild Borgarspítalans
frá okt. 1970. Örn Smári hefur
tekið virkan þátt í félagsmálum
lækna og er nú ritari í stjórn
læknaráðs.
Örn Smári Arnaldsson er
kvæntur Rósu Hjaltadóttur og
eiga þau 4 börn. Hann tekur við
af Ásmundi Brekkan, sem
skipaður hefur verið prófessor
við Háskóla íslands og jafn-
framt forstöðumaður Röntgen-
deildar Landspítalans.
um þáttum tilverunnar á þess-
um tíma. Þar kem ég einnig inn
á hlutverk nýrra trúarlegra
hreyfinga á íslandi. Niðurstað-
an er sú að þessi aðgreining hafi
gengið fremur átakalaust fyrir
sig á íslandi, miðað við önnur
Norðurlönd, þótt þróunin hafi
gerst á sérstaklega skömmum
tíma. Félagsleg þáttaka presta í
sjálfstæðisbaráttunni seinkaði
nokkuð þessari aðgreiningu,
sem hófst ekki á íslandi fyrr en
á síðustu áratugum 19. aldar.
í dómnefndinni áttu sæti
fimm menn og samþykktu þeir
ritgerðina einróma, en andmæl-
andi minn var prófessor David
Martin frá London School of
Economics. Meðal þeirra fimm
sem sátu í dómnefndinni var dr.
Björn Lárusson, dósent í Lundi."
Pétur Pétursson er fæddur á
Akureyri árið 1950, sonur hjón-
anna Sólveigar Ásgeirsdóttur og
Péturs Sigurgeirssonar, biskups.
Hann lauk stúdentsprófl frá MA
árið 1970 og BA-prófi frá HÍ í
almennum þjóðfélagsfræðum
árið 1974. Pétur tók masters-
próf fyrir ritgerð um skipulags-
fræði og upplýsingaþjónustu
1980 og vann um tíma sem að-
stoðarmaður við Forsknings-
politiska Institutet í Lundi og
sem aðstoðarkennari við félags-
vísindadeild Háskólans þar.
Pétur er kvæntur Þuríði Jónu
Gunnlaugsdóttir, sjúkraliða.
Hann vinnur nú að samnorrænu
verkefni um trúarlegar breyt-
ingar á Norðurlöndum frá
1930-1980.
28611
2ja herb.
Hraunbær
Ca. 65 fm vönduð ibúö á 3.
hæó. Góö eign á góöum staö.
Verö 1,1 millj.
3ja herb.
Laugavegur
3ja herb. ca. 75 fm íbúö. öll
endurnýjuö. Laus strax. Gott
verð.
Hverfisgata
3ja herb. ca. 90 fm íbúö á 4.
hæö. Öll íbúöin nýstandsett.
Gullfallegt útsýni. Verö 1,2 millj.
4ra til 5 herb.
Flúöasel
4ra herb. ca. 110 fm góö
íbúö á 1. hæö. Falleg og
vönduö eign. Góöar innrétt-
ingar. Bílskýli. Verð 1750 til
1,8 millj.
Asparfell
5—6 herb. íbúö á tveimur hæð-
um. Ca. 135 fm. Öll íbúðin mjög
vönduö. Fallegt útsýni. Bílskúr.
Sérhæðir
Reynihvammur
Ca. 126 fm neöri sérhæö.
Ásamt stúdíóíbúö undir bílskúr
efri hæöar. Vönduö og falleg
eign. verð 2,2 millj.
Grenimelur
Falleg sérhæö ca. 110 fm. Sam-
eiginl. inngangur meö risi.
Endurnýjuö aö hluta. Verö 2
millj.
Annaö
Rauöageröi fokhelt
Ca. 215 fm einbýlishús á tveim-
ur hæöum. Frágengiö utan.
Lóö og teikningar
Lóö undir tvö parhús viö Helga-
land Mos. Grunnteikn. á skrif-
stofunni.
íbúöir og lóö
Til sölu 3ja íbúöa hús i Njarövík,
gott fyrir þá sem vilja ávaxta
peningana vel. Lóð 1424 fm.
Verö samtals 1 millj.
Húsog Eignir
Bankastræti 6.
Lúövík Gizurarson, hrl.
Heimasímar 78307 og 17677.
N0TAÐIR MAZDA
BÍLAR í ÚRVAU
Við höfum til sölu glæsilegt úrval notaðra MAZDA bíla í
sýningarsal okkar. Allir bílarnir eru í 1. flokks ástandi
og þeim fylgir 6 mánaða ábyrgð frá söludegi.
Sýnishorn úr söluskrá:
Gerð árg. ekinn
323 1300 3 dyra '82 7.000
929 Station sj.sk. '82 29.000
626 1600 4 dyra ’82 11.000
626 2000 2 dyra HT ’81 52.000
323 1300 Saloon sj.sk. '81 31.000
626 2000 4 dyra '80 34.000
929 4 dyra sj.sk. '80 33.000
626 2000 4 dyra sj.sk. '81 29.000
929 4 dyra m/öllu '81 40.000
323 1400 3 dyra '79 54.000
Athugið: Við bjóðum velkomna þá MAZDA eigendur,
sem hafa hug á að skipta bíl sínum upp í nýlegri MAZDA bíl.
Opið til 10 fimmtudagskvöld.
6 mánaða ábyrgð á notuðum bílum
■ B
Oryggi í Stað áhættu.
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99