Morgunblaðið - 02.12.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
15
E1 Pais á Spáni:
Koma mátti í veg
fyrir flugslysið
Madrid. 1. desember. AP.
HIÐ áhrifamikla blað „El Pais“
skýrði frá því í dag, að flugstjórn-
armenn hefðu ekki látið flugstjóra
farþegaþotunnar frá Kolumbíu, sem
fórst á sunnudag, vita um, að flug-
vélin var í of lítilli hæð. Heldur blað-
ið því fram, að „sá möguleiki var
fyrir hendi að koma í veg fyrir slys-
ið“, ef flugstjórinn hefði verið látinn
vita um hæðarskekkjuna nógu
snemma. í slysinu fórst 181 maður
en 11 lifðu það af.
Blaðið segist hafa það eftir
áreiðanlegum heimildum, að hæð
vélarinnar hafi verið 2.600 fet (um
792 metrar), þegar rétt hæð hefði
átt að vera 3.396 fet (1.035 metr-
ar). Vélin hafi misst hæð á nokkr-
um sekúndum og flugturninn
hefði átt að finna það út. Flugturn
þessi er í Paracuellos í útjaðri
flugvallarins í Madrid.
Engin aðvörun var send til flug-
stjórans um ranga flughæð vélar-
innar. „Ef hæðartapið var að
kenna mistökum flugstjórans, þá
var sá möguleiki fyrir hendi að
koma í veg fyrir slysið, ef hann
hefði verið látinn vita strax,“ segir
blaðið.
E1 Pais segir hins vegar, að eng-
in endanleg niðurstaða sé fengin
varðandi orsakir slyssins.
Kettir
njóta
góðs af
Wells, Englandi. I. desember. AP.
ÆTTINGJAR frú Joan Warren,
sem lést nýlega 71 árs að aldri á
heimili sínu í Wells í Englandi, eru
þessa dagana að athuga hvort ekki
sé hægt að ógilda erfðaskrá hennar.
Frú Warren var nefnilega mikill
kattavinur og arfleiddi ýmsar dýra-
verndunarstofnanir að öllum auðæf-
um sínum. Auðæfin sem um er að
ræða hljóða upp á 129.897 pund.
Frú Warren átti þrjá ketti,
Geoffrey, Jansine og Normu, og
voru þeir sjáöldur augna hennar.
Sá hún ekki sólina fyrir köttum
sínum svo og öllum köttum öðrum
sem urðu á vegi hennar. Nágrann-
ar hennar sögðu hana aldrei svo
mikið sem heilsa sér, hins vegar
tók hún ketti sína í faðm sinn
hvenær sem færi gafst. Katta-
vinafélagið í Bretlandi, samtök
dýraspítala og kattaskýli nokkurt
í Lundúnum skiptu með sér arfin-
um.
Konstantín Karamanlis, Grikklandsforseti, (í miðið) ásamt Spyros Kyprianou (til vinstri), Kýpurforseta, og
Andreas Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, í upphafi fundar þeirra þriggja í forsetahöllinni í Aþenu á
miðvikudag. Viðræðurnar snerust um ástandið á Kýpur. AP — Sfmamynd.
Eitt aðalvitnanna í Aquino-málinu:
Telur ekki óhugsandi að
hermaður hafi hleypt af
Manila, Filippseyjum, 1. desember. AP.
Flugvallarstarfsmaður á flugvell-
inum í Manila greindi frá því fyrir
nefndinni sem fer með rannsókn
Faldir í köldum leyni
klefa í þrjár vikur
Tilviljun átti mikinn þátt í giftusamlegri
björgun Heinekens og bflstjóra hans
Amsterdam, 1. desember. AP.
ÞAÐ VAR skarpri sjón og næmri
skynjun hollenska lögreglu-
foringjans Geert van Beek að
þakka, aö það tókst að bjarga bjór-
framleiðandanum Alfred Heinek-
en og bflstjóra hans, Ab Doderer,
úr höndum mannræningja á mið-
vikudagsmorgun. Leitarflokkur
lögreglunnar undir stjórn van
Beeks hafði beitt sterkum Ijósum
að veggjum, lofti og gólfl í vöru-
húsi nokkru í útjaðri Amsterdam
og ekki fundið neitt grunsamlegt.
Voru leitarmennirnir í þann veginn
að yflrgefa húsiö og tilkynntu öðr-
um leitarflokki í grenndinni, að
þeir hefðu ekkert fundið. Samt
sem áður ákváðu þeir að skoða
enn einu sinni innsta vegg hússins
til þess að leita af sér allan grun.
Þegar van Beek var að banka í
vegginn á einum stað í höfuð-
hæð, þá fann hann, að veggurinn
virtist gefa aðeins eftir, eins og
eitthvað væri þar fyrir innan.
Þegar hann ýtti þéttingsfast á,
þá opnuðust skyndilega dyr. Þær
höfðu leynst leitarmönnunum
sökum þess, að hjarir hurðarinn-
ar voru að innanverðu og enginn
húnn að utanverðu og greinilega
allt gert til þess að fela dyrnar
með því að láta enga misfellu
sjást á mótum hurðar og dyra-
stafs. Þegar inn var komið fundu
þeir Heineken og bílstjóra hans,
Ab Doderer. Þeir voru í náttföt-
um einum fata, en mannræn-
ingjarnir höfðu neytt þá til að
fara í þau, er þeim var rænt.
„Þeir urðu himinlifandi við
komu okkar, eins og geta má
nærri,“ var haft eftir van Beek.
Voru hlekkir mannanna tveggja
síðan klipptir í sundur með
málmklippum, en að undanskild-
um stuttum hléum höfðu menn-
irnir verið hlekkjaðir við vegg
þann tíma sem þeir höfðu verið
fangar. „Það var engin upphitun
og því var kalt þarna," sagði van
Freddy Heineken
Beek. „Doderer var ekki tiltak-
anlega illa haldinn af kuldanum,
en Heineken var það.“
Það var strax kallað á lækni,
sem rannsakaði mennina tvo, en
síðan var farið með þá til heimil-
is Heinekens, þar sem þeir hittu
fjölskyldur sínar. Þess skal get-
ið, að Doderer hefur starfað hjá
Heineken i 40 ár.
Hin árangursríka leit í vöru-
húsinu átti sér stað eftir að
óþekktur maður hafði bent lög-
reglunni á að menn, sem ráku
bílaverkstæði og smíðaverkstæði
í grennd við vöruhúsið, kynnu að
hafa átt hlutdeild í mannráninu.
Lögreglan hóf síðan leit þar
tveimur dögum eftir að lausn-
argjald hafði verið greitt fyrir
mennina, án þess að þess sæjust
nokkur merki að þeir yrðu látnir
lausir. Kröfu mannræningjanna
um lausnargjald, sem komið
hafði fram fjórum dögum eftir
mannránið, hafði ekki verið
sinnt, fyrst og fremst af ótta við
að blöð og aðrir fjölmiðlar
kynnu að fylgjast svo grannt
með öllum aðgerðum, að engri
leynd yrði við komið og lífi
mannanna tveggja yrði stefnt í
hættu af þeim sökum, en lausn-
arfénu átti að koma fyrir á sér-
stökum stað með ákveðnum
hætti.
Eftir að fengist hafði sönnun
fyrir því í síðustu viku með
ljósmyndum og blaðaauglýsingu
á dulmáli, að þeir Heineken og
Doderer væru enn á lífi, var
ákveðið að verða við kröfu
mannræningjanna um lausnarfé
og koma því til þeirra snemma á
mánudagsmorgni. Sendimaður
lögreglunnar kom síðan lausn-
arfénu fyrir á fyrirfram ákveðn-
um stað, eftir að hafa ekið í
krókum nær 200 km leið, eins og
mannræningjarnir höfðu fyrir-
skipað.
Strax og þeir Heineken og
Doderer höfðu verið frelsaðir,
greip hollenska lögreglan til
snöggra og umfangsmikilla að-
gerða gegn þeim, sem grunaðir
voru um að hafa staðið að
mannráninu. Voru 24 menn
handteknir í Amsterdam og
nágrannabænum Zwanenburg
og eru í þessum hópi þrír menn,
sem taldir eru höfuðpaurarnir,
en þriggja annarra forsprakka
er enn leitað. Allir hinir hand-
teknu eru Hollendingar.
Jafnframt tókst lögreglunni
að ná aftur verulegum hluta af
lausnarfénu, en það hafði verið
greitt í hollenskri, bandarískri,
franskri og vestur-þýskri mynt.
Fannst þetta fé á heimilum
hinna grunuðu.
Aquino-morrtsins, að það væri „hugs-
anlegt" að einn hermannanna sem
stóð hjá Benigno Aquino hafl hleypt
af skoti í sömu mund og stjórnar-
andstöðuleiötoginn varð fyrir skoti
meints tilræðismanns.
Umræddur starfsmaður heitir
Jose Orias og var hann tauga-
óstyrkur er hann vitnaði fyrir
nefndinni. Hélt hann þéttingsfast
um litla biblíu er hann rakti fram-
burð sinn og sagði að guð væri
lögfræðingur sinn. Orias var
staddur í stjórnklefa annarrar
flugvélar sem þarna var skammt
frá. Sagðist hann hafa séð fjóra
eða fimm hermenn fylgja Aquino
frá flugvélinni, en skyndilega
hefði bláklæddur maður skotist að
og virst slá Aquino aftan á höfuð-
ið með þeim afleiðingum að hann
hraut fram.
Þegar hér var komið sögu í
framburði Orias, greip nefndar-
spyrill fram í og spurði hann: „Er
hugsanlegt að skot eða hnefahögg
hefði getað komið frá einhverjum
hermannanna sem voru fyrir aft-
an Aquino?" Svar Orias var: „Já,
það gæti hafa verið."
Orias er fyrsti óbreytti borgar-
inn sem yfirheyrður hefur verið í
málinu, en nefndin hefur lokið við
að ræða við þá hermenn sem
þarna voru staddir. Segja allir að
Galman hafi skotið Aquino og
einn þeirra segist hafa skotið
Galman umsvifalaust, fyrst sjö
sinnum og síðan skaut annar her-
maður níu skotum til viðbótar er
hann reyndi að klóra sig á fætur á
ný. Þá segja hermennirnir að
Galman hafi verið sá eini á svæð-
inu sem var bláklæddur er morðið
var framið. Fleiri verða yfirheyrð-
ir á næstu dögum, en framburður
Orias þykir ekki hafa dregið úr
þeirri trú margra að Galman hafi
ekki verið einn að verki.
Arafat í Trípólí
Yasser Arafat sést hér umkringdur fréttamönnum á mánudag, þar sem
hann hélt því m.a. fram, að Sýrlendingar hefðu notað vopnahléð til þess
að safna saman enn meira herliði við Trípólí til að gera árás á hann og
stuðningsmenn hans.
Dúkkur valda æði
í Bandaríkjunum
New York, 30. nóvember AP.
NÝ DÚKKA, sem fyrir nokkru var sett á markað í Bandaríkjunum, hefur
valdið hálfgeröu æði þar vestra og er eftirspurnin eftir henni svo mikil, að
fólk leggur það á sig að bíða í biöröð heila helgi til þess eins að geta tryggt
sér eina á mánudagsmorgni.
Dúkkurnar eru seldar í leik-
fangaverslunum og kostar hver
þeirra um 540 ísl. kr. en hins vegar
hafa verslanirnar enn sem komið
er ekki fengið nema um 100 dúkk-
ur á dag hver. Á morgnana má sjá
þúsundir manna bíða fyrir utan
verslanirnar, en þar sem dúkkurn-
ar eru aðeins 100, eins og fyrr
sagði, má það heita regla, að til
meiriháttar slagsmála komi þegar
opnað er.
Það, sem gerir þessar dúkkur
svona eftirsóknarverðar, er að öll-
um fylgir þeim fæðingarskírteini,
ættleiðingarskjöl og bleyjur og
auk þess, sem mestu máli skiptir,
er engin dúkkanna alveg eins. All-
ar hafa þær sín sérstöku fingraför
og engar tvær dúkkur hafa sömu
andlitsdrætti. Að sjálfsögðu voru
tölvur notaðar við sköpun dúkk-
anna og segist framleiðandinn
ætla að vera búinn að selja tvær
milljónir dúkka fyrir árslok.