Morgunblaðið - 22.10.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1983
27
Á síöastliðnum vetri fluttust
þau hjónin til Reykjavíkur vegna
lasleika hans og hafa dvalið á Elli-
heimilinu Grund. Vilhjálmur son-
ur þeirra stjórnar nú búinu á
Hnausum og hreppstjóri hefur
hann verið um nokkur ár.
Að lokum votta ég þeim Sigur-
línu og Vilhjálmi samúð mína og
þakka þeim langa kynningu og
samveru og ég votta einnig minn-
ingu Eyjólfs virðingu mína og
þakkir.
Ingimundur Stefánsson
Loks ert þú liðinn,
land er nú tekið,
hðfninni náð bak við helsins flóð.
Höggvið er rjóður,
hnigin er til jarðar
sú eik, sem lengst og styrkast stóð.
Þegar ég frétti lát vinar míns,
bændaöldungsins og sveitarhöfð-
ingjans Eyjólfs Eyjólfssonar, kom
mér í hug ofanritað erindi úr eft-
irmælum skáldsins Einars Bene-
diktssonar um annan sæmdar-
mann.
Þau orð, sem ég festi hér á blað,
verða ekki eftirmæli þar sem talin
eru upp hin mörgu og merku störf,
sem Eyjólfur á Hnausum leysti af
hendi með miklum sóma á óvenju-
langri ævi. Það verður gert af öðr-
um. En ég vil kveðja hann og
minnast hans á skilnaðarstundu.
Kveðja hann er hann ieggur upp f
þá för, sem öllum mannanna börn-
um er búin, og þakka fyrir
ógleymanlega samfylgd. Ég vil
kveðja hann í þeirri trú, sem hann
átti með mér, að dauðinn sé aðeins
áfangi og að skilnaðurinn vari að-
eins um stundarsakir.
Mér er í fersku minni er ég hitti
Eyjólf á Hnausum í fyrsta sinni.
Það var snemmsumars árið 1942.
Ég var á leið með áætlunarbíl
austur að Klaustri. í Vík komu
nokkrir menn í bílinn, þar á meðal
Eyjólfur. Mér varð starsýnt á
þennan vörpulega og höfðinglega
mann. Brosmildur og prúðmann-
legur hélt hann uppi samræðum
við aðra farþega og ég veitti því
strax athygli hve málið sem hann
talaði var hreint og fagurt. Það
duldist mér ekki, að þarna fór
gáfaður og menntaður maður. í
miðju Eldhrauninu yfirgaf hann
bílinn. Þar beið Vilhjálmur sonur
hans með hesta til þess að flytja
föður sinn fram í Meðalland.
Þarna í bílnum var einnig Björn
Runólfsson í Holli. Þeir Eyjólfur
voru að koma af sýslufundi í Vík.
Ekki óraði mig fyrir því þá, að
þessir tveir höfðjngjar ættu eftir
að verða nánir samstarfsmenn
mínir tæpum áratug síðar og ég
ætti eftir að eignast ævilanga vin-
áttu þeirra beggja. Báðir voru þeir
ógleymanlegir menn að gáfum,
prúðmennsku og drengskap. All-
mörg ár eru nú liðin frá dauða
Björns og nú er Eyjólfur kvaddur.
Minningarnar hrannast upp og
alls staðar þar sem Eyjólfur á
Hnausum kemur við sögu ein-
kennast þær af birtu og hlýju.
Jafnvel á allra síðustu árum er
sjón hans var farin og heilsu hans
að öðru leyti tekið mjög að hraka,
stafaði frá honum ylur, sem náði
til hjartans. „Það sem kemur frá
hjartanu nær til hjartans."
Árið 1951 höguðu forlögin því
þannig, að ég fluttist ásamt fjöl-
skyldu minni til Víkur í Mýrdal.
AUstór hópur Vestur-Skaftfell-
inga hafði þá stofnað til félags-
skapar um verzlun og var ég feng-
inn til að veita henni forstöðu. Til
forystu i þessum félagsskap völd-
ust úrvalsmenn, þar á meðal Eyj-
ólfur Eyjólfsson, og nú var það
samstarf okkar hafið, er stóð í
meira en áratug. Þetta var tími
baráttu og sigra. Nú eru allir þeir
góðu drengir, sem með mér stjórn-
uðu Verzlunarfélagi Vestur-
Skaftfellinga, horfnir yfir móðuna
miklu að undanteknum einum,
Bjarna Bjamasyni í Hörgsdai.
Misvitrum mönnum tókst á
nokkrum árum að leggja í rúst
það, sem byggt hafði verið upp af
framsýni og kjarki þeirra forystu-
manna, sem brautina ruddu til
hagsbóta fyrir héraðið rneðan
vitsmuna þeirra naut við.
Þær ánægjustundir, sem ég átti
með Eyjólfi á Hnausum, bæði
meðan ég bjó fyrir austan og einn-
ig eftir að ég var fluttur til
Reykjavíkur, eru ótaldar.
Margar nætur gisti ég á Hnaus-
um, þar sem vinalegur bærinn rís
fast við Eldvatnið. Silfurtært lið-
ast það fram austan við bæinn,
austurbakkinn úfið Eldhraunið,
vesturbakkinn gróið valllendi,
ræktuð tún og uppgræddur fok-
sandur. í uppgræðslu sandsins sá
Eyjólfur árangurinn af brautryðj-
andastarfi sínu varðandi sand-
græðslu í Meðallandi.
Vormorgnarnir við Eldvatnið
gleymast ekki. Eftir næturhvíld
og góðar veitingar var gengið
niður að vatni með veiðistöng og
rennt fyrir sjóbirting. Aldrei fór
ég frá Hnausum á þeim árum án
þess að hafa nýveiddan silung
meðferðis. Þá gladdist Eyjólfur ef
gesturinn hafði fiskað vel.
Eyjólfur Eyjólfsson var flestum
mönnum tryggari, þeim er ég hefi
átt samleið með. Það fann ég best
eftir að ég fluttist burt úr hérað-
inu. Þegar hann átti leið til
Reykjavíkur, reyndi hann að
heimsækja okkur hjónin ef tök
voru á því, en hafði samband við
okkur í síma að öðrum kosti.
Eyjólfur Eyjólfsson fæddist að
Botnum í Meðallandi árið 1889, og
þar lifði hann sín bernsku- og
unglingsár. Sá bær stendur einn
og sér inni í miðju Skaftárelda-
hrauni. Fyrir hvatningu frá sókn-
arprestinum, séra Bjarna Einars-
syni á Mýrum í Álftaveri, fór
hann til náms í Flensborgarskól-
ann og lauk þaðan gagnfræða-
prófi. Hann sótti einnig kennara-
námskeið í Kennaraskóla íslands
og stundaði í mörg ár kennslu í
heimabyggð sinni. Þá var hann
um skeið skólastjóri unglingaskól-
ans í Vík í Mýrdal. Alla ævi jók
hann við þekkingu sína með
sjálfsnámi.
Eyjólfur var með afbrigðum
fróður og minnugur og manna
skemmtilegastur í viðræðu. Hann
var alvörumaður að jafnaði, en þó
var ávallt stutt í brosið og gaman-
semina. Rólegt fas hans og prúð-
mennska i framkomu gerðu það að
verkum, að öllum þótti gott með
honum að vera. Eyjólfur var höfð-
inglegur á velli og vakti hvarvetna
athygli, þar sem hann kom í fjöl-
menni, og var hann þó laus við að
sýnast.
Hin fágaða kurteisi hans var
ekki lærð. Hún var meðfædd og
kom að innan. Því var hún aldrei
yfirdrifin eða tilgerðarleg, heldur
eins og sjálfsögð hver sem við-
mælandi hans var. Ekki vakti
hann síður athygli þegar hann
stóð í ræðustól. Hann þurfti
hvorki að hækka róminn né vera
með leikaralega tilburði. Menn
hlustuðu á hann án þess. íslenzkt
mál lék honum á tungu, hugsunin
skýr og málflutningur allur
byggður á rökfastri yfirvegun.
Reglusemi hans í allri embættis-
færslu var til fyrirmyndar og bera
bæði vinabréf hans og opinber
gögn er frá honum komu vitni um
fagra rithönd og vandaðan texta.
Þótt Eyjólfur væri orðinn há-
aldraður maður, 94 ára, er hann
lézt, hélt hann andlegu þreki fram
undir það síðasta. Hann leit yfir
farinn veg þakklátum huga til
hans, sem lífið gefur, fyrir að hafa
fengið að lifa og starfa svo langa
og viðburðaríka ævi.
Virtur og vinsæll af öllum, sem
af honum höfðu nokkur kynni, er
hann nú horfinn á braut.
Mér er ekki harmur í huga við
fráfall þessa aldna heiðursmanns.
Þeim, sem lifað hefur svo langan
dag sem Eyjólfur Eyjólfsson og
skilað jafn heilladrjúgu dagsverki,
er hvíldin kær. En við, sem þekkt-
um hann og áttum vináttu hans,
erum fátækari en áður og kveðjum
hann með söknuði.
Meðallandið, þessi láglenda
sveit, girt Eldhrauni, eyðisöndum
og ólgandi jökulfljótum, hefur
fyrr og síðar fóstrað rismikla
sonu, ekki síður en aðrar íslenzkar
byggðir, menn sem gnæfðu yfir
fjöldann. Eyjólfur á Hnausum var
einn þeirra.
Guð blessi minningu heiðurs-
manns og veri háaldraðri ekkju
hans og ástvinum öllum stoð og
styrkur.
Ragnar Jónsson
ARU
1800 GLF fjórhjóladrífínn árgerð 1984
er kominn til landsins. Við höldum
upp á það með glæsilegri
Bílasýningu
laugardag og sunnudag kl. 2-5
Þeir hjá Subaru voru fyrsti með hugmyndina að fjórhjóladrifnum fjölskyldubíl
og þeir eru ennþá öruggir í fyrsta sæti. Fyrst var Subaru með 1400 cc vél.
Hún var of lítil. Þá kom 1600 cc vélin. Ekki var krafturinn ennþá nægilegur
fyrir fjórhjóladrifið. Núna er Subaru GLF 4WD með geysi kraftmikilli en
sparneytinni 1800 cc vél. Það er rétta stærðin.
Subaru GLF 4wd árgerð 1984 er
if Upphækkanlegur mvð vinu liuinltuki (og vr mi Sulmrii hár fyrir) Þegar þú vilt
faru miklar vvglvysur vða i snjo mvð vvl hlaðimi liíl.
iy Mvð vlvktorniskri kvvikjii til að nýta livnsmið vnn livtur, svm sagt kraftmeiri
og sparneytnari.
if Mvð algvra nýjiing svm slær í gvgn „llill holder“ Subaru hvldur sjálfur við í
hrekkum, ef þu stoppar. Þú þarft hvorki að stíga á brvmsuna nv nota
handbremsuna.
it Sjálfskiptur. Engan híl í heiminum er jafn auðvelt að setja í fjorhjoladrif og
sjalfskiptan Subaru.
^ Ekki bara með einn lágan gir, heldur Ekta lágt drifsem virkar á alla gira, eins
og íjeppa.
it Með vökvastýri, ef þú vilt.
it Með rafmagnsrúðum, ef þú vilt.
it \ð sjálfsögðu með alla þá aukahluti sem aðrir gorta sig af, en eru sjálfsagðir
í Subaru.
Suharu 188 4WD mest seldi híUinn á íslandi.
(Samkvæmt síðustu tölum Hagstofu íslands)
Afhverju heldur þú ad svo sé?
Eigum enn örfáa fjórhjóladrifna Subaru 700
High Roof Delavery Van sendibifreiðir árg.
1983 á alveg einstaklega hagstæðu verði.
Það er sama hvort þið ferðist með fjölskyld-
una í friið eða flytjið pakka til viðskiptavina.
fjórhjóladrifið erþað einasta eina sem dugir.
lökum llestur gerðir eldri bifreiða upp / nyjar.
. SUBA R U-Fjárfesting sem skilar sér.
INGVAR HELGASON s;m,
SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI
JMtYgtniMfifcft
Metsölublad á hverjum degi!