Morgunblaðið - 02.12.1983, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER1983
Aðstaða til bensín-
og olíusölu
Hreppsnefnd Skeiðahrepps óskar eftir aö fá aöila til að
koma upp og reka verslun meö bensín og olíu og aðrar
vörur og e.t.v. greiðasölu á Húsatóftaholti hjá Brautar-
holti.
Upplýsingar gefur Jón Eiríksson, oddviti, í síma
99—6523.
JFHVI
Félag íslenzkra myndlistarmanna óskar að ráða
starfskraft í hálft starf. í starfinu felst m.a. aö veita
forstöðu skrifstofu félagsins og vera ráögefandi og upp-
lýsandi aðili fyrir myndlistarmenn.
Vélritunar- og málakunnátta nauösynleg, háskólapróf
æskilegt.
Umsóknir sendist til Félags íslenzkra myndlistarmanna,
pósthólf 1115, 121 Reykjavík, fyrir 10. des. nk.
20% afsláttur
af öllum vörum í dag
Hjá okkur fæst m.a.:
Fugla- og fiskabúr, dælur, hreinsarar, leikföng, nagbein,
ólar, taumar, kattasandur og jólasokkar fyrir heimilis-
dýrin.
Tilvaliö tækifæri til að kaupa jólagjöfina fyrir
besta vininn.
Gæludýraverslunin
Gaukurinn
Austurveri v. Háaleitisbraut
Sími: 33980.
ma^^^^^—mammmammmmmmam^^
Jólagjöfin sem kemur að gagni
Tölvur fyrir allan reikning
Einstakt verð frá 350.-
Útsölustaðir um allt land.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI I6995
og Hljóðvirkinn sf., Höföatúni 2, sími 13003.
Basar og
samkoma
hjá KFUK
ÁRLEGUR basar KFUK, Amt-
mannsstíg 2b, verður laugardaginn 3.
des. og hefst kl. 2 e.h., ásamt kaffi-
sðlu.
Þar verður margt til sölu, svo
sem kökur, handavinna allskonar,
barnaföt, svuntur, pottaleppar og
fleira hentugt til jólagjafa. Almenn
fjáröflunarsamkoma verður um
kvöldið með fjölbreyttri dagskrá og
happdrætti.
Allur ágóði rennur til kristilega
starfsins.
Jólabasar
Samtaka
gegn astma
og ofnæmi
SAMTÖK gegn astma og of-
næmi halda jólabasar á morgun,
laugardaginn 3. desember klukkan
15.00 í Blómavali við Sigtún. Á
basarnum verða kökur, prjónles
og margt fleira.
Lionsfélagar við pökkun á jólapappír.
Lionsfélagar selja jóla-
pappír í Hafnarfirði
FÉLAGAR í Lionsklúbbi Hafnar-
fjarðar efna til sölu á jólapappír
um helgina. Gengið verður í öll
hús í bænum.
Lionsklúbburinn hefur und-
anfarin ár gefið margar góðar
gjafir. Má þar nefna uppbygg-
ingu dagheimilis þroskaheftra á
Víðivöllum ásamt annarri líkn-
arstarfsemi. Einnig hafa þeir
félagar haldið árleg skemmti-
kvöld fyrir aldraða.
Ákveðin hafa verið kaup á
tækjum til augnskurðlækninga
og beinaskurðlækninga fyrir St.
Jósefsspítala Hafnarfirði.
Fjallkonur
með basar í
Gerðubergi
KVENFÉLAGIÐ Fjallkonurnar í
Breiðholti III hafa basar laugardag-
inn 3. des. kl. 14.00 í Menningar-
miðstöðinni við Gerðuberg.
Verður þar mikið af góðum og
hagnýtum munum á mjög hag-
kvæmu verði. Nefna má alls konar
fatnaö, dúkkuföt, jólaföndur, jóla-
skraut o.fl. Þá verða einnig seldar
kökur.
Ágóðinn af basarnum rennur til
kirkjubyggingarinnar í Fella- og
Hólaprestakalli. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem kvenfélagið
Fjallkonurnar leggja sitt af mörk-
um til kirkjubyggingarinnar. Þær
hafa átt sinn þátt í því hve vel hef-
ur gengið að koma kirkjubygging-
unni áfram. Hafi kvenfélagskonur
bestu þakkir fyrir sín góðu störf í
þágu góðs málefnis.
Eg vil hvetja fólk í Fella- og
Hólahverfi til að koma á basarinn.
Þar er unnt að gera góð kaup og
styrkja um leið gott máleni.
Hreinn Hjartarson
Basar Óháða
safnaðarins
KIRKJA Óháða safnaðarins
heldur sinn árlega basar laug-
ardaginn 3. desember í Kirkju-
bæ kl. 2 síðdegis.
Þar verður á boðstólum
margt fallegt og nytsamlegt,
svo sem jólaskreytingar og
heimabakaðar kökur. Enn-
fremur verður happdrætti
með góðum vinningum.