Morgunblaðið - 01.12.1983, Page 1
64 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
276. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Öl.K.M.
í dag eru liðin 65 ár síðan ísland varð fullvalda ríki. Að venju minnast stúdentar fullveldisdagsins með hátíðar-
dagskrá, sem að þessu sinni er á vegum Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Sjá frétt um hátíðarhöldin á
miðopnu blaðsins.
Fundust á náttfötum
hlekkjaðir við vegg
Heineken og bflstjóra hans var bjargað í gær
Amsterdam, 30. nóvember. AP.
ALFRED HEINEKEN, forstjóra
Heineken-bjórverksmiðjanna í
Hollandi og bílstjóra hans, Ab
Doderer, var bjargað heilum á
húfi í morgun úr höndum mann-
ræningjanna, sem höfðu haldið
þeim föngnum í þrjár vikur. Fund-
ust þeir í náttfótum einum klæða
hlekkjaðir við vegginn í litlum
klefum í vöruhúsi í útjaðri Amst-
erdam. Lausnarfé hafði verið
greitt fyrir þá á mánudag, en þeg-
ar þeir voru ekki látnir lausir,
greip lögreglan til sinna ráða. Báð-
ir voru mennirnir við góða heilsu
og voru þeir strax fluttir til heimil-
is Heinekens, sem öflugur vörður
gætir.
Hollenzka lögregian greip jafn-
framt til mikilla aðgerða gegn
þeim, sem grunaðir eru um að
hafa staðið að mannráninu, og
voru 24 menn handteknir í dag í
Amsterdam og nágrannabænum
Zwanenburg. Hinir handteknu eru
allir ýmist skyldir eða tengdir
innbyrðis, og eru þeirra á meðal
þrír menn, sem taldir eru for-
sprakkar hópsins. Jafnframt tókst
lögreglunni að ná aftur verulegum
hluta af lausnarfénu, en það hafði
verið greitt í hollenzkri, banda-
rískri, franskri og vestur-þýzkri
mynt. Fannst þetta fé á heimilum
hinna grunuðu.
Samkvæmt frásögn hollenzku
lögreglunnar var lausnarféð greitt
fyrir mennina á mánudag. Ekkert
var sagt um, hve mikið það var, en
hollenzku blöðin hafa haldið því
fram, að það næmi 30—35 millj.
gyllina (um 300 millj. ísl kr.).
Lögreglan komst á sporið í leit
sinni að mönnunum tveimur og
þeim, sem rændu þeim, er óþekkt-
ur maður hringdi til hennar og
lagði til, að hafðar yrðu gætur á
bílaverkstæði einu í útjaðrinum á
vesturhluta Amsterdam. Geysileg
leynd var höfð á öllum aðgerðum
lögreglunnar í þessu máli, og
fengu fjölmiðlar aldrei að vita
hvað var að gerast hverju sinni, á
meðan leitin stóð yfir.
Otto Lambsdorff:
„Ekki þegið eitt
mark frá Flick“
Bonn, 30. nóvember. AP.
OTTO LAMBSDORFF, efnahags-
málaráðherra Vestur-Þýzkalands,
vísaði í dag alfarið á bug öllum ásök-
unum saksóknarans í Bonn um að
hann hefði tekið við mútum frá
Flick-samsteypunni. Lét Lambsdorff
frá sér fara yfirlýsingu eftir ríkis-
stjórnarfund í morgun, þar sem
hann sagði: „Ég hef ekki tekið við
einu marki frá Flick“.
Þá sagði Lambsdorff ennfrem-
ur, að Flick hefði ekki hyglað sér á
nokkurn annan hátt og alls ekki
haft nokkur áhrif á ákvarðanir
sínar eða gerðir. Yfiriýsing
Lambsdorffs er talin gefa til
kynna, að hann hyggist ekki segja
af sér eða að minnsta kosti ekki
fyrr en viðkomandi dómstóll hefur
.
Mynd þessi er af klefanum, sem
hollenzki bjórframleiöandinn Alfred
Heineken var hafður í þrjár vikur,
eftir að honum var rænt 9. nóvember
sl. Klefi þessi er í vöruhúsi í útjaðri
Amsterdam.
úrskurðað, að ákæran skuli tekin
fyrir, en þangað til kunna að líða
sex mánuðir
Smyslov
vaim Ribli
meö glæsi -
legri sókn
VASSILEY Smyslov, 62ja ára fyrrver-
andi heimsmeistari frá Sovétríkjun-
um, gersigraði llngverjann Zoltan
Sibli í fimmtu einvígisskák þeirra í
London í gærkvöldi. Þó að Smyslov
sé 30 árum eldri en Hngverjinn voru
engin ellimörk á taflmennsku hans
og með glæsilegri sóknartafl-
mennsku þvingaði hann andstæðing
sinn til aö gefast upp í 41. ieik.
Smyslov fórnaði fyrst riddara og
síðan hrók, sem leiddi að iokum til
þess að hann vann drottningu
Riblis. Þar með náði Smyslov, sem
er langelsti þátttakendinn í áskor-
endakeppninni, forystunni í ein-
víginu. Hann hefur nú þrjá vinn-
inga, en Ribli tvo. Sá sem fyrr nær
6V4 vinningi gengur með sigur af
hólmi.
Sjá nánar bls. 5.
Gullránið óleyst:
Scotiand
Yard sætir
gagnrýni
London, 30. nóvember. AP.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, kom ad Berlínarmúrnum:
„Það er skelfilegt að
koma að þessum múr“
„FERÐIN hefur gengið prýöilega og öll atvik hennar eru mér jafn
minnisstæð," sagði Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, í samtali við
Morgunblaðið í gær, en forsetinn er nú staddur í Kaupmannahöfn og
mun dveljast þar fram á sunnudag.
„Menningardagarnir í V-Berl-
ín eru stórmerkilegt fyrirbæri.
Þarna voru komnir fimmtán
listamenn með sín verk og það
var opnuð grafíksýning, ljós-
myndasýning, það voru haldnir
tónleikar, þar sem fram komu
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Ein-
ar Jóhannesson, Þorkell Sigur-
björnsson og Manuela Wiesler,
og léku íslensk verk. Þá voru
bókmenntakynningar, þar sem
Jón Laxdal las á þýsku upp úr
íslenskum bókum, bæði ljóð og
prósa. Allt fékk þetta frábæra
dóma og það var vel um þetta
fjallað í blöðum og vel um þetta
talað," sagði Vigdís.
„Þá voru sýndar tvær kvik-
myndir Ágústs Guðmundssonar,
Land og synir og Útlaginn, og
það var yfirfullt bæði á tónleik-
um og kvikmyndasýningunum,"
sagði Vigdís.
Þegar Vigdís var stödd í
V-Berlín kom hún að Berlínar-
múrnum. Hún var spurð um það
hvemig tilfinning það væri að
koma að múrnum. Hún svaraði:
„Það er þannig tilfinning að
Vigdís Finnbogadóttir
manni finnst hugvit mannsins
vera notað í neikvæðum tilgangi.
Það er skelfilegt að koma að
þessum múr og horfa upp á það
að hann er tákn þess að mann-
kynið getur ekki komið sér sam-
an og er klofið í hugmyndunum
um það hvernig lífið eigi að vera.
Þegar ég kom síðast að múrnum
var gaddavír ofan á honum, svo
að ekki væri hægt að komast yfir
hann. Nú eru stórar rúllur ofan
á honum, sem fara af stað ef
gripið er utan um þær. Svo er
múrinn hvítkalkaður, — en það
er alveg skelfilegt, maður gleym-
ir aldrei múrnum í Berlín," sagði
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands.
THE SIIN, eitt útbreiddasta dagblað
Bretlands, ásakaði í dag Scotland Yard
um tilgangslaust kák í leitinni að bófa-
flokknum, sem rændi 3 tonnum af gulli
í Ix>ndon fvrir fjórum dögum að verð-
mæti um 26 millj. punda. „ímyndið
ykkur allar þær aðgerðir, sem gripið
hefði verið til af vörðum laga og réttar
í Bandaríkjunum, Frakklandi eða ein-
hverju öðru stóru landi, ef glæpur ald-
arinnar hefði verið framinn hjá þeim,“
segir The Sun í leiðara sínum i dag.
„En þegar slíkt gerist hér, þá er við-
búnaður álíka mikill og orðið hefði, ef
einhver hefði skrifað sektarmiða á bí)
yfirmanns lögreglunnar, sökum þess
að bílnum hefði verið lagt ólöglega,"
segir blaðið ennfremur.
The Sun bendir á, að enn hafi eng-
inn verið handtekinn og ekkert
áþreifanlegt liggi fyrir um, hverjir
framið hafi ránið. „Geysiverðmæt
gullsending er algerlega horfin líkt
og dúnfjöður í hvirfilbyl." Segir
blaðið, að London sé orðin að griða-
stað glæpamanna af öllum tegund-
um, þar sem lögreglunni takist að-
eins að leysa hluta af þeim glæpa-
málum, sem upp komi í höfuðborg
Bretlands.
Tveimur millj. punda hefur verið
heitið í verðlaun fyrir upplýsingar,
sem leitt gætu tii handtöku og sak-
fellingar þeirra manna, sem stóðu að
ráninu, en það er stærsta rán í sögu
Bretlands.