Morgunblaðið - 02.12.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
13
Frá blaðamannafundinum. Talid frá vinstri: Örn Guðmundsson, formaður
JC-dagsnefndar, Markús Atlason í JC-dagsnefnd, Guðrún Skúladóttir, for-
seti JC-Víkur, Guðmundur Hannesson, forseti JC-Árbæjar, Pétur Kristjáns-
son í JC-dagsnefnd, Bárður Steingrímsson, svæðisstjóri, og Lára Pétursdótt-
ir, varaforseti JC-Reykjavíkur. MorgunbiaSis/ Friðþjófur
JC-félögin í Reykjavík:
Kynningardagur 1
meðferð hjólbarða
„AÐEINS 30% bifreiða hér á landi aka á löglegum hjólbörðum. Þetta kemur
fram í könnunum sem Bflgreinasambandið hefur gengist fyrir,“ sagði Örn
Guðmundsson á blaðamannafundi sem JC-félögin í Reykjavík boðuðu til í
vikunni.
Kynningardagar í meðferð hjól-
barða, á vegum JC-félaga í Reykja-
vík, standa yfir þessa vikuna. Að
sögn Arnar Guðmundssonar mun
kynningin einkum felast í greina-
skrifum í dagblöðin auk þess sem
30.000 veggspjöldum verður dreift í
Reykjavík um næstu helgi. örn
sagði að á hverju ári stæði hvert
JC-félag að svonefndum JC-degi,
en félögin væru sex talsins í
Reykjavík og þar sem þau stæðu öll
sameiginlega að þessu ákveðna
verkefni yrðu kynningardagarnir
jafnmargir félögunum, eða sex; frá
30. nóvember til 4. desember.
Almenn vanþekking
Á blaðamannafundinum kom
m.a. fram að JC-menn telja að fólk
viti almennt mjög lítið um meðferð
hjólbarða og því vildu þeir fræða
almenning um hvernig eðlileg með-
ferð stuðlar að lengri líftíma og
auknu öryggi í akstri. Eina ástæðu
fyrir fjölda ólöglegra hjólbarða hér
á landi töldu þeir vera hið háa verð
þeirra. „Hjólbarðar undir venju-
lega fólksbifreið kosta nú 11.200
krónur," sagði Örn, „þar af tekur
ríkið til sín 47% eða 5.275 krónur í
formi aðflutningsgjalda. Fólk veit
yfirleitt mjög lítið um meðferð
hjólbarða og mikilvægi þess að þeir
séu í góðu ástandi. Meðal þeirra
atriða sem fólk getur hæglega gert
til að minnka slit hjólbarðans og
auka líftíma hans er að hafa ávallt
réttan loftþrýsting í barðanum og
láta stilla hjól bifreiðarinnar
reglulega."
Engar gæðakröfur
Örn sagði einnig að jafnvel menn
sem ynnu á hjólbarðaverkstæðum
væru oft ekki starfi sínu vaxnir
sakir vanþekkingar á meðferð og
gerð hjólbarða. „Hér á iandi eru
heldur engar strangar reglur um
hvernig hjólbarðar skuli vera. I öll-
um nágrannalöndum okkar kveða
reglur á um að mynstur hjólbarð-
anna skuli vera 1,6 millimetri. í ís-
lenskum umferðarlögum segir aft-
ur á móti að mynstur þeirra skuli
vera að minnsta kosti einn milli-
metri. Hér á íslandi er mjög vot-
viðrasamt og því er enn meiri
ástæða til að hjólbarðar séu gróf-
mynstraðir, því í bleytu og hálku
renna bílarnir meira til en ella.“
Bílgreinasambandið og Um-
ferðarráð hafa aðstoðað
Á fundinum kom fram að Bíl-
greinasambandið og Umferðarráð
hafa veitt JC-félögunum aðstoð við
undirbúning kynningardaganna og
hefði sú aðstoð ekki verið veitt
hefði framkvæmd þeirra verið
ógjörningur. Einnig kom fram að
þetta verkefni væri endasprettur-
inn á Samnorræna Umferðarör-
yggisárinu. Guðrún Skúladóttir,
forseti JC Víkur, sagði að JC-félög-
in væru fyrst og fremst ætluð til að
þroska einstaklinginn. „Þetta sam-
eiginlega verkefni okkar," sagði
hún, „gefur okkur tækifæri til að
vinna að stærra og viðameira mál-
efni, en þegar við vinnum hvert að
sínu verkefninu. Þetta er þáttur í
byggðarlagsverkefnum okkar, sem
auk þess að þroska okkur sem ein-
staklinga, er samfélaginu í heild til
góða.“
Hvernig setja má mismunandi geröir hjólbaröa undir bifreiö
Þess skal ávallt gæta, að þverbandabarðar (Radial Ply), mega ekki undir
neinum kringumstæðum vera á framöxli þar sem skábandabarðar (Cross
Ply) eru á afturöxli.
Þar sem þverbandabarðar (Radial Ply fabric belted) og þverbandabarðar
með stálundirlagi (Radial Ply steel belted) eru notuð á sama ökutæki, eiga
þau fyrrnefndu að vera á framöxli og síðarnefndu á afturöxli.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
A
I Jóla
Sbaksturinn á
SLJPER
verði
.50
Hveiti 5 LBS
Pillsbury’s Best "1\/
MóntL .,
rertuhjup
soog^o.OO
Appelsínur
2 kg 59.OO
Púðursykur
káj480
Flórsykur 2 k8
2 kg.^,f
Delicious
79.00
I iimia
V lfl •
smjorlik]
‘ 50 Möndlur
‘is*. Vökg
Ekta U.S.A. möndlur
Kökuskraut í gríðariegu
„ .Lamba úrvali M-iPa„ og
Hamborgara ....
hryggur Hangikjot
m.00 Læri \ ^ O-0Ö
JL LOprkg-
Opið til kl. 7 í kvöld A
OPIÐ TIL KL. 4
á morgun laugardag
AUSTURSTRÆT117 STARMYRI 2