Morgunblaðið - 12.10.1983, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1983
Móðir mín.
GUOBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR
frá Gafli,
lóst 10. þessa mánaöar.
Sóley Hermaniusdóttir.
Faðir minn,
JÓN FERDINAND BJÖRNSSON,
fyrrverandi tollfulltrúi,
Bólataðarhlfð 68,
andaöist þann 7. október þessa mánaöar.
Jaröarförin auglýst sföar.
Eather Jónsdóttir.
+
Sonur okkar og bróöir,
RAGNAR INGIÞÓRSSON,
Þingholli 10, Koflavfk,
andaöist í Sjúkrahúsi Keflavfkur mánudaginn 10. október.
Laufey Jóhannesdóttir, Ingiþór Geirsson
og börn.
+
Bróöir minn og mágur,
JÓN STEFÁNSSON,
Skaftafelli i Öræfum,
lést í Elli- og hjúkrunarheimilinu Höfn 11. okt.
Ragnar Stefðnsson, Laufey Lárusdóttir.
+
HJALTI JÓNSSON,
fyrrverandi verkstjóri,
Karfavogi 21, Reykjavík,
veröur jarösunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 14. október kl.
15.00.
Fyrir hönd aöstandenda,
Anna Magnúadóttir, Óli Þór Hjaltason.
Minning:
Guömundur Jóns-
son hreppstjóri
Hinn 16. ágúst sl. varð bráð-
kvaddur á heimili sínu á Flateyri
Guðmundur Jónsson hreppstjóri
þeirra Flateyringa, tæplega 59 ára
að aldri.
Hann var fæddur að Gemlufalli
í Dýrafirði 7. september 1924. For-
eldrar hans voru Jón G. ólafsson
bóndi þar og kona hans Ágústa
Guðmundsdótir frá Brekku í Þing-
eyrarhreppi. Hann var yngstur af
sex börnum þeirra hjóna. Hann
ólst upp í foreldrahúsum og átti
þar heima til þess tíma að hann
fór í trésmiðanám til Flateyrar
hjá Jóni Guðbjartssyni bygg-
ingameistara 1946, en áður nam
hann við héraðsskólann á Núpi
1942—’44. Veturinn 1944—’45 var
hann farkennari að Brekku og
Hofi í Þingeyrarhreppi. Hann
sótti nám i Iðnskóla Flateyrar
1946—’50, og varð húsasmfða-
meistari á Flateyri 1953.
Guðmundur átti fleiri erindi til
Flateyrar en að afla sér trésmfða-
réttinda, þar kynntist hann eftir-
lifandi konu sinni, Steinunni
Jónsdóttur, Eyjólfssonar kaup-
manns þar og konu hans Guðrún-
ar Arinbjarnardóttur kennara.
Steinunn og Guðmundur gengu f
hjónaband 28. nóvember 1954. —
Þau eignuðust sex börn sem öll
eru á lífi, þau eru: Guðrún Nanna
fædd 1953, myndmenntakennari í
Kópavogi gift Birni Gunnarssyni
skrifstofumanni, Jón, fæddur
1955, líffræðingur hjá Náttúru-
fræðistofnun íslands. maki Ema
Jónsdóttir iðnnemi, Ágústa, fædd
1957, nemi f Menntaskólanum við
Hamrahlíð, Eyjólfur, fæddur 1958,
nemi f Háskóla Isíands (landa-
fræði), Gréta Sigríður, fædd 1961,
nemi í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti (listasviði), Svanhildur,
fædd 1964, nemi í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti (bóknámssviði),
maki Jón Þór Bjarnason. Barna-
börn þeirra Steinunnar og Guð-
mundar eru fjögur.
Guðmundur var sérlega nær-
gætinn og skilningsríkur faðir
barna sinna. Hann var líka nær-
gætinn félagi þeirra og náði þar
einnig til félaga barnanna, þvf
margir þeirra komu á heimili
þeirra Steinunnar á veturna, enda
þótt þeirra bðrn væru við nám
syðra og mátti ekki á milli sjá
hver naut hins meira.
Guðmundur var maður dagfars-
prúður og viðmótsþýður svo af var
látið. Hann var heimakær og
heimilið honum hjartfólginn veru-
staður og er óhætt að fullyrða að
hann miðaði allt sitt lff við að
njóta samvista við fjölskyldu sína,
vinna fyrir og vernda hana.
Guðmundur átti þó sitt tóm-
stundagaman, sem var frfmerkja-
og myntsöfnun, og sinnti hann því
af mikilli alúð. Þá var útivist og
veiðiskapur í ám og vötnum hon-
um mikið áhuga- og ánægjuefni.
Gemlufall og Flateyri geyma
æviferilinn. Flateyri var honum
hugstæð, enda skapgerðin ekki
flysjungsleg. Ætt sfna átti Guð-
mundur að rekja til önundar-
fjarðar. Föðuramma hans, Sigríð-
ur Kristín Jónsdóttir ljósmóðir,
var fædd i Hjarðardal, og er ætt-
bogi Jóns Sigurðssonar langafa
hans fjölmennur í önundarfirði f
gegnum árin.
Á Flateyri gegndi Guðmundur
ýmsum trúnaðarstörfum því auk
þess að vera hreppstjóri frá 1972
var hann í bygginganefnd frá
1954—1970 og byggingafulltrúi frá
1970—1980. Slökkviliðsstjóri frá
1958—1971, í skólanefnd
1966—1978 og formaður hennar
1966—1974. Formaður barna-
verndarnefndar 1%6—1974, einn
af stofnendum Lionsklúbbs ön-
undarfjarðar og formaður hans
1977—1978. Varahreppsnefndar-
maður var hann í nokkur kjör-
tímabil. Hann starfaði í kjör-
stjórn frá 1971 og var fulltrúi
Flateyrarhrepps í Sýslusamlagi
ísafjarðarsýslu frá 1973. Stefnu-
vottur var hann frá 1976. Á vegum
Fasteignamats ríkisins starfaði
hann að millimati 1972—’76. í
stjórn Kaupfélags önfirðinga var
hann frá 1974 og endurskoðandi
Fööurbróöir minn, + LÚÐVÍK EINARSSON
frá Patrekafirói,
verður jarösunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 13. sept. kl.
13.30. Fyrir hönd ættingja, Gráta Svainadóttir.
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
PÁLL SÆMUNDSSON,
stórkaupmaöur,
Mánastíg 6, Hafnarfiröi,
veröur jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju, föstudaginn 14. októ-
ber kl. 13.30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuö, en þeim, sem vildu
minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Eygeröur Björnsdóttir,
Ingvar Pálsson, Erla Ófoigsdóttir,
Ragnar Pálsson, Sigrún Þórarinsdóttir,
Hildur Pálsdóttir, Rolf Carlsrud,
Margrát Pálsdóttir, Guöjón Magnússon,
Ingibjörg Pálsdóttir, Lars Olofsson,
Páll Pálsson, Sigrún Rsynisdóttir,
Kristín Pálsdóttir, Christor Boman
og barnabörn.
+
Þökkum auösýnda samúö viö fráfall og jaröarför
ELÍNAR BJÖRNSDÓTTUR,
Lönguhlíö 15.
Hallgoröur Pálsdóttir, Halldór B. Stofánsson,
Páll Halldórsson, Sólvoig Ásgrímsdóttir,
Ásta Halldórsdóttir, Einar Erlondsson,
Elín Ýrr Halldórsdóttir, ólöf Eir Halldórsdóttir,
börn og barnabörn.
■oasMiintoi) nmJ musðiiöl Ls ibaleaiFU fliiit mss
+
Alúöarþakkir fyrir auösýnda vinsemd viö andlát og útför
ÞÓRARINS EINARSSONAR.
Sérstakar þakkir til forráöamanna og starfsfólks Hrafnistu fyrlr
frábæra umönnun, svo og þakkir og kveöjur til sveltunga og vina.
Blessun Guös veri meö ykkur öllum.
Halla, Jón og
vonslafólk.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu vlö fráfall og útför
fööur okkar,
GUÐJÓNS BJARNASONAR,
múraramoistara,
fyrrvarandi söngstjóra barnakórsins Sólskinsdoildarinnar.
Lydia Guöjónsdóttir, Kjartan S. Guöjónsson,
Bjarndís Kristrún Guöjónsd., Erla Guöjónsdóttir,
Siguröur R. Guöjónsson, Hulda K. Guöjónsdóttir.
+
Alúöarþakkir til allra þeirra sem vottuöu okkur samúö viö andlát
og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
ÞURÍOAR GfSLADÓTTUR
frá Bjarmalandi,
Sandgoröi.
Sérstakar þakkir til sóknarnefndar, kórfélaga og annarra ibúa
Miöneshrepps sem vottuöu henni viröingu sina á ógleymanlegan
hátt.
Helga Kriatóforsdóttir, Gísli Júliusson,
Oliver G. Kristóforsson, Ingibjöra Sara Jónsdóttir,
Guðlaug Kristóforadóttir, Guöjón Arni Guómundsson,
Guörún Andrea Guömundsdóttir
og barnabörn.
trj .nubauinóijti ,uUlO tiui OiA &íá e tiiií iúú iö ,ui4*1í
Sparisjóðs önundarfjarðar frá
1974. Hannvar í stjórn Hefils hf. á
Flateyri frá stofnun þess 1949 og
framkvæmdastjóri þess
1978—1980. í stjórn Iðnaðar-
mannafélags Flateyrar frá stofn-
un þess 1959 og formaður þess frá
1963.
Þetta yfirlit segir sína sögu og
sýnir að Guðmundur átti tiltrú
samborgara sinna og var það að
verðleikum.
Með fráfalli hans er harmur
kveðinn að konu og börnum og
sterkri forsjá burtu svift.
Systir hans og fótursystkini líta
yfir farinn veg á samfylgd hans
bernsku- og æskuárin, og minnast
þeirra og samfunda seinni tíma
með hjartans gleði og þökk. —
Hvergi á þeirri leið féll styggðar-
yrði. — Hann hafði orðvendni og
orðheldni foreldra sinna fullkom-
lega að leiðarljósi.
Sjálfur minnist ég mágs míns,
sem hins Ijúfa og trausta manns,
sem auðgar líf mans með návist
sinni og góðleika, hann var sem
besti bróðir og samrýndur félagi.
Ég votta konu hans og börnum
og öllum aðstandendum innilega
samúð.
Guðmundur var jarðsunginn i
Flateyrarkirkjugarði hinn 24. ág-
úst sfðastliðinn að viðstöddu fjöl-
menni.
Gísli Andrésson,
HátaL
Leiðrétting
í kveðjuorðum hér i blaðinu á
sunnudaginn um Jónu Helgadótt-
ur féllu niður nokkur orð í setn-
ingu, en hún átti að hljóða svona:
Ég óskaði þess alltaf að henni
myndi batna svo við gætum haldið
áfram að gera margt skemmtilegt
saman, eins og áður.
Þetta leiðréttist hér með.
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁOHÚSTORGI
líéa! 19 fetTiLH aibLwA Lud