Morgunblaðið - 02.12.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
25
Flóamarkaður og basar
systrafélagsins Alfa
SYSTRAFÉLAGIÐ Alfa heldur flóamarkað og basar að Ingólfsstræti 19,
sunnudaginn 4. desember kl. 14.00. Margt góðra muna — heimabakaðar
kökur og jólamunir. Allur ágóði rennur til styrktar safnaðarheimilinu.
m * i úm s * 9 W » __ TL
rv} 9 i
Jólabasar Sjálfsbjargar
JÓLABASAR Sjálfsbjargar, félags
fatlaðra í Reykjavík og nágrenni,
verður haldinn laugardag og
sunnudag 3. og 4. desember nk. í
Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, 1.
hæð og hefst sala kl. 14.00 báða
dagana.
A basarnum verður margs
konar varningur, til dæmis jóla-
skreytingar og aðrar jólavörur,
útsaumaðir munir, prjónafatn-
aður, púðar og kökur. Jafnframt
verður efnt til happdrættis og
kaffisölu eins og undanfarin ár.
Sólheimar í Grímsnesi
Nú setjum við nýtt met í sjónvarpstilboðum.
Við bjóðum 26"CS-1006 Philips litsjónvarp
með innan við 10% útborgun
og eftirstöðvar má greiða á allt að 8 mánuðum.
Það fæst líka á frábæru staðgreiðsluverði,
aðeins kr. 35.900.-.
Við komum tækinu heim í stofu, stillum það og þið fáið
vetrardagskrá sjónvarpsins eins góða
og mögulegt er.
*
Arleg Sólheimasala
SUNNUDAGINN 4. desember
verður hin árlega Sólheimasala
haldin í Templarahöllinni við Ei-
ríksgötu í Reykjavík og hefst hún
kl. 14.00.
Á Sólheimum í Grímsnesi
dveljast nú um 40 vangefnir ein-
staklingar, sem stunda þar
vinnu eða sækja skóla eftir getu
og hæfileikum hvers og eins. Á
Sólheimum er smíðastofa, vef-
stofa, kertagerð og ylrækt, auk
lítilsháttar búskapar. Við rækt-
un og framleiðslu hefur ávallt
verið leitast við að nota ómeng-
uð og náttúruleg efni og er svo
enn.
Meðal varnings sem til sölu
verður i Templarahölinni eru
tréleikföng, bývaxkerti, ofnir
dúkar og mottur, aðventukrans-
ar, nýtt og súrsað grænmeti og
margt fleira. Tombóla verður
opin og Foreldra- og vinafélag
Sólheima mun halda kökubasar
og sjá um kaffiveitingar.
Allur ágóði af sölunni fer til
byggingar íþrótta- og samkomu-
húss á Sólheimum.
Þetta köllum við
sveigjanleika í samningum.
Heimilistækl hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655