Morgunblaðið - 08.11.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983
41
fólk í
fréttum
Nautið
vann
-f Þjóðaríþrótt Spánverja er nautaat og sigursælir nautabanar eru vinsælustu mennirnir þar í landi. Þessi, sem
myndin er af, er ekki I þeim flokki, því að hann mátti lúta í lægra haldi fyrir nautinu, sem lagói bæói hann og
hestinn aó velli. Svona útreió hlýtur aó vera matröð hvers eins og einasta nautabana. Efst er nautió, þá kemur
hesturinn og svo hetjan sjálf undir öllu saman.
+ Dolly Parton, sem leikur á móti Sylvester Stall-
one í myndinni „Rhinestone Cowboy“, hefur mikla
og fagra rödd eins og kunnugt er, en hún er líka
mikil aö ýmsu öóru leyti. Hún er t.d. svo brjósta-
stór, aö þaö varó aö breyta handriti myndarinnar
örlítið á einum stað.
Þau Dolly og Sylvester áttu að dansa vangadans
í einu atriöinu, en það reyndist ekki unnt. „Ég
komst bara ekki nógu nálægt,“ sagði Sylvester.
„Brjóstin voru á milli.“
Falsaðar
nektarmyndir
+ Norska
söngkonan
Wencke Myhre,
sem náö hefur
miklum vinsæld-
um í Vestur-
Þýskalandi, hef-
ur nú farið í mál
við tímarit nokk-
urt þar í landi og
krafist um 550.
000 ísl. kr. í
skaðabætur
vegna nektar-
mynda sem tíma- ®
ritið birti og
sagði vera af
Myhre.
Sannleikurinn var hins vegar sá, að notaðar voru
nektarmyndir af einhverri annarri stúlku og síðan
höfð endaskipti á andlitsmyndunum. Þýska tímaritið
hefur áður leikið þennan leik með frönsku söngkon-
una Mireille Mathieu og leikkonurnar Senta Berger
og Uschi Glas og allar hafa þær farið fram á sömu
skaðabæturnar og Myhre.
Tom
Jones
a
fornum
slóðum
+ Tom Jones var nýlega á ferð í fæðingarbæ sínum, Treforest Pontypridd í Wales, og lét þá ekki hjá líða að
koma við í gömlu kránni, þar sem hann kneyfaði síðast ölið fyrir 20 árum. Tom Jones var að sjálfsögðu tekið
með kostum og kynjum og ánægðastur var hann Harry Beard, sem er 85 ára og aldursforseti í námamanna-
klúbbnum. Hér sjást þeir félagarnir og að sjálfsögðu skála þeir í Guinness-bjór.
BUXUR
Nú er ástæða til að endurnýja
baðblöndunartækið og fá
hitastillt^?í staðinn
HEÐINN
SELJAVEGI 2, SlMI 24260
Mótatimbur
Timburverzlunin
Volundur hf.
Klapparstíg 1. Sími 18430. Skeifunni 19. Sími 84244.