Morgunblaðið - 02.12.1983, Side 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
16
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 20 kr. eintakiö.
„Halinn“
í hæstarétti
Nú bíða um 150 mál til-
búin til flutnings í
hæstarétti. Þetta þýðir að
biðtími einkamála fyrir rétt-
inum er tæplega eitt og hálft
ár frá því að mál eru fullbúin
þar til þau eru flutt. Þessi
„hali“ í hæstarétti kom til
umræðu á alþingi á þriðju-
daginn þegar dr. Gunnar G.
Schram spurði Jón Helgason,
dómsmálaráðherra, hvort
hann ætlaði að leggja frum-
varp til laga um nýjan
dómstól, lögréttu, fyrir það
þing sem nú situr. I svari
ráðherrans kom fram að lík-
lega yrði þetta frumvarp ekki
endurflutt nú í vetur en unnið
væri að því að kanna hver
yrði kostnaðurinn við að
breyta dómstólaskipaninni
með því að koma lögréttu á
fót. Frumvarpið hefur fjórum
sinnum verið lagt fram á al-
þingi. Friðjón Þórðarson,
fyrrum dómsmálaráðherra,
benti á að þingmenn hefðu
greinilega ekki mikinn áhuga
á að koma á fót lögréttu. Til
að minnka málahalann í
hæstarétti hafa þingmenn
valið þann kost að fjölga
hæstaréttardómurum úr
fimm í átta og um nokkurra
mánaða skeið voru dómarar í
hæstarétti ellefu. Eftir fjölg-
un dómenda í átta getur
hæstiréttur starfað í tveimur
deildum. Þór Vilhjálmsson,
forseti hæstaréttar, telur
deildaskiptinguna breyta eðli
hæstaréttar. Hann sé ekki
lengur hæstiréttur sem hafi
að aðalhlutverki að dæma
mikilvægustu mál og stuðla
að réttareiningu, heldur al-
mennur dómstóll til að sinna
áfrýjunarmálum af öllu tagi,
þar á meðal smámálum.
Lögrétta yrði einn dómstóll
með aðsetri í Reykjavík sem
tæki til landsins alls. Lög-
rétta myndi fjalla um stærri
mál sem fyrra dómsstig en
sem annað dómsstig um
smærri mál og yrði þá ekki
unnt að áfrýja þeim til
hæstaréttar. Dómsstig í land-
inu yrðu með öðrum orðum
þrjú en hvert mál gæti þó að
jafnaði aðeins farið fyrir tvö
þeirra.
Fyrir þá sem snúa sér til
dómstóla skiptir að sjálf-
sögðu mestu að tryggt sé að
dómendur leysi úr málum af
réttsýni með tilliti til allra
málavaxta og í samræmi við
landslög. Mönnum er jafn-
framt mikils virði að mál
lendi ekki í undandrætti fyrir
dómstólunum. í mörgum til-
vikum getur skjót niðurstaða
skipt málsaðila jafn miklu og
efnisatriði hennar. Allir eru
og sammála um að ekki sé
unnt að sætta sig við „hal-
ann“ í hæstarétti. Um það er
hins vegar deilt, hvaða leið
eigi að fara til að hraða af-
greiðslu dómsmála.
Því er ekki að leyna að
þingmenn eru ekki þeir einu
sem hafa hikað í afstöðu til
lögréttunnar og það er ekki
kostnaðarhliðin ein sem vefst
fyrir mönnum. Yrði lögréttu
komið á fót í Reykjavík væri
tekin fjöður úr hatti héraðs-
dómara og sýslumanna utan
höfuðborgarinnar. Þetta mál
eins og svo mörg önnur
strandar á togstreitu milli
manna í höfuðborginni og
utan hennar. Líklega er það
þessi togstreita sem veldur
mestu um tregðu þingmanna.
Hún verður ekki metin til
fjár hversu lengi sem
dómsmálaráðherra lætur
starfsmenn sína reikna.
Vörugjaldið
Eyjólfur Konráð Jónsson,
þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins og formaður fjár-
hags- og viðskiptanefndar
efri deildar alþingis, hefur
lýst því yfir að hann muni
standa í vegi fyrir afgreiðslu
á frumvarpi um framleng-
ingu vörugjalds nema það
verði lækkað úr 30% og 24% í
15%. Nái frumvarp um fram-
lenginu vörugjaldsins ekki
fram að ganga fyrir áramót
fellur vörugjaldið niður.
Eyjólfur Konráð Jónsson
rökstyður afstöðu sína meðal
annars með vísan til stjórn-
arsáttmálans en í honum er
boðað að skattar og tollar
sem leggist með miklum
þunga á ýmsar nauðsynjavör-
ur verði lækkaðir. Þess er nú
beðið hvernig ríkisstjórnin og
þingflokkar hennar bregðast
við eindreginni kröfu Eyjólfs
Konráðs Jónssonar um lækk-
un vörugjaldsins.
Ekki er vafi á því að eftir-
stöðvar verðbólguveislunnar
munu leggjast þungt á allan
almenning á næsta ári í
mynd opinberrar skatt-
heimtu. Eftir-á-greiðsla
skatta kemur mönnum vel í
óðaverðbólgu en hefur öfug
áhrif þegar jafn rösklega er
slegið á bólguna og raun ber
vitni. Á einn eða annan veg er
nauðsynlegt að létta á skatta-
klónni. #
Milli 200 og 300 manns voru í Háskólabíói og fylgdust með hátíðardagskránni í gær. Ljósm. Mbl. KEE
Fullveldisfagnaður stúdenta:
Hátíðardagskrá í Háskólabíói
STUDENTAR héldu hátíðarsam-
komu í tilefni af fullveldisdegi fs-
lands, í gær, 1. desember. Um morg-
uninn var haldin stúdentamessa í
háskólakapellunni, klukkan 14 hófst
hátíðardagskrá í Háskólabíói og í
gærkvöldi var haldinn dansleikur að
Hótel Sögu, þar sem hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar lék fyrir
dansi.
Þetta var í fyrsta sinn í tólf ár,
sem Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, gekkst fyrir fullveldis-
fagnaði stúdenta. Á hátíðardag-
skránni í Háskólabíói, voru a milli
200 og 300 mannns.
Sólveig Anna Bóasdóttir, guð-
fræðinemi, prédikaði í stúdenta-
messunni. Dagskráin í Háskólabíói
hófst á þvi að Gunnar Jóhann
Birgisson, formaður Vöku setti há-
tíðarsamkomuna. í ræðu sinni
sagði hann m.a. að sennilega væru
þeir ófáir, sem litu á fullveldisdag-
inn sem sérstakan hátíðisdag stúd-
enta og væri það vegna þess að
undanfarin ár hefði það komið í
hlut stúdenta við Háskóla íslands
að halda minningu fullveldisdags-
ins á lofti.
Þá ávarpaði Guðmundur Magn-
ússon, háskólarektor, samkomuna,
bauð menn velkomna og óskaði
þeim til hamingju með daginn.
Hann minntist og á að þetta væri í
fyrsta sinn, sem hann ávarpaði há-
tíðarsamkomu stúdenta á fullveld-
isdaginn, frá því hann tók við emb-
ætti.
Pétur Jónasson lék einleik á gít-
ar. Hann lék fyrst tilbrigði við
gervit
eyri er hann að panta símtal við
einn viðtakanda, en kærir sig ekki
að á samtalið sé hlustað i viðtækj-
um landsmanna. Póstur og sími
kemur í veg fyrir að slíkt eigi sér
stað í fyrsta lagi með því að nota
ekki tíðnisvið útvarps til að flytja
samtalið milli Reykjavíkur og Ak-
ureyrar heldur í staðinn eitthvert
þeirra tíðnisviða, sem ætlað er fyrir
símafjarskipti, og í öðru lagi með
því að koma í veg fyrir uppsetningu
símafjarskiptatækja nema sérstök
heimild hafi verið gefin. Hið sama
gildir, þegar hringt er milli landa. I
alþjóðafjarskiptasáttmálanum eru
ákvæði, sem skylda aðildarríkin til
að gera allar mögulegar ráðstafanir
til að tryggja leynd símafjarskipta.
Nú eru símafjarskipti fleira en
eingöngu símtöl. T.d. getur verið um
að ræða skeyti, myndsendingar,
data og tónlist. Sjónvarpssími er
notaður til að geta haldið fund á
fleiri en einum stað samtímis. Og
ekki hvað síst er sjónvarpsefni flutt
sem símafjarskipti. 1 fréttatíma
sjónvarpsins sjáum við á hverju
kvöldi myndir, sem sendar hafa ver-
ið um gervitungl á símafjarskipta-
rásum. Efnið er tekið saman af
fréttastofu erlendis, sem selur
Ríkisútvarpinu það og reyndar fleiri
sjónvarpsstöðvum. Ef almenningur
gæti tekið við efninu um leið og það
kemur frá gervitunglinu mundi
Ríkisútvarpið sennilega missa
áhuga á því að kaupa það til útsend-
ingar í dagskrá sinni og fréttastof-
an mundi fljótt hætta að búa til
þáttinn, ef engin greiðsla kæmi
Um sjónvarp,
— eftir Gústav
Arnar
Að undanförnu hefur talsvert
verið skrifað í fjölmiðlum um upp-
setningu loftnets á rússneska sendi-
ráðinu í Reykjavík, en hið sama
loftnet hafði áður verið uppi á húsi
verslunar einnar í borginni. Nokk-
urs misskilnings hefur gætt í um-
fjöllun um þetta mál og er þess
vegna gerð hér tilraun til að út-
skýra það.
Þráðlausum fjarskiptum eða
radíósendingum er að jafnaði skipt í
tvo flokka; annars vegar er út-
varpssendingar (hljóðvarp og sjón-
varp), sem ætlaðar eru öllum al-
menningi, og hins vegar símafjar-
skipti. Frá upphafi hefur þessum
flokkum fjarskipta verið haldið að-
greindum. Það hefur alltaf verið
samkomulag um það á alþjóðavett-
vangi að úthluta mismunandi tíðni-
sviðum fyrir útvarps- og símaþjón-
ustu. Við getum t.d. hlustað á hljóð-
varp á langbylgju, miðbylgju,
stuttbylgju eða metrabylgju (FM)
án þess að fá truflanir frá símtöl-
um. Framleiðendur viðtækjanna
taka að sjálfsögðu mið af úthlutuð-
um tíðnisviðum, þegar þeir smíða
tækin, og að jafnaði gefur tækið
möguleika á hlustun á einni eða
fleiri af þessum bylgjum. Ef frá eru
talin afnotagjöld, sem flest ríki
leggja á viðtækin, er notkun þeirra í
einkaþágu alveg frjáls. Nákvæm-
lega hið sama gildir um sjónvarp.
Útvarpsstöðvar, hverju nafni sem
nefnast, gera sér ljóst, að með
sendinu dagskrár á þeim tíðnisvið-
um, sem úthlutuð eru fyrir hljóð-
varp og sjónvarp eru þær að gefa
dagskrárefnið frjálst til einkanota,
og verða þess vegna að standa rétt-
höfum, þ.e. þeim aðilum, sem búið
hafa til efnið, skil á greiðslu fyrir
það.
Þegar kemur að símafjarskiptum
gegnir nokkru öðru máli. Þau eru
ekki ætluð nema einum aðila eða í
mesta lagi afmörkuðum hóp og
skiptir hér ekki máli hvort um er að
ræða línur og stengi eða radíó. Þeg-
ar símnotandi í Reykjavík lyftir
símtóli sínu og velur númer á Akur-
Erá stúdentamessu í Háskólakapcllu í
„Guardáme las vacas", eftir Luis de
Narvaéz, því næst lék hann „Madr-
ones“ eftir Torroba og síðast lék
Pétur „Choros" nr. 1 eftir Villa-
Lobos.
Næstur tók til máls Davíð
Oddson, borgarstjóri, en hann
flutti hátíðarræðu dagsins. Hann
sagði m.a. í ræðu sinni að sagan
kynni ekki að greina frá neinu
dæmi þess, að ráðist hefði verið á
ríki vegna þess að andstæðingar
þess hefðu talið það hafa yfirburði
í vopnum og vopnabúnaði. Hin
dæmin væru fleiri en upp yrði tal-
ið, þar sem varnarlaus bráð hefði
verið freisting, sem herveldi gátu
ekki staðist.
Ný íslensk hljómsveit, sem ber
heitið „Guðjón Guðmundsson og
íslandssjokkið" flutti nokkur frum-
samin lög og því næst las Matthías
Jóhannessen úr eigin verkum.
Hann las úr viðtalsbók sinni við
Tómas Guðmundsson, „Svo kvað
Tómas", og ljóðabókum sínum,
gær. Sólveig Anna Bóasdóttir prédikaði.
Ljósm. Mbl. KEE.
„Jörð úr Ægi“ og „Hólmgönguljóð".
Kvartett Menntaskólans í Kópa-
vogi flutti fjögur lög frá árunum
1960—1970 í eigin útsetningu.
Hrönn Geirlaugsdóttir og Guðni Þ.
Guðmundsson léku samleik á fiðlu
og píanó. Fyrst léku þau „Ástaróð"
eftir Edgar og síðan „The easy
winners" eftir Scott Joplin.
Ólafur Arnarson, tannlækna-
nemi, flutti ræðu stúdents. í ræðu
sinni sagði ólafur m.a. að við yrð-
um fyrst og fremst að standa vörð
um þjóðfélag okkar og vera
forfeðrum okkar og mæðrum
þakklát fyrir þá arfleifð sem þau
létu okkur í té: Hið frjálsa full-
valda ríki. Þakklæti okkar sýndum
við best með því að berjast sameig-
inlega fyrir friði, frelsi og mann-
réttindum, íslendingum og öðrum
til handa.
Karlakórinn Fóstbræður lauk
hátíðardagskrá á fullveldisfagnaði
stúdenta, 1. desember 1983, með því
að syngja nokkur íslensk lög.