Morgunblaðið - 15.10.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.10.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983 Hvar og hvernig á tón- listarhúsið að vera? Á morgun verður haldinn formlegur stofnfundur samtaka um byggingu tónlist- arhúss í Reykjavík, en segja má, að þeim hafi verið hleypt af stokkunum síðastliðið vor með undirbúningsfundi, sem haldinn var að afloknum síðari flutningi Sinfóníu- hljómsveitar íslands og Söngsveitarinnar Fflharmoníu á 9. sinfóníu Beethovens. Þar var kosin undirbúningsnefnd, sem síðan hefur starfað að málinu og nú í vikunni settust tveir nefndarmanna, þeir Jón Þórar- insson, tónskáld og Gunnar Egilsson, klari- nettleikari, niður með mér smástund til að segja undan og ofan af því, sem gert hefur verið síðustu mánuði og til stendur í nán- ustu framtíð. Jón Þórarinsson Gunnar Egilson tónlistarlífinu Margrét Heinreksdóttir Jón Þórarinsson sagði, að undir- búningsnefndin hefði skipt sér niður í fjórar undirnefndir; stað- arvalsnefnd, útbreiðslunefnd, fjáröflunarnefnd og svonefnda „prógrammeringar“-nefnd en sá hópur hefði haft það verkefni að gera sér grein fyrir því, hvaða starfsemi ætti að vera eða gæti verið í væntanlegu tónlistarhúsi og hvernig henni skyldi fyrir kom- ið. — Eru hugmyndir orðnar skýr- ar um, hvernig húsið skuli vera? — Ekki endanlega, svaraði Jón. f fyrsta lagi er þess að gæta, að við erum undirbúningsaðilar, og tök- um engar ákvarðanir þar um; í öðru lagi, að ekki er unnt að taka ákvörðun um, hvernig húsið skuli verða fyrr en því hefur verið val- inn staður og í þriðja lagi eru vafalaust talsvert skiptar skoðan- ir um, hvernig húsið eigi að vera og þær á eftir að ræða og sam- ræma. Okkar hlutverk hefur nán- ast verið að móta hugmyndir og tillögur um það, sem til greina gæti komið. Þó höfum við gengið út frá því, að í húsinu verði tveir hljómleikasalir, annar fyrir 12—1500 áheyrendur hinn fyrir 300 áheyrendur. Vangaveltur hafa verið um, hvort salina mætti ef til vill sameina og hafa þá þann stærri sem því næmi minni, en þá koma til tæknilegir annmarkar varðandi hljómburð. Nokkurt álitamál kann að vera, hversu stóran áheyrendasal við þurfum. Háskólabíó, sem tekur um þúsund manns í sæti fyllist nú því sem næst á hverjum tónleikum en spurning er hverrar fjölgunar hljómleikagesta við getum vænzt á komandi árum, um það eru menn kannski ekki alveg á eitt sáttir. — Við höfum lagt áherzlu á, sagði Gunnar Egilsson, að ekki verði stefnt að byggingu prjálhýs- is. Við þurfum einfalt hús, sem er ætlað og hannað til hljómleika- halds, — hinsvegar er álitamál, hvort einnig eigi að stefna þar að annarskonar starfsemi og þá hverskonar. Við höfum kynnt okkur tónlistarhús erlendis eink- um á Norðurlöndum — en þau hafa risið hvert á fætur öðru síð- ustu árin, í Björgvin, Osló, Árós- um, Óðinsvéúm og Stokkhólmi — og a.m.k. tvö til viðbótar í smíðum í Malmö í Svíþjóð og Pori í Finn- landi — og séð að þau eru rekin með mjög mismunandi hætti, sum tengd annarskonar menningar- starfsemi og jafnvel verzlunar- og veitingahúsarekstri, svo sem í Björgvin, þar sem hluti hússins er leigður út verzlunum og félaga- samtökum til þess beinlínis að renna stoðum undir hinn listræna rekstur. Þær leiðir allar þarf að ræða vendilega áður en ákvörðun er tekin, sömuleiðis hvort í húsinu ætti að vera aðstaða til ráðstefnu- halds, eins og einnig hefur komið til tals. — Er húsið hugsað fyrir svo- kallaða „sígilda" eða alvarlegri tónlist eingöngu eða hina léttari einnig? — Hugmyndin er, að það geti rúmað hverskonar tónlistarstarf- semi og við teljum, að miða beri að sem fjölbreyttustum nýtingar- möguleikum. Tónlistarhúsin stolt borganna Fram kom, að þau Gunnar Eg- iisson og Karólína Eiríksdóttir, tónskáld, hefðu nýlega farið til Noregs til að skoða nýju tónlist- arhúsin þar og ræða við íslenzkan sérfræðing í hljómburðartækni, Stefán Einarsson, sem starfar í Gautaborg í Svíþjóð og hefur verið undirbúningsnefndinni til ráðu- neytis. — Við hittum Stefán í Osló, sagði Gunnar, og skoðuðum ásamt honum nýja húsið þar mjög gaum- gæfilega; vorum þar heilan dag, fórum um það hátt og lágt og ræddum við forráðamenn þess. Daginn eftir fórum við til Björg- vinjar og skoðuðum Grieg-hallen. Á þessu lærðum við geysilega margt. Áður höfðu þeir Stefán og Ármann Örn Ármannsson, fram- kvæmdastjóri — (sem með grein sinni í Morgunblaðinu í fyrra varð upphafsmaður þess að láta til skarar skríða með að hrinda þess- um gamla draumi íslenzkra tón- listarmanna og áhugafólks í fram- kvæmd) — skoðað Berwaldhallen í Stokkhólmi. Þá höfum við viðað að okkur efni um önnur hús og Stef- án skoðar húsið í Árósum vænt- anlega nú í vikunni, þar sem hann á leið þangað í einkaerindum. — Tónlistarhúsin í Osló og Björgvin eru bæði íburðarmikil hús, sagði Gunnar. Sérstaklega Grieg-hallen f Bergen. Þvf er ætl- að að þjóna margvíslegum tilgangi og þar eru möguleikar til leikrita- og óperuflutnings auk hljómleika- halds og margskonar annarrar starfsemi. Við fundum lfka glöggt, að íbúar Oslóar og Björgvinjar eru mjög stoltir af þessum tónlistar- húsum sínum, telja sig hafa af þeim mikinn sóma. — Hvernig hefur gengið með rekstur þessara húsa á Norður- löndum. Hafa þau borið sig? — Húsið í Björgvin ber sig vegna þess hve starfsemin er fjöl- breytt og með útleigu húsnæðis fyrir aðra starfsemi en listræna, — hún sjálf ber sig varla. Rekstur hinna húsanna á Norðurlöndum gengur misjafnlega vel. — Við skulum ekki líta framhjá því, sagði Jón að ég hygg óhætt að fullyrða, án þess ég hafi handbær- ar tölur þar um, að tónlistarlíf hér í Reykjavík sé mun fjölbreytilegra og blómlegra en í Björgvin, fyrir utan þann tíma á vorin, sem þeir halda sérstaka tónlistarhátíð, — og hátíð höfum við jú lfka, auk alls annars. — Þið segið, að ákvörðun um starfsemi hússins sé háð staðar- vali. Hvaða staðir hafa helzt kom- ið til greina? — Þeir eru ýmsir sagði Jón. Við höfum verið í sambandi við skipu- lagsyfirvöld og íhugað staði um allan bæ, vestan frá Vatnsmýri og austur í Breiðholt. Enn hefur þó ekki komið fram sá staður, sem öllum finnst sjálfsagður, og málið er enn á athugunarstigi. Tveir ungir arkitektanemar hafa teikn- að tónlistarhús sem prófverkefni og staðsett við Tjörnina, en með hliðsjón af viðbrögðum manna hér fyrr á árum við hugmyndum um ráðhús eða leikhús þar, gerum við ekki ráð fyrir, að sú hugmynd sé raunhæf. Tveir aðrir ungir menn hafa sett fram hugmynd um tón- listarhús við höfnina — og hafa reyndar komið til tals nokkrir staðir við Skúlagötuna, svo og í Laugarnesinu; Vatnsmýrin, sem næst Norræna húsinu, væri mjög skemmtilegur staður, sömuleiðis hefur komið til tals reitur við Skeiðarvog milli Suðurlands- brautar og Miklubrautar og annar vestan við Glæsibæ. — öskjuhlíð? — Lóð á því svæði virðist ekki liggja á lausu. — Staðsetning hússins skiptir geysimiklu máli fyrir framtíð þess, bætti Gunnar við. Á Norður- löndum hefur verið lögð áherzla á að hafa tónlistarhúsin miðsvæðis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.