Morgunblaðið - 15.10.1983, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.10.1983, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983 • Þeir láta sig ekki vanta á völlinn þessir. Að vísu var liö ÍA ekki aö spila aö þessu sinni heldur íslenska unglingalandsliöið í knattspyrnu gegn Englandi á Melavellinum. En þeir Magnús (meö stafinn) og Pálmi voru mættir. Þeir eru dyggustu stuöningsmenn Akranesliösins í knattspyrnu í fjölda ára. Magnús var til dæmis fyrsti formaöur stuðningsmannaklúbbs ÍA. Pálmi hefur veriö svo upptekinn af leiknum aö Magnús hefur séð ástæöu til þess aö banda til hans með stafnum til að fá athygli hans. Baráttuleik KA og Hauka lauk með jafntefli KA JAFNAÐI leikinn gegn Hauk- um í 1. deild íslandsmótsine í handknattleik í gærkvöldi þegar hálf mínúta var til leiksloka. Lokatölur uröu 19—19. í hálfleik Guðmundur slasaðist Guðmundur Guömundsson, landsliósmaöurinn snjalli í hand- knattleik og fyrirliöi Víkingsliós- ins, meiddist á æfingu í vikunni. Hann sleit liðbönd í hægri hendi og verður frá æfingum og keppni í fimm vikur. Hilmar Sigurgísla- son, landsliósmaóur úr Víkingi er einnig meiddur. Hann meiddist í vikunni, en meiðsli hans eru ekki eins alvarleg og Guðmundar. Hilmar verður þó sennilega frá keppni í hálfan mánuö. Þeir voru báöir í landsliðshópi Bogdans Kowalczyk fyrir landsleikina gegn Tékkun á næstunni og Ijóst er að Guðmundur getur a.m.k. ekki tekið þátt í þeim. Bikarkeppni Þátttökutilkynningum í bikar- keppni KKÍ þarf aö skila til skrifstofu KKÍ fyrir 1. nóvember. Þátttökutilkynningum þarf aó fylgja þátttökugjald sem er kr. 1000 fyrir hvern leik í meistara- flokki og kr. 400 fyrir hvern leik í yngri flokkum. Skólamót KKÍ Þátttökutilkynningar í skólamót á vegum KKÍ þurfa aö berast skrifstofu KKÍ í síöasta lagi 1. nóv- ember nk. Til aö þátttökutilkynn- ing sé tekin til greina þarf að fylgja henni þátttökugjald. Skólamót KKÍ eru tvenns konar, þ.e. framhalds- skólamót pilta og stúlkna, 8. og 9. bekkur, svo og stúlknaflokkur. Þátttökugjald er sem hér segir: I framhaldsskólamóti k. 1000 fyrir hvert liö. í grunnskólamóti kr. 750 var staóan jöfn, 9—9. Geysileg harka var í leik liðanna og leikinn var mjög hraður handknattleikur. Óðagot var nokkuð mikið á mönnum í leiknum og því mikið um mistök. En í heild var mikil barátta í leiknum og inn á milli komu sæmilegir kaflar. Haukar komust i 4—1 á fyrstu 10 mínútum leiksins og KA-menn eiga næstu þrjú mörk og jafna metin. Haukar komust í 6—4 en KA nær enn aö jafna og jafnt er í hálfleik, 9—9. KA hóf síöari hálfleikinn af mikl- um krafti og geröi þrjú fyrstu mörkin. Staöan þá orðin 12—9 fyrir KA, KA náöi síöan fjögurra marka forystu, 14—10. Þá náöu Haukar góöum kafla og leikurinn jafnaöist og staðan varö 16—16 á 52. mínútu leiksins. i lokin var gíf- urlega hart barist og allt á suöu- punkti, og vart mátti á milli sjá hvort liöiö ætlaöi að hafa þaö aö knýja fram sigur. Haukar komust í 19—18 þegar mínúta var eftir og KA fá þá víti en þaö er variö. Haukar fengu boltann en dæmdur var ruöningur á þá og síöan á KA. fyrir eitt liö, kr. 1350 fyrir tvö liö og kr. 1800 fyrir þrjú liö. — ÞETTA er fyrst og fremst afar einhliða líf og tekur margt frá einstaklingunum, það eina sm þú þarft aö hugsa um er að leíka og æfa knattspyrnu. Mér fannst ég lifa í félagslegu tómarúmi. Maöur getur verið heimskur á svo marga vegu í þessu loft- tæmda rúmi. Þú stjórnar þér ekki sjálfur. Svo segir danski knattspyrnumaðurinn Lars Bastrup í mjög opinskáu viö- tali sem birtist í íþróttablaði Morgunblaösins næstkom- andi þriðjudag. Bastrup sem Haukar glopra síöan boltanum aft- ur og þá tókst KA aö nýta sína sókn og jafna metin. Kristján Ósk- arsson jafnaöi leikinn þegar 25 sek. voru eftir af leiknum. Bestu menn KA voru Þorleifur og Siguröur og Þorvaldur varöi mark KA vel í síöari hálfleik. Hjá Haukum var Ingimar Har- aldsson bestur, en lið Hauka var mjög jafnt aö getu. Mörk KA: Þorleifur 6, Siguröur 4, Erlingur 2, Jón 2, Kristján 2, Jó- hann 2. Mörk Hauka: Jón 6, 5 v, Ingimar 3, Þórir 3, Sigurjón 2, Helgi 2, Sig- urgeir 1, Höröur 1. AS/ÞR Valur óstöðvandi Hörkuleik UMFN og Vals í gær- kvöldi lauk með sigri UMFN 80—79. í hálfleik var staðan 45—39 Njarðvík í vil. Leikur lið- anna var æsispennandi og vel leikinn. Og vart mátti á milli sjá í spennuleik hvort liðið myndi sigra. Valur Ingimundarson fór á kostum í leiknum, skoraði 20 stig í fyrri hálfleiknum og 16 í þeim síðari. Nánar verður greint frá leiknum í blaöinu á þriöjudag. ÞR. lék meö Evrópumeisturunum Hamborg SV á síóasta keppn- istímabili tók skyndilega þá ákvöróun aó hætta aó leika sem atvinnuknattspyrnumað- ur. Þaö vakti mjög mikla at- hygli. í viötalinu við Bastrup kemur margt athyglisvert fram. Hann segir meðal ann- ars að knattspyrnumennirnir eigi fullt í fangi meö aö halda kjötinu á beinum sínum og víðhalda sinni eigin sjálfs- mynd. Hann líkir atvinnu- knattspyrnunni vió manna- kjötsát. ÞR. Bikarkeppni og skóla- mót KKI framundan „Mannakjötsát" Valur sigraði á Selfossi „VIÐ vorum að mínu mati sterkari aöilinn. Leikurinn var sveiflu- kenndur, en markvarslan var mjög góð hjá okkur í seinni hálf- leik og viö áttum sigurinn skilið," sagöi Hilmar Björnsson, þjálfari 1. deildarliös Vals í handbolta, í gærkvöldi eftir að liðið haföi sigr- aö Stjörnuna á Selfoasi. Stjarnan lék í gær heimaleik sinn þar, vegna þess aö heimavöllur fé- lagsins í Ásgaröi er ekki nægi- lega stór, þrátt fyrir aö húsiö sé nýlegt. Furöulegt. Einar Þorvaröarson var mjög góður í marki Vals — hann varöi 18 skot. Valsmenn tóku forystuna í upphafi leiksins og héldu henni út mestallan hálfleikinn. En í lok hans náöu Stjörnumenn aö komast yfir og þeir höföu eins marks forystu í hálfleik. En í seinni hálfleik voru Valsarar ákveönari — Einar markvörður var þeirra bestur, og þeir náðu aö knýja fram sigur. Mörk Vals: Steindór Gunnars- son 6, Brynjar Haröarson 4, Valdi- mar Grímsson 3, Þorbjörn Jens- son 3, Jakob Sigurösson 2, Jón Pétur Jónsson, Björn Björnsson 1 og Einar markvöröur Þorvaröar- son 1 hver. Mörk Stjörnunnar: Hannes Leifsson 4, Bjarni Bessason 4, Eyj- ólfur Bragason 4/1, Magnús Teitsson 2, Sigurjón Guömunds- son 2, Guömundur Þóröarson 1 og Hermundur Sigmundsson 1. — SH. • Steindór spilaði vel á Selfossi og skoraöi 6 mörk og lék jafnframt vel í vörninni. • Það var mikill fjöldi sem leiddur var um húsakynni Morgunblaösins eftir að verölaunaafhendingin haföi fariö fram — hér er allur hópurinn á leiö inn á ritstjórn blaösins. • Passar hún ekki? Hún er eitthvaö þröng í hálsinn ... • ... jú, auðvitað passar hún. Alveg eins og flís viö rass, maöur. Hvaö helduröu?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.