Morgunblaðið - 12.10.1983, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1983
31
Þættir um menn-
ingarlíf á íslandi
— teknir hér upp af sænska sjónvarpinu
HVAÐ er aö gerast í menningar-
lífinu á íslandi, er efni sjónvarps-
þátta sem s«nska sjónvarpiö í Luleá
hefur hafið að gera, í samvinnu viö
norölægar sjónvarpsstöövar finnska
og norska sjónvarpsins. Höfundur
þáttanna Andres Björbammar
dagskrárgeröarmaöur við sjónvarpiö
í Luleá, kom til íslands í fyrra til að
taka viðtal viö forseta íslands Vig-
dísi Finnbogadóttur og vaknaði þá
súhugmynd að gera þætti um menn-
ingarlíf á fslandi. Anders kom síöan
á ný í janúar til að undirbúa upptöku
þáttanna, en hún fór fram nú fyrir
skömmu. Þættirnir veröa tveir, fjall-
ar annar um bókmenntir og hinn um
leikhús og kvikmyndagerö. í bók-
menntaþættinum eru viötöl við ís-
lenska rithöfunda og var hluti hans
tekinn á Bessastööum og kemur for-
seti íslands Vigdís Finnbogadóttir
þar fram sem gestgjafi. Var rætt við
Halldór Laxness, Svövu Jakobsdótt-
ur, Steinunni Siguröardóttur, Einar
Braga, Þórarinn Eldjárn og Guðrúnu
Helgadóttur, og Jakobína Sigurðar-
dóttir var heimsótt norður í land. Þá
er í þættinum rætt við Ólaf Jónsson
bókmenntagagnrýnanda um lestr-
arvenjur íslendinga.
í þættinum um leiklist og kvik-
myndagerð, voru farnar heim-
sóknir í Þjóðleikhúsið, Leikfélag
Reykjavíkur og íslensku óperuna.
Einnig til Leikfélags Akureyrar
og Leikfélags Akraness. í þessum
þætti eru mörg viðtöl og m.a við
forseta fslands Vigdísi Finnboga-
dóttur um leikhús og leikhúslíf á
íslandi, og við kvikmyndagerðar-
mennina Þorstein Jónsson og Ág-
úst Guðmundsson.
Þættirnir munu líklega verða
sýndir í Svíþjóð í janúar.
Doktor í heimspeki
Endurskinsmerkin sýnd.
á frumheimildum feril tilrauna
Skinners á tímabilinu 1928—1938
og leiðir líkur að því hvernig kenn-
ing hans um virkt atferli hafi orð-
ið til. Hann bendir á að Skinner
hafi byrjað tilraunaferil sinn sem
lífeðlisfræðingur í anda Pavlovs
og Sherringtons, en endað með því
að hafna hefðbundnum kenning-
um lífeðlisfræðinnar um tauga-
viðbrögð (reflex physiology).
Kristján færir rök að því að
Skinner hafi í raun sett fram
kenninguna um virkt atferli tölu-
vert fyrr en talið hefur verið, eða
1935—1936 í stað 1938. Skömmu
fyrir doktorsprófið átti Kristján
viðtal við Skinner, sem er starf-
andi við Harvard-háskóla. Ræddu
þeir sérstaklega þetta atriði og
féllst Skinner á þessa niðurstöðu
Kristjáns.
Kristján notar þessa niðurstöðu
um hvenær kenning Skinners hafi
fyrst komið fram, til þess að meta
gildi kenningar Kuhns og Land-
aus, sem eru tvær helstu kenning-
ar innan vísindaheimspeki í dag.
Kristján Guðmundsson er fædd-
ur í Reykjavík 1953 og er sonur
Guðmundar Jónatans Kristjáns-
sonar, málarameistara, og Jónu
Laufeyjar Hallgrímsdóttur. Hann
er kvæntur Margréti Jóhannsdótt-
ur og eiga þau 2 börn. Kristján
lauk stúdentsprófi frá M.H. 1974,
B.A.-prófi í sálfræði frá H.I. 1978
og M.A.-prófi í heimspeki frá Uni-
versity of Western Ontario 1979.
Kristján Guðmundsson hefur
verið ráðinn kennari við Kvenna-
skólann í Reykjavik.
Umferðarvika í Grindavík:
„Förum auðvitað
yfír á gangbraut“
„VÍST vitum viö hvernig viö eigum
að haga okkur í umferöinni. Við
veröum að passa aö endurskins-
merkin sjáist vel og líta vel í kring-
um okkur. Svo förum við auðvitað
alltaf yfir götuna á gangbraut-
inni,“ sögöu nokkur 6 ára börn í
forskólanum í Grindavík, er Morg-
unblaðsmenn spuröu þau hvernig
þau ættu aö haga sér í umferðinni.
Undanfarna viku hefur staðið
yfir sérstök umferðarvika með
fjölbreyttri dagskrá í Grindavík.
Meðal fræðsluþátta hefur verið
umferðarkynning fyrir yngstu
vegfarendurna. Hefur lögreglan
fært þeim endurskinsmerki og
frætt þá um helztu undirstöðu-
atriðin í umferðinni. Er Morgun-
blaðsmenn voru þar á ferð í síð-
ustu viku voru lögregluþjónarnir
Guðfinnur Bergsson, Sveinbjörn
Ægir Ágústsson og kennari
barnanna, Sigrún Árnadóttir,
fóstra, að leiðbeina börnunum og
tók þá Friðþjófur Helgason,
ljósmyndari Mbl., meðfylgjandi
myndir.
Hinn 16. ágúst síöastliöinn lauk
Kristján Guömundsson doktorsprófi
í beimspeki, Ph.D., viö University of
Western Ontario í Ontario-fylki í
Kanada. Doktorsritgerð Kristjáns
ber heitiö „The Emergence of B.F.
Skinner’s Theory of Operant Be-
havior: A Case Study in the History
Dr. Kristján Guömundsson
and Philosophy of Science". Ritgerö-
in er á sviöi vísindasögu og visinda-
heimspeki og fjaliar um uppruna
kenningar B.F. Skinners um virkt
atferli (operant behavior).
Kenning Skinners um virkt at-
ferli er mjög þekkt innan sálfræð-
innar, en hefur frá byrjun verið
umdeild. I ritgerð sinni rekur
Kristján með nákvæmri rannsókn
Sigrún Árnadóttir, fóstra, leiöir börnin yfir gangbrautina og lögregluþjónarnir Sveinbjörn Ægir Ágústsson og
Guðfinnur Bergsson sjá um aö rétt sé að farið.
JtloraimlUabtí>
Metsölubladá hverjum degi.
SÖLUMADURINN OKKAR
REYNDUR í STARFI -TRAUSTUR í VIÐSKIPTUM.
Hann veitir þér alla nauðsynlega þjónustu, varðandi kaup eða sölu
á notuðum bifreiðum.
m BIFREIDADEILD SAMBANDSINS
BÍLASALA HÖFÐABAKKA9 SÍMI 39810 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRU
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 9-18.
(OPIÐ I HÁDEGINU) LAUGARDAGA KL. 13-17.