Morgunblaðið - 10.11.1983, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983
Peninga-
markadurinn
GENGISSKRÁNING
NR. 211 — 09. NÓVEMBER
1983
Kr.
Kin. Kl. 09.15 Kaup
I Dollar 28,110
1 SLpund 41,638
1 Kan. dollar 22,744
1 Dönsk kr. 2,9106
I Norsk kr. 3,7649
I Ssnskkr. 3,5598
1 Fi. mark 4,8989
I Fr. franki 3,4491
I Belg. franki 0,5164
1 Sv. franki 12,9123
1 lloll. Kvllim 94599
1 V þ. mark 10,4863
1 ÍLIíra 0,01730
I Austurr. sch. 1,4901
I PorL escudo 0,2209
1 Sp. peseti 0,1815
1 Jap. yen 0,11901
1 frskt pund 32,664
SDR. (SérsL
dráttarr.) 08/11
1 Belg. franki
Kr. Toll-
Sala gengi
28,190 27,940
41,756 41,707
22,808 22,673
2,9189 2,9573
3,7757 3,7927
3,5699 34821
4,9129 4,9390
3,4589 34037
04179 0,5245
12,9490 13,1513
9,3865 9,5175
104161 10,6825
0,01735 0,01754
1,4943 14189
04215 0,2240
0,1820 0,1840
0,11935 0,11998
32,757 33,183
29,5562 29,6403
04113 04128
J
Vextir: (ársvextir)
Frá og með 21. október 1983
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóösbækur..............32,0%
2. Sparisjóösreikningar, 3 mán.1*.34,0%
3. Sparisjóösreikningar, 12. mán.1)... 38,0%
4. Verðtryggöir 3 mán. reikningar.0,0%
5. Verötryggðir 6 mán. reikningar. 14%
6. Ávisana- og hlaupareikningar. 19,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæöur í dollurum...... 7,0%
b. innstaaöur í steriingspundum. 8,0%
c. innstæöur í v-þýzkum mörkum... 4,0%
d. innstæður í dðnskum krónum.... 7,0%
1) Vextir færöir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
HÁMARKSVEXTIR
(Verðbótaþáttur í sviga)
1. Vixlar, torvextir... (274%) 304%
2. Mlaupareikningar ... (28,0%) 304%
3. Afuröalán, endurseijanleg (254%) 294%
4. Skuldabréf ......... (334%) 37,0%
5. Visitölubundin skuldabréf:
a. Lánstimi minnst 6 mán. 24%
b. Lánstími minnst 2% ár 24%
C. Lánstími minnst 5 ár 34%
6. Vanskilavextir á mán.........4,75%
Lífeyrissjóðslán:
Lífeyrissfóður starfsmsnna rfkisins:
Lánsupphaéö er nú 260 þúsund ný-
krónur og er lániö vísitölubundiö meö
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstimi er allt aö 25 ár, en getur verlö
skemmri, óski lántakandi þess, og elns
ef eign sú, sem veö er í er lítilfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Lrfeyrissjóöur verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lifeyrissjóönum 120.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 10.000 nýkrónur, unz
sjóösfélagi hefur náö 5 ára aðlld aö
sjóönum. Á tímabilinu frá 5 tll 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfi-
legrar lánsupphæöar 5.000 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungi. en eftir 10 ára
sjóösaöild er lánsupphæöin oröln
300.000 nýkrónur. Eftlr 10 ára aölld
bætast viö 2.500 nýkrónur fyrlr hvern
ársfjóröung sem liöur. Þvi er í raun ekk-
ert hámarkslán i sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en iánsupphasöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravfeitala fyrlr október 1983
er 797 stig og er þá miöaö viö vísitöluna
100 1. júní 1979.
Byggingavisitala fyrlr október—des-
ember er 149 stig og er þá miöaó vlö
100 i desember 1982.
Handhafaskuldabréf f fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextlr eru nú
18—20%.
Útvarp kl. 21.55:
„Ég, hið silfraða sjal“
Smásagan, „Ég, hið silfraða
sjal“ eftir Guðrúnu Kristínu
Magnúsdóttur, verður á dagskrá
útvarpsins í kvöld. Guðrún
Kristín les sjálf sögu sína, sem
útvarpað verður klukkan 21.55.
Að sögn höfundar fjallar sag-
an um ferðalag sjalsins til ls-
lands, frá París og líf þess á ís-
landi. „Sjalið segir sjálft frá,“
segir Guðrún Kristín, „þannig að
sagan er skrifuð í fyrstu per-
sónu. Silfraða sjálið er til sölu í
verslun í Parísarborg. Þangað
inn kemur íslenskur maður sem
hrífst af því og kaupir það. Hann
tekur sjalið síðan með sér til ís-
lands og gefur konu sinni það.
Sjalinu finnst það ekki njóta
þeirrar virðingar sem því ber, og
finnst það verða undir í barátt-
unni. Frúin, eigandi silfraða
sjalsins, skartar því aðallega við
jarðarfarir og þess háttar sam-
kundur, en sjalinu finnst það
ekki vera umlukið þeim glæsi-
leika, sem það hefði kosið. Að
lokum hafnar það sem ábreiða á
barnavagni nokkrum.
Ég kýs að lesa söguna sjálf og
hef áður flutt frumsamið efni í
útvarp. Einnig hef ég verið með
barnaefni í sjónvarpinu. Um
tíma vann ég sem leirlistamað-
ur, en nú hef ég aðallega snúið
mér að myndskreytingum í
barnabækur mínar. Fyrstu
barnabækurnar mínar koma á
jólamarkaðinn í ár, það eru
„Bangsabækur“,“ sagði Guðrún
Kristín Magnúsdóttir.
Guörún Kristín, les sögu sína „Ég,
hið silfraða sjal“ í útvarpi klukkan
21.55 í kvöld.
Útvarp kl. 20.35:
„Konurnar í
kringum Lúter4<
„Við fjöllum einkum um tvær
konur í lífi Lúters," sagði séra
Hreinn Hákonarson, sem ásamt
séra Gunnari Björnssyni sér um
þáttinn „Konurnar í kringum
Lúter".
„Þessar tvær konur eru Mar-
grét, móðir Lúters og Katrín af
Bóra, eiginkona hans. Lúter
Margrét, móðir Lúters.
mótaðist mjög af móður sinni,
sem var ströng og trúrækin
kona. Hún var einnig mjög söng-
fim og hann lærði söng hjá
henni.
Lúter hjálpaði eitt sinn níu
nunnum að flýja úr klaustri. Þar
á meðal var Katrín. Hann setti
upp nokkurskonar hjónabands-
miðlun til að koma konunum á
fastan kjöl í lífinu. Hann kom
þeim í kynni við aðalsmenn.
Þýskur aðalsmaður sveik Katr-
ínu í tryggðum og fór svo að Lút-
er og hún giftu sig. í hjónabandi
þeirra gekk á ýmsu. Lúter hafði
ekkert fjármálavit, hann átti
það til að gefa húsmuni, ef óskað
var eftir því.
Þau hjónin eignuðust sex
börn, tvö þeirra dóu í æsku. Ólu
þau einnig upp fjögur munaðar-
laus börn. Lúter og Katrín fengu
Ágústínusarklaustur til ábúðar,
sem var stórt hús. Þau höfðu
einatt margt manna á heimili
sínu. Þar voru í fæði stúdentar,
háskólakennarar, þurfalingar og
betlarar.
Lúter var á þeirri skoðun að
maðurinn ætti að vera höfuð
konunnar í hjónabandinu og
Minnismerki um Lúter í Witten-
berg.
konan ætti að vera manninum
undirgefin. Lúter dó 18. febrúar
1546, en Katrín lést af slysförum
20. desember 1552.“
Hreinn sagði að þátturinn
væri unninn í tengslum við Lút-
ersviku og hefði undirbúningur
þáttarins tekið um eina viku.
„Konurnar í kringum Lúter“ er á
dagskrá útvarpsins klukkan
20.35 og er tæplega klukkustund-
ar langur.
Útvarp kl. 20:
Fimmtudagsleikritið -
Ódauðleiki
— Örlagarík samfylgd
Lín pe og tömdu
trönunnar hans
Útvarpsleiklistarstjórar á
Norðurlöndum ákváðu árið 1982
að velja eina smásögu eftir nor-
rænan höfund og láta gera upp
úr henni útvarpsleikrit, hver í
sínu landi.
Fyrir valinu varð smásagan
um skáldið Lín Pe og tömdu
trönuna hans, eftir William
Heinesen. Þorgeir Þorgeirsson,
rithöfundur, var beðinn um að
semja hina íslensku leikgerð
sögunnar, sem flutt verður í út-
varpinu í kvöld, klukkan 20.
Leikritið nefnist Ódauðleiki og
leikstýrði Þorgeir því sjálfur.
Sagan segir frá för hins aldr-
aða kínverska skálds Lín Pe á vit
eilífðarinnar. í fylgd með honum
er trana sem skáldinu var afar
kær í jarðlifinu. Sú samfylgd
reynist örlagarík, því að böndin
við duft jarðar eru býsna sterk,
þegar til kastanna kemur.
Leikritið byggir að hluta til á
notkun leikhljóða og tónlistar.
Leikarar eru Sólveig Halldórs-
dóttir, Baldvin Halldórsson, Erl-
ingur Gíslason, Árni Tryggvason
og Valur Gíslason.
Útvarp Reykjavik
r
FIMAUUDKGUR
10. nóvember
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Á virkum degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorð: Gísli Frið-
geirsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Leitin að vagnhjóli" eftir
Meindert DeJong. Guðrún
Jónsdóttir les þýðingu sína (30).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
foustugr. dagbl. (útdr.).
10.35 „Ég man þá tíð“. Lög frá
liðnum árum. Úmsjón: Lóa Guð-
jónsdóttir.
11.05 „Eftir leiksýningu“, smá-
saga eftir Einar Kristjánsson.
Höskuldur Skagfjörð les.
11.25 Sjóuglan og Spaelimennirnir
í Hoydölum leika djass og létta
tónlist.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 A bókamarkaðinum. Andrés
Björnsson sér um lestur úr nýj-
um bókum. Kynnir: Dóra Ingva-
dóttir.
SÍDDEGID__________________________
14.30 Á frívaktini. Margrét Guð-
mundsdóttir kynnir óskalög sjó-
manna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. Eva
Knardahl leikur á píanó „Þjóð-
lífsmyndir“ op. 19 eftir Edvard
Grieg/ Kadoslav Kvapil leikur
Tvo menúetta op. 28 og Im-
promptu í G-dúr eftir Antonín
Dvorák/ Francis Poulenc og
Jacques Fevrier leika fjórhent á
píanó „La Belle Excentrique",
fantasíu eftir Erik Satie/ Aldo
Ciccolini leikur á píanó Þrjár
„Gymnopediur" eftir Erik
Satie.
17.10 Síðdegisvakan.
18.00 Af stað með Tryggva Jak-
obssyni.
18.10 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDID__________________________
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Erlingur Sigurð-
arson flytur þáttinn.
19.50 Við stokkinn. Stjórnendur:
Guðlaug María Bjarnadóttir og
Margrét Ólafsdóttir.
20.00 Leikrit: „Odauðleiki" til-
brigði fyrir útvarp í framhaldi af
sögu William Heinesen um
„Skáldið Lín Pe og trönuna
hans tömdu“. Leikgerð: Þorgeir
Þorgeirsson. Leikendur: Sólveig
Halldórsdóttir, Árni Tryggva-
son, Erlingur Gíslason, Baldvin
Halldórsson og Valur Gíslason.
20.35 Konurnar í kringum Lúther.
Umsjón: Séra Gunnar Björns-
son og séra Hreinn Hákonar-
son.
21.30 Gestur í útvarpssal. Norski
fíðluleikarinn Sven Nyhus leik-
ur norsk þjóðlög.
21.55 „Ég hið silfraða sjal“, smá-
saga eftir Guörúnu Kristínu
Magnúsdóttur. Höfundur les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Ljóð og mannlíf. Umsjón:
Einar Arnalds og Einar Krist-
jánsson.
23.00 Síðkvöld með Gylfa Bald-
urssyni.
FÖSTUDAGUR
11. nóvember
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Á döfínni.
Umsjónarmaöur Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.55 Stóri boli.
Bresk dýralífsmynd tekin í
Kenya um Afríkuvísundinn sem
veiðimenn telja mesta viðsjáls-
tírip-
Þýðandi og þulur Gylfí Pálsson.
21.20 Kastljós.
Umsjónarmenn Einar Sigurðs-
son og Helgi E. Helgason.
22.25. Davið.
Þýsk bíómynd frá 1979.
Leikstjóri Peter Lilienthal. Að-
alhlutverk: Walter Taub, Irena
Urkljan, Eva Mattes, Mario
Fischel.
Davíð er saga gyðingadrengs og
fjölskyldu hans í Þýskalandi á
valdatímum nasista. Myndin
lýsir vel hvernig gyðingar
brugðust við atburðum þessa
tímabils og ofsóknum á hendur
þeim.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.