Morgunblaðið - 02.12.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
23
Athugasemd
— við álitsgerð Ragnars Aðal-
steinssonar hrl. um réttarstöðu
stjórnarmanna í hlutafélagi
— eftir Jóhann
Jakobsson
Stjórnarformaður f minnihluta
stjórnar hefir því ekki aðstöðu til
að hefta framgang ákvarðana
meirihlutans og hann verður að
lúta vilja meirihlutans."
I álitsgerð lögmannsins er
hnykkt á þessum úrskurði (settur
sem feitletursgrein). I ljósi þess
sem um er deilt er þetta vissulega
atyglisverð niðurstaða þegar litið
er til laga um hlutafélög, lög nr.
32, 12. maí 1978. f 67. grein þess-
ara laga segir svo. „Aðalfund skal
halda eftir því sem félagssam-
þykktir ákveða, þó eigi sjaldnar
en einu sinni á ári og aldrei síðar
en innan níu mánaða frá lokum
hvers reikningsárs." í lok grein-
arinnar um frestun á aðalfundi
segir um boðun framhaldsaðal-
fundar vegna frestunar. „...
framhaldsaðalfundar, sem hald-
inn skal í fyrsta lagi einum mán-
uði og í síðasta lagi tveimur mán-
uðum síðar. Frekari frests er ekki
unnt að krefjast".
Aðalfundur Stálfélagsins var
haldinn 7. júlí sl. og stjórnarkjöri
þá frestað. Samkvæmt ofan-
skráðu átti lokaaðalfundur fé-
lagsins því að fara fram 7. sept.,
hið síðasta. Á fundinum 7. júlí
„Lögreglumaður
segir: „Meirihluti skal
ráða.“ Slík ráðs-
mennska skal gilda,
að því er best verður
skilið, hvort sem það
er í samræmi við lög
landsins eða ekki.“
var frestur ákveðinn til hausts og
þá eðlilega höfð í huga ákvæði
laganna þó nákvæmar væri ekki
til orða tekið.
Ekki er líklegt að athugasemd
kæmi fram þó eitthvað drægist
umfram þennan tíma, veturnæt-
ur gætu dugað sem tímamörk, ef
ekkert sérstakt væri að gerast.
Þetta á ekki við hér. Gjörbreyting
varðandi áætlanir og tilhögun
framkvæmda hefir verið gerð.
Svokallaður meirihluti stjórnar
hefir tekið verkefnið „að koma
upp stálveri" í sínar hendur.
Formaður stjórnar og varafor-
maður eiga þar hvergi nálægt að
koma. Engar ástæður eru gefnar.
Þetta er staða málsins. Lögmað-
urinn segir „Meirihlutinn skal
ráða“. Slík ráðsmennska skal gilda,
að því er bezt verður skilið, hvort
sem það er í samræmi við lög lands-
ins eða ekki. Almennar siðareglur
mannlegra samskipta virðast
ekki vega þungt í máli þessu. Það
er vissulega athyglisvert að lög-
maður, titlaður sem lögfræðingur
félagsins, skuli ekki hafa sam-
band við formann áður en álits-
gerð, sem hér um ræðir, er birt.
Er þetta bara tilsniðin, pöntuð
álitsgerð, væntanlega greidd af
fjármunum félagsins. Undirrit-
aður mun aldrei samþykkja slík-
ar greiðslur.
Til áréttingar máli mínu og að-
gerðum sem fylgdu, vísa ég einnig
til 70. greinar laga um hlutafélög.
Til upprifjunar fyrir lögmanninn
hefi ég í höndum greinargerð
framkvæmdastjóra Stálfélagsins,
dags. 14. nóv. sl., um fund með
margnefndum lögmanni. Þar seg-
ir: „Lagalega hefði núverandi
stjórn umboð hluthafa, jafnvel til
áramóta." Lögin um hlutafélög
virðast býsna teygjanleg i hug-
arheimi lögmannsins. Eru ekki til
einhverjar siðareglur lögmanna
sem hefta svona túlkun? Varð-
andi þá heiðursmenn, stjórnar-
meðlimina þrjá, þá Jón Magnús-
son, Leif Hannesson og Svein
Sæmundsson, vil ég aðeins segja,
að ég ítreka enn að stjórnin er
umboðslaus til allra ákvarðana
nema til að skila af sér. Tilburðir
þessara manna til að fela gjör-
ræðisfullar aðgerðir eru ekki
svara verðar. (Sjá Morgunblaðið,
25. nóv. ’83.)
Jóhann Jakobsson er formaður
stjórnar Stálfélagsins bf.
Viðskiptavinir
athugiö!
Vöruafgreiöslur okkar veröa opnar föstudagana 2., 9.
og 16. desember til kl. 18.45.
EIMSKIP
Vöruafgreiösla.
Útivinnandi konur
Stofnfundur Samtaka kvenna á vinnumarkaöinum,
veröur haldinn í Félagsstofnun stúdenta viö Hring-
braut, laugardaginn, 3. des. nk„ kl. 13.00.
Framsögur — Hópumræöur — Söngur
Konur fjölmenniö.
Undirbúningsnefndin.
Hraðskákmót KR
innanfélagsmót
verður haldiö fimmtudaginn, 8. des. 1983, kl. 20.00, í félags-
heimilinu viö Frostaskjól. Þátttökutilkynningar skulu berast í
síma 18177 sem fyrst. Skákstjóri veröur Jóhann Þórir Jónsson.
Muniö aö hafa meö ykkur töfl og klukkur.
Stjórnin.
fltargmifrlfifrife
MetsöluHod á hverjum degi!
HAGKAUP
Reykjavík
Akureyri
Njarðvík
KREDITKORT
139,-
Swegmark
Nærföt í háum
gæðaflokki
enlágum
verðflokki
Vorum aö fá nýja sendingu af vinsæla kvenundirfatnaðinum
frá Swegmark. Brjóstahöld með A,B,C og D skálum.
Geysilegt úrval. Sími póstverslunar er 30980.
Brjóstahöld 219,- Buxur 159,-
199.- 239.
Höfum einnig Swegmark leikfimisbúninga.
279,-