Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983 Farið á kostum Leiklist Bolli Gústafsson í Laufási Blómasölustúlkan Elfsa (Ragnheiður Steindórsdóttir) og prófessor Higgins (Arnar Jónsson). Leikfélag Akureyrar. May Fair Lady. — Söngleikur f tveimur þáttum, byggður i leikrit- inu Pygmalion eftir Bernhard Shaw. Texti: Alan Jay Lerner. Tónlist: Frederick Lowe. Þýðendur: Egill Bjarnason og Ragn- ar Jóhannesson. Leikstjóri og höfundur dansa: Þór- hildur Þorleifsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Roar Kvam. Leikmynd: Jón Þórisson. Búningar: l'na Collins. Lýsing: Viðar Garðarsson. í rúma sjö áratugi hefur leikrit Bernhards Shaw, Pygmalion, far- ið sigurför um heiminn, eða allt frá því að það var sýnt í fyrsta sinn árið 1912. Shaw skrifaði það fyrir pennavinkonu sína, Stellu Campbell, er síðan lék aðalhlut- verkið er verkið var sviðsett í London. Á ofanverðri öldinni hef- ur sagan um hamskipti blóma- sölustúlkunnar fávísu orðið kunn- ari og ennþá vinsælli í amerískum búningi; léttum söngleik, sem Lerner og Lowe gerðu úr verkinu og hlaut nafnið May Fair Lady. En efni þessa bráðskemmtilega gamanleiks er ekki án ádeilu fremur en önnur verk Shaws. Hann leitast þar við að sýna fram á, að gamalkunn og skörp stétta- skipting á Englandi sé fyrst og fremst fólgin í mismunandi fram- burði og málfari. Hann lætur þjóðfræðiprófess- orinn Henry Higgins veðja um það við vin sinn, að hann geti eftir sex vikna æfingu kynnt þessa óupplýstu blómasölustúlku, Elísu Doolittle, sem hertogaynju í sam- kvæmislífi æðri stétta. Hann heldur því fram, að takist Elísu að leggja niður fláan cockney- framburð, muni engum koma til hugar að hún sé af lágum stigum. Mesta skopið er fólgið í lítt skilj- anlegum rassambögum Elísu, og leikritið var óbeinn þáttur í stöð- ugri en næsta árangurslítilli bar- áttu Shaws fyrir endurbættum réttritunarreglum, sem áttu að færa enskt ritmál nær talmáli. Raunar höfðar ádeilan lítt til aðstæðna hér á landi. Islensk al- þýða hefur löngum talað vandað mál og kunnað skil á góðum skáldskap. Sem kunnugt er hafa ýmsir mætustu rithöfundar okkar talið að gamlar, óskólagengnar al- þýðukonur hafi verið þeim til fyrirmyndar um fegurst málfar og lifandi frásagnarlist. Því á málfarsádeila Shaws lítið erindi hér á landi enn sem komið er, þótt margt bendi til að svo kunni að fara síðar. Við þá breytingu sem þeir fé- lagar, Lerner og Lowe, gerðu á leikritinu, verður það að léttum, dálítið rómantískum söngleik, sem krefst hljómsveitar, góðra söngkrafta, dansara og margbrot- innar sviðssetningar. Er mér i minni sýning Þjóðleikhússins á May Fair Lady árið 1962; þá var þetta stærsta og best búna leik- svið á íslandi notað til hins ítr- asta og virtist ekki mega þrengra vera. Þess vegna þóttu mér það mikil tíðindi og bera vott um óraunsæja dirfsku, er forráða- menn Leikfélags Akureyrar ákváðu að setja þetta fyrirferð- amikla verk á svið í gamla Sam- komuhúsinu. Ljóst er, að með bjartsýni, hugkvæmni og sam- stilitu átaki má hrinda ótrú- iegustu hlutum i framkvæmd. Minnisstætt dæmi um slíkt þrek- virki hér á Norðurlandi var sýn- ing Leikfélags Húsavíkur á Fiðl- aranum á þakinu fyrir nokkrum árum. Og nú hefur hið 10 ára gamla atvinnuleikhús á Akureyri minnst merkra tímamóta með frábærri sýningu á May Fair Lady, sem með sanni má kalla ótrúlegt afrek samstilltra og dug- andi listamanna. Þetta er fjöimennasta sýning, sem Leikfélag Akureyrar hefur sett á svið. Leikarar eru níu tals- ins, sex dansarar, sautján söngv- arar úr Passíukórnum og fimm- tán manna hljómsveit Tónlist- arskólans á Akureyri. Sé í fyrstu vikið að umgerð leiksins þá hefur Jóni Þórissyni tekist hönnun leikmyndar með af- brigðum vel. Hugkvæmni hans er einstök og gerir senuskipti að því er virðist fyrirhafnarlaus, en all- ur svipur er einkar traustur og sannfærandi. Sama má segja um gerð búninga, sem unnir eru af Unu Collins, og auka á reisn og sannan svip sýningarinnar. Tón- listarflutningur er veigamikill þáttur sem vænta má. Þar sýnir stjórnandinn, Roar Kvam, hversu fjölhæfur iistamaður hann er. Fram að þessu hefur hann að mestu sinnt alvarlegri gerð tón- listar og einvörðungu í konsert- formi. Hér laðar hann fram létta og blæbrigðaríka leikhústónlist með fólki sem komið er misjafn- lega iangt á tóniistarbrautinni. Hljómsveitina skipa nemendur og kennarar Tónlistarskóians, og söngfólk er úr Passíukórnum. Hjá Roari fer hér saman næm tilfinn- ing fyrir verkinu og mikilvægur agi, sem allir virða og á rætur að rekja til sjálfsaga hans og mikils viljastyrks. Það er ástæða til þess að óska honum til hamingju með frábæran þátt hans og tónlistar- fóiksins í þessari sýningu. Vel hefur tekist með skipan leikara í hlutverk. Aðalhlutverk eru í höndum Ragnheiðar Stein- dórsdóttur, sem leikur biómasölu- stúlkuna Elísu, og Arnars Jóns- sonar, sem leikur hlutverk pró- fessors Higgins. Ragnheiður fer hægt af stað og vinnur á með tiigerðarlausum þokka og miklu öryggi svo aldrei finnast bláþræð- ir í túlkun hennar á þessu lifandi leikfangi þeirra málvísindamann- anna, sem lætur ekki blekkjast til iengdar og lærir mæta vel að tak- ast á við nýja tilveru. Arnar spennir bogann hátt þegar í upp- hafi og leikur hans einkennist af sterkum átökum til enda. Hann forðast þá mynd sem kunn er 1 íslenskum leikhúsum, þegar leiknir eru enskir hefðarmenn og einkennist helst af einskonar Ox- fordframburði á íslenskunni með tilheyrandi töktum og tilgerðar- látæði. Framburður Arnars er frábær, skýr og blæbrigðaríkur og sviðshreyfingar öruggar, en viðbrögð hans óþarflega hörð á stundum. Félaga Higgins, Picker- ing ofursta, leikur Marinó Þor- steinsson af hlýrri kímni og ör- uggum skilningi. Þráinn Karlsson fer á kostum í hlutverki Alfreðs Doolittle, föður Elísu. Það er ósvikinn gamanleikur sem hann sýnir er gneistar af makalausu lífi í látbragði, dansi, söng og fram- setningu allri. Þórey Aðaisteins- dóttir leikur frú Pears, ráðskonu prófessorsins, á einkar viðfelldinn hátt. Sunna Borg leikur móður hans með reisn og giæsibrag, Gestur E. Jónasson og Theódór Júlíusson fara vel með fleiri en eitt hlutverk hvor, og Patricia Jónsson er skemmtilega drottn- ingarleg. Þáttur leikstjórans hlýt- ur að vera veigamestur þegar þessi athyglisverða sýning er met- in og óhætt er að segja að Þór- hildur Þorleifsdóttir vinnur hér mikið þrekvirki. Hún er og höf- undur dansa og raunar er styrkur sýningarinnar ekki síst fóiginn í öryggi og nákvæmni í hreyfingum leikara, dansara og söngvara. Þrátt fyrir hin þröngu mörk, sem lítið svið setur fjölmennum söng- leik, gengur allt hnökralaust frá upphafi til enda og meira en það. Sýningin er gædd leikandi töfr- um. Snilldartök leikstjórans virð- ast undraverð og bera svo sann- arlega margiit og ilmandi blómst- ur. Það er ástæða til að óska LA til hamingju með þessa sýningu. Hún er merkur áfangi í sögu þess sem atvinnuleikhúss og viðbrögð áhorfenda á frumsýningu nú á föstudagskvöldið báru með sér að enginn varð fyrir vonbrigðum. Að loknu langvarandi lófaklappi hélt formaður LA, Guðmundur Magn- ússon, ræðu og minntist þessara tímamóta. Sérstakar þakkir flutti hann Jóni Kristinssyni fyrir þátt hans í stofnun atvinnuleikhúss á Akureyri. Færði hann honum og konu hans gjöf og blóm frá leikfé- laginu fyrir óeigingjarnt braut- ryðjendastarf þeirra í þágu þess. Svo skemmtilega vill til að þau hjón eru foreldrar Arnars Jóns- sonar og tengdaforeldrar Þórhild- ar Þorleifsdóttur. Jón hefur um áratugaskeið starfað i Leikfélagi Akureyrar og verið þar í hópi traustustu leikara. Það dró ekki úr fagnaðarlátum er Vala Krist- jánsson gekk fram á sviðið og færði Ragnheiði Steindórsdóttur blóm, en sem kunnugt er lék Vala hlutverk Elísu í Þjóðleikhúsinu 1962 og hlaut mikið lof fyrir leik sinn þá. Fagnaðarlátum áhorfenda ætl- aði seint að iinna í Samkomuhús- inu á Akureyri á frumsýningunni. Það er sannarlega von mín og ósk að þau réttmætu viðbrögð séu undanfari mikillar aðsóknar. Það er sannarlega vel þess virði að ieggja á sig langt ferðalag til að sjá My Fair Lady í leikhúsinu í höfuðstað Norðurlands. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Halló dömurl Sokkaviðgerö Geri viö nælonsokka, sjúkra- sokka, sportsokka, sokkabuxur, einnig þunnar peysur. Allt veröur aö vera hreint. Fljót og góö af- greiösla. Vönduö vinna. Af- greiöslutími aöeins þriöjudaga og laugardaga milli kl. 1—6 eftir hádegi í sima 50074. Ftagnheiöur Kristín Arinbjarnar, Suöurgötu 81, uppi, Hafnarfiröi. Geymiö auglýsinguna. Auglýsi aöeins einu sinni. Au pair stúlka óskast til N.Y. New Roch- elle, USA. Upplýsingar i sima 22754. Heildsöluútsalan selur ódýrar sængurgjaflr o.fl. Freyjugötu 9. Opiö frá kl. 13—18. Ljóömæli Herdísar og Ólínu og Litla skinnið til sölu á Hagamel 42, simi 15688- I.O.O.F. 3 = 16510248 = □ Mimir 598310247 — 1. Frl. □ Gilmi 59832107 = 2. I.O.O.F. 10 = 16510248 '/4 = 9.1. Fimir fætur Dansæfing og aöalfundur fé- lagsins veröur í Hreyfilshúsinu sunnudaginn 23. okt. kl. 21.00. Mætiö tímanlega. Nýir félagar ávallt velkomnir. ®SAMTÖK AHUGAMANNA UM HEIMSPEKI POSTMOLF 4407 124 RVK Leshringar um andlega heim- speki, viddareölisfræöi, stjörnu- speki og andlega sálarfræöi. Krossinn Almenn samkoma í dag kl. 16.30 aö Álfhólsvegi 32, Kópavogi. Bræöur frá Bandaríkjunum taka þátt f samkomunnl. Allir hjart- anlega velkomnir. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Dagsferðir sunnudag- inn 23. október: 1. kl. 10. Hengillinn — Hengla- j dalir. Verö kr. 300. j 2. kl. 13. Skarösmýrarfjall — j Hengladalir. Verö kr. 300. Brottför frá Umferöarmiöstöö- inni, austanmegin. Farmiöar viö bíl. Frítt fyrlr börn í fylgd fullorö- inna. Feróafólk athugiö aö j Feröafélagiö notar sjálft sælu- húeiö I Þórsmörk helgina 22.—23. október og er ekki unnt aö fá gistingu þar þessa helgl. Feröafélag Islands. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Mánudaginn 24. október kl. 20.30 efnir Feröafélag Islands í samvinnu viö Islenska Alpa- klúbbinn til kynningar á fatnaöl til vetrarferöa og skíöagöngu- búnaöi, á Hótel Heklu, Rauöar- j árstíg 18. Torfi Hjaltason og j Guöjón Ó. Magnússon kynna. Hér gefst gott tækifæri til þess aö fá upplýsingar um kiæönaö i j vetrarferöum frá þelm sem þekkinguna hafa. Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir. Veitingar í j hléi. Feröafélag Islands. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Sunnudagaskóli kl. 10.30. Safn- aöarsamkoma kl. 14.00. Ræöu- maöur Óskar Gislason. Fleirl samkomur veröa ekki i klrkjunnl þann dag vegna vígslunnar aö Völvufelli 11, sem fram fer kl. 16.00 fyrir safnaöarmeölimi og velunnara. KFUM og KFUK Amtmannsstíg 2B Kristsvakning 1983 hefst í kvöld kl. 20.30. „Trúrækni min er í góöu lagi' Vitnisburöur Krlstín Möller. Söngur: Æskulýöskór KFUM og KFUK. Ræóumaöur: j Margrét Hróbjartsdóttir. Söngstofa veröur opln eftir sam- komuna. Allir velkomnlr. KFUM og KFUK Amtmannsstíg 2B Önnur samkoman í Kristsvakn- ingu 1983 veröur á morgun kl. 20.30. „Ég er of skynsamur tll aö trúa.* Vitnisburöur: Skarphéöinn Hjartarson. Söngur: Litli kórlnn. Ræöumaöur: Séra Karl Slgur- björnsson. Rabbstofa eftlr sam- komuna. Allir velkomnir. UTIVÍSTARFERÐIR Sunnudagur 23. okt. Kl. 13 Grindaskörö — Drauga- hliöar. Allir meö. Verö 250 kr. Frítt f. börn m. fulloröunum. Brottför frá bensínsölu BSl. Upplýsingar í simsvara: 14606. Sjáumst! Útlvist. ÚTIVISTARFERÐIR Myndakvöld Fimmtud. 27. okt. kl. 20.30 í sal Sparisjóös Vélstjóra (kjallara) aö Borgartúni 18. Úrvalsmyndir úr Hornstrandaferöum sumarsins. Kaffiveitingar i hlél. Alllr vel- komnlr. Jónsferð í Þórsmörk Helgarferð 28.—30. okt. Minningarlerö um Jón I. Bjarna- son. Aillr sem honum kynntust eru hvattir til aö mæta. Uppl. og fars. á skrifst., Lækjargötu 6A. Sjáumstl Útivlst skíðadeild Þrekæfingar veröa framvegis ( ÍR-húsinu viö Túngötu mánudag og fimmtudag kl. 18.50. Stjórnin Hörgshlíð 12 Samkoma í kvöld, sunnudag kl. 8. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Sunnudag kl. 11.00 fjölskyldu- skemmtun. Kaptelnn Danlel Óskarsson stjórnar og talar. Kl. 20.00 bæn. Kl. 20.30 hjálprasó- issamkoma. Mánudag kl. 16.00 heimilasambandsfundur. Vel- komin. Sálarrannsóknar- félag íslands Breski miöillinn Eileen Roberts heldur skyggnilýsingafund i Hót- el Heklu, þrlöjudaginn 25. okt. og fimmtudaginn 27. okt. kl. 20.30. Aögöngumlöar fást á skrifstofu félagsins. Stjórnln Elím, Grettisgötu 62, Reykjavík i dag, sunnudag, veröur sunnu- dagaskóli kl. 11.00 og almenn samkoma kl. 17.00. Athugió breyttan samkomutíma. Veriö velkomin. I-Hróóleikur og -A. skemmtun fyrirháa sem lága! J9to¥gtsttMnfoib

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.