Morgunblaðið - 02.12.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
27
þessu lífi. Það er óbætanlegt tjón
fyrir þjóðina að missa ailt þetta
fólk.
Einn þessara manna var Guð-
mundur Geir Jónsson skipstjóri á
Sandeynni. Snemma beygðist
krókurinn, ungur hóf hann störf á
sjó og menntaðist til þeirra starfa,
þó hann reyndi sig á fleiri sviðum.
Þó ungur væri að árum átti hann
tiltöluiega langa starfsævi að
baki, eða hálfa sína ævi. Allt er
hann tók sér fyrir hendur ein-
kenndist af ríkri ábyrgðartilfinn-
ingu og áhuga, uppskar hann sam-
kvæmt því. Gæfumaður var hann í
einkalífi, giftist ungur Guðrúnu
Eggertsdóttur frá Melum í Mela-
sveit, stendur hún nú ein með þrjú
ung börn, tvo unga drengi og
stúlku á öðru aldursári. Já, í
einkalífi var ábyrgðartilfinningin
söm og í öðru, þannig að til fyrir-
myndar mætti vera. Hann, eins og
fleiri í þessu þjóðfélagi, var búinn
að byggja myndarlegt hús yfir
fjölskylduna. Þó dugnaður sé í því,
fannst mér ég finna að mestu máli
skipti fjölskyldan, og ábyrgðar-
tilfinningu fann ég í viðhorfi
gagnvart brostnum hjónaböndum
og sambærilegum þáttum í mann-
legum samskiptum. Minna væri
um andlegan sársauka, ef allir
ættu slíka tilfinningu.
Nú er aðventan hafin og jóla-
undirbúningur einkennir þjóðfé-
lagið á þessum árstíma. Mörgum
verða jólin erfið, er þau undir-
stfika tómleika auðs sætis. En við
skulum vona, að sá sem gaf okkur
jólin, gefi öllum þeim fjölskyldum
sem um sárt eiga að binda lífsins
ljós og styrk til að komast smám
saman yfir sorgina og söknuðinn.
Því lífið heldur áfram. Það ljós
hefur reynst þjóðinni það besta í
öllum áföllum. Veit ég að fjöl-
skyldu Guðmundar Geirs, eða
Geira eins og hann var kallaður,
er meðvitundin um æðri forsjón í
blóð borin. Guð gefi að henni tak-
ist að leiða þau öll á farsælan hátt
í gegnum sinn mikla missi.
Matthildur Björnsdóttir
Minning:
Guðmundur Baldvins-
son Hamraendum
Hann var jarðsettur þann 29.
f.m. að Kvennabrekku í Miðdölum.
Guðmundur leit dagsins ljós á
heimili foreldra sinna að Hamra-
endum 18. ágúst 1906, en þar voru
Baldvin Baldvinsson gildur bóndi
þar að sögn samtíðarmanna og
kona hans, Halldóra Guðmunds-
dóttir frá Feilsmúla í sömu sveit,
og voru þau hjón Dalamenn í ættir
fram. Þeim varð sjö barna auðið
en af þeim komust aðeins þrjú á
legg, þau Aðalsteinn, Steinunn og
Guðmundur. f fóstri hjá þeim var
Benedikt, bróðursonur Baldvins,
fram á fullorðinsár. Guðmundur
kvæntist eftirlifandi konu sinni,
Gróu Sigvaldadóttur skipstjóra í
Stykkishólmi Valentínssonar og
konu hans, Guðlaugar Sigvalda-
dóttur frá Ólafsey, einni af ótelj-
andi eyjum Breiðafjarðar. Guð-
mundur og Gróa gengu í hjóna-
band 1931 og tóku þá við búsfor-
ráðum á föðurleifðinni og eignuð-
ust fjögur mannvænleg börn, talin
í aldursröð: Halldóra, gift Lúðvík
Þórðarsyni bifreiðastjóra, þau
eiga tvö böm, Gyðu og Guðmund
Steinar. Sigvaldi, giftur Sonju
Símonardóttur, þeirra börn eru
Gróa Svandís, Símon, Jakobína
Björk og Friðrikka Alda. Steinar,
látinn, lét eftir sig eina dóttur,
Steinu sem búsett er í Reykjavík,
Baldvin, trésmiður í Búðardal,
kvæntur Sigríði Björgu dóttur
undirritaðs, þau eiga tvö börn,
Guðmund og Eddu Maríu.
Fyrstu kynni af þeim hjónum
Guðmundi nafna mínum og Gróu
nöfnu konu minnar byrjuðu er
séra Eggert mágur minn var sett-
ur inn í prestsembættið að
Kvennabrekku og tók við búsfor-
ráðum þar þá strax og ákveðinn í
að nýta jörðina. öll útihús voru í
mestu niðurníðslu, engin hlaða og
ekkert fjárhús, svo nú þurfti að
taka til hendi. Einhvern veginn
æxlaðist hluturinn þannig að Guð-
mundur mun hafa séð aumur á
hinum ungu prestshjónum því
hafist var handa. Nauðsynlegustu
viðgerðum lokið, nýtt fjárhús og
hlaða reist af grunni. Guðmundur
var meistarinn hann var smiður
góður á tré og járn, verklaginn og
útsjónarsamur að sögn þeirra sem
gerst þekktu. Ungu presthjónin
voru góðvinir Gróu og Guðmundar
og mátu þau mikils alla tíð og var
það gagnkvæmt. Eftir að Guð-
mundur hætti búskap og Sigvaldi
tók við föðurleifðinni, gafst hon-
um betri tími til að sinna sínum
hugðarefnum. Bar þar hæst tón-
listina, sem hann hafði alið með
sér alla tíð. Hann var mikill
frammámaður í tónlistarlífi Dala-
manna og átti í fórum sínum tölu-
verða lagasmíði með eigin texta og
ýmislegt fleira í bundnu og
óbundnu máli. Hann var heill haf-
sjór í ættfræði og átti mikinn og
góðan bókakost. Guðmundur var
góður afi sem fræddi börnin af
háttvísi og góðum siðum. Hans er
sárt saknað af vinum og samtíðar-
fólki. Gróu og ástvinum öllum
biðjum við, kona mín, ég og fjöl-
skylda okkar syðra, guðs blessun-
ar.
Gudm. Kristjánsson
Lokað
frá hádegi vegna jaröarfarar GUÐMUNDAR GEIRS
JÓNSSONAR, skipstjóra, Nesbala 80.
Hjólbarðaverkstœði Vesturbæjar.
Fisher Hi Fi System 350
er frábært sett, hvort sem litiö er á tæknihliðina eöa útlitiö. Vegna velheppnaörar hönnunar er veröiö mun lægra en menn
búast viö. Hljómtækjasettiö System 350 hefur alla hluti aöskilda, plötuspilara, magnara meö tónjafnara, útvarp, segul-
band en þannig eru tóngæöin frá Fisher tryggð.
MAGNARI:
2x25 sinusvött. 5 banda grafískur
tónjafnari. „Auto-Loudness“
ÚTVARP:
FM-LW-MW. Ljósadíoöur fyrir
fínstillingu á útvarpsstöövum. Ster-
íó/Mónó-skiptlr fyrlr FM-bylgjuna
PLÖTUSPILARI:
Hálfsjálfvirkur, reimdriffnn meö
.Synchronous AC" rafmótor. Beinn
tónarmur meö stillingar fyrir nálar-
þunga og hliöarrásun. Lyfta fyrlr
tónarm.
SEGULBAND:
.Metal", „Chrome" og „Normal"
stillingar. „Dolby Nr." Snertitakkar.
hraöspólun. „Record mute" stilling.
HÁTALARAR:
Frábærir „3way“ hatalarar 75
sinusvött. Pottþóttur hljómur og
vandaöur frágangur.
SKAPUR:
Glæsilegur svartur viöarskápur
meö glerhurö og glerloki. Hilla fyrir
segulbandsspólur og grindur fyrir
hljómplötur
Veröiö
gleöur alla
Aöekns24.950,- stg.
FISHER
WtVkJAVIK SIMI WM
SJÖNVARPSBÚMN