Morgunblaðið - 02.12.1983, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
Demantar
eilífðarskart
Kjartan Asmundsson
gullsniiður,
Aðalstræti S.
Góóan daginn!
Lambsdorff
sviptur
þinghelgi?
Bonn, 1. desember. AP.
Þingskaparnefnd vestur-þýska
sambandsþingsins mælti með því í
dag, að neðri deild þingsins svipti
Otto Lajnbsdorff efnahagsmála-
ráðherra þinghelgi hans, svo að
saksóknaranum í Bonn væri kleift
að ákæra hann fyrir að hafa þegið
mútur. Nefndin var sammála í
áliti sínu og verður það nú lagt
fyrir neðri deild sambandsþings-
ins. Er gert ráð fyrir því, að deild-
in fallist á nefndarálitið og að
Lambsdorff kunni að verða svipt-
ur þinghelginni strax á morgun,
föstudag.
Lensidælur
Lensi- og sjódælur fyrir
smábáta meö og án flot-
rofa. 12 og 24 volt. Einnig
vatnsdælur (brunndælur)
fyrir sumarbústaði, til aö
dæla út kjöllurum o.fl. 220
volt. Mjög ódýrar.
Atlas hf
Armula 7. simi 26755. Reykjavik
TURBULENCES, ilmurinn, sem túlkar síbreytileik konunnar,
en undirstrikar jafnframt persónueinkenni hennar.
TURBULENCES er afurð náttúrunnar.
Angan engri lík, - frá blómum og jurtum óspilltrar náttúru.
Samsetningin er síðan fullkomnuð í háborginni París.
TURBULENCES frá REVILLON
FRANSKUR SEIÐUR FYRIR NÚTlMAKONUR
Lafði Diana
Laföi Diana leikur
sjálfa sig í kvikmynd
Lundúnum, 1. desember. AP.
LAFÐI DIANA, prinsessa af Wales, mun leika í 50 mínutna heimild-
armynd sem sýnd verður í BBC-sjónvarpinu breska á Þorláksmessudag
næstkomandi. Heimildarmyndin heitir „Prinsessan og fólkið" og er um
fyrsta ár lafði Di sem tilvonandi Bretadrottning.
í fréttatilkynningu sem kom
frá BBC í gær stóð að í myndinni
væri fjallað um hvernig Diana
breyttist úr hlédrægri stúlku í
sjálfsöruggan heimsborgara sem
unnið hefur hug og hjörtu millj-
óna með hrokalausu og frjáls-
mannlegu fasi sínu. Uppistaðan í
heimildarmyndinni verða kvik-
myndir frá ferðum Lady Di og
Karls Bretaprins til ýmissa
landa, kvikmyndir sem ekki hafa
sést i sjónvarpi fyrr. BBC til-
kynnti jafnframt að fyrirtækið
myndi verja 10 milljónum punda
í jóladagskrá sína að þessu sinni.
LEGUKOPAR
Legukopar og fóöringar-
efni í hólkum og hellum
stöngum.
Vestur-þýzkt úrvals efni.
Atlas hf
Armúli 7 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík
START-
fundur
f lengra
lagi
Genf, 1. desember. AP.
ÞEIR Viktor P. Karpov og Edward
L Rowny, samningamenn Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna í viðræðum
þjóðanna um fækkun langdrægra
kjarnaorkuflauga áttu fund í gær
sem stóð í hálfa fjórðu klukkustund.
Var það einn lengsti fundurinn í 17
mánaða ferli START viðra'ðnanna.
Að fundinum loknum var tilkynnt að
næsti fundur yrði á þriðjudaginn í
næstu viku.
Ekkert var gefið upp um árang-
ur viðræðna þeirra Karpovs og
Rownys, en velt var vöngum yfir
fundarlengdinni. Þá virtist það
ekki standa START-viðræðunum
fyrir þrifum að það slitnaði upp úr
viðræðum þjóðanna um fækkun
meðaldrægra kjarnorkuvopna
fyrir skömmu.