Morgunblaðið - 02.12.1983, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
12
Unga fólkið lét sig ekki vanta og hér má sjá það með jólaljósin.
Aðventuhátíð
Aðventuhátíðir voru haldnar í mörgum kirkjum við upphaf að-
ventu sl. sunnudag. Aðventuhátiðir hafa verið haldnar í Bústaða-
sókn um langt árabil og ætíð verið vandað til dagskrár. Að þessu
sinni hélt Jón Helgason kirkjumálaráðherra ræðu kvöldsins og
margt annað var til skemmtunar, t.d. mikill söngur. Að lokum voru
jólaljósin tendruð. Mikið fjölmenni var á hátíðinni.
Á myndinni má þekkja Hermann Ragnar Stefánsson, vígslubiskups-
hjónin sr. Ólaf Skúlason og frú Ebbu, biskupshjónin hr. Pétur Sigur-
geirsson og frú Sólveigu, og Jón Helgason, kirkjumálaráðherra.
Ljósm. SÞ.
Arni Vilhjálmsson, prófessor, formaður ársskýrslunefndar Stjórnunarfélags
íslands, til hægri, afhendir Halldóri H. Jónssyni, stjórnarformanni
Eimskipafélags íslands, verðlaun og viðurkenningu fyrir beztu ársskýrsluna.
Morgunblaðió/Kristján Ginarsson.
Eimskip hlaut árs-
skýrsluverðlaun
Stjórnunarféiagsins
Stykkishélmur:
20 ára afmæli
Snæfellings
Stykkishólmi 1. desember.
Á ÞESSU ári eru liðin 20 ár frá
stofnun Hestamannafélagsins Snæ-
fellings. Hestaeigendafélög í Snæ-
fellsncss- og Hnappadalssýslu er að-
ilar að Snæfellingi og vinna þau
sameiginlega að hrossaræktarmál-
um og standa saman að mótum á
Kaldármelum, þar sem félagið hefir
byggt upp ágæta aðstöðu til kapp-
reiða og góðhestasýninga.
Núverandi formaður Snæfell-
ings er Ragnar Jónatansson, Hell-
issandi, en fyrsti formaður félags-
ins var séra Árni Pálsson í Söðuls-
holti. Næsta laugardagskvöld,
annað kvöld, munu félagar Snæ-
fellings minnast þessara tíma-
móta með fagnaði í Félagsheimil-
inu í Stykkishólmi.
— Fréttaritari
Hafnarfjörður:
Samkirkju-
legar helgi-
stundir
Á þeirri aðventu, sem nýhafín er,
verða samkirkjulegar helgistundir í
Kapellu St. Jósefssystra í Hafnar-
fírði Töstudagskvöldin 2. og 16. des-
ember frá kl. 19.30—20.00.
Munu þær taka mið af stefjum
aðventunnar, iðruninni og undir-
búningnum. Hin fyrri þeirra verð-
ur í kvöld. Prestarnir Hubert
Oremus og Gunnþór Ingason leiða
þessar helgistundir.
EIMSKIPAFÉLAG íslands fékk
ársskýrsluverðlaun Stjórnunarfélags
íslands, en þau voru afhent við lok
námstefnu félagsins um notkun
ársreikninga, en alls sendu 17 fyrir-
tæki og stofnanir inn ársreikninga
sína til samkeppninnar.
nI heild er ársskýrslan fram-
úrskarandi góð. Ársreikningur er
settur fram á skýran og læsilegan
hátt og gefur lesandanum færi á
að gera sér góða grein fyrir fjár-
hagsstöðu fyrirtækisins og rekstr-
arafkomu. Annað lesmál árs-
skýrslunnar, þ.e. skýrsla stjórnar-
formanns, þættir úr starfsemi fé-
lagsins svo og myndir og töflur
gæða ársreikninginn lífi og veita
gagnlega sýn í framtíð félagsins,"
segir í niðurstöðum dómnefndar
um skýrsluna.
Iðnaðarbanki íslands fékk sér-
stök verðlaun fyrir ársskýrslu
sína og sömu sögu er að segja af
fyrirtækinu Johan Rönning hf.
Þorkell Sigurlaugsson, forstöðu-
maður áætlunardeildar Eimskips,
flutti erindi á námstefnunni, sem
fjallaði um sjónarmið stjórnenda
varðandi ársskýrslur. Þar sagði
Þorkell, að hafa bæri sjö atriði
sérstaklega að leiðarljósi, stað-
reyndir um atriði, sem skipta
máli, skýrslan yrði að vera skilj-
anleg og skýr, áreiðanleg og
hreinskilin. í henni þyrfti að vera
góð yfirsýn yfir starfsemina. Hún
verði að vera hlutlæg og hlutlaus
gagnvart einstökum hópum. Hún
þurfi að vera birt tímanlega og
vera samanburðarhæf í tíma.
„Ef skapast á grundvöllur fyrir
fjármagnsmarkað hér á landi, er
nauðsyn að fyrirtækin gefi sem
sannastar og ítarlegastar upplýs-
ingar um fyrirtækið og afkomu
þess, og noti ársskýrsluna til hins
ýtrasta. Hafa skal þarfir hinna
ýmsu hagmunaaðila í huga,“ sagði
Þorkell ennfremur í erindi sínu.
Töfrar ljósbrotsins
njóta sín til fulls
í tærum Kosta Kristal.
KOSTA BODA
Bankastræti 10, sími 13122
LÍÐUR ÞÉR ILLA í
svartasta skammdeginu
Lausnin er Bláa lónið
Já, þeir eru margir íslendingarnir sem
eru búnir að fá nóg af stressi og orðnir
steinuppgefnir á öllu.
Nú erum viö búin aö opna Bláa lóniö
sem er 1. flokks hvíldarhótel og stendur
viö hiö frábæra Bláa lón. Dvöl þar
hressir, bætir og kætir alla.
GISTING AÐEINS:
Herbergi ein nótt kr. 1.000 .... tyrir 2
m/fullu taeói kr. 1.600 ..... »yrir 1
m/fullu fnói kr. 2.200 ......tyrir 2
3 dsgar m/fullu f«ói kr. 4.500 . fyrir 1
3 dagar m/fullu faeói kr. 6.000 .fyrir 2
7 dagar m/fullu fteói kr. 10.000 .... fyrir 1
7 dagar m/fullu faeói kr. 14.000 .... fyrir 2
1. flokks herbergi meö baöi og nuddsturtu, sjónvarpi og vídeói á öllum her-
bergjum. Allar veitingar á lágu verði.
Gott útivistarsvæði í nágrenninu tilvalið til göngutúra og þess háttar. Sund-
sprettur í Bláa lóninu gerir öllum gott.
Þú færð bót í Bláa lóninu.
Bláa lóniö,
sími 92-8650.