Morgunblaðið - 02.12.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
29
Hótel Loftleiðir:
Danskt jólaborð
verður í Blómasal
SÉRSTOK jóladagskrá verður að Hót-
el Loftleiðum í desember að venju.
Danskt jólaborð verður í Blómasal frá
1. desember og er salurinn skreyttur á
danska vísu. Sérstakur afsláttur er
veittur fyrir hópa. Frá sama tíma verð-
ur einnig hægt að fá jólaglögg og pip-
arkökur í veitingasölum hótelsins.
Aðventukvöld verður sunnudag-
inn 4. desember. Barnakór Mýrar-
húsaskóla syngur undir stjórn Hlín-
ar Torfadóttur, Módelsamtökin sjá
um tískusýningu, kynning verður á
snyrtivörum og Einar örn Einars-
son tenórsöngvari syngur. Þá verður
einnig happdrætti, og skartgripir
frá Kórus prýða víkingaskipið í
Blómasal.
Lúsiukvöld verður 11. desember.
Þá kemur Lúsía frá Söngskólanum i
Reykjavík ásamt fylgdarmeyjum,
barnakór syngur og einnig verður
tískusýning. Kúnígúnd skreytir vík-
ingaskipið. Loks verða jólapakka-
kvöld 17. og 18. desember. Ingveldur
Hjaltested syngur jólalög, tískusýn-
ing verður fyrir alla fjölskylduna,
Barnakór Kársnesskóla syngur og
dregið verður um fjölda vinninga
auk aðalvinnings fyrir öll kvöldin,
sem er flugfar fyrir tvo til Kaup-
mannahafnar. Rammagerðin sér um
skreytingar víkingaskips þessi
kvöld.
Kynnir á öllum kvöldunum verður
Hermann Ragnar Stefánsson, segir
í frétt frá Hótel Loftleiðum, sem
Morgunblaðinu hefur borist.
Vestmannaeyjar:
Bergey fékk á sig brotsjó
Vestmannaeyjum, 30. nóvember.
SKUTTOGARINN Bergey VE fékk á
sig brotsjó f gærkveldi, þar sem skipið
var á veiðum suðvestur af Surtsey.
Gluggi f brú brotnaði og sjór komst í
tæki skipsins. Engin slys urðu á
mönnum.
Bolungarvík:
Fullveldisfagn-
aður á laugardag
Aftakaveður gerði hér sfðdegis í
gær. Rauk veðurhæðin upp f sem
jafngildir 14 vindstigum af suð-
austri. Það var um klukkan 22 f
gærkveldi sem Bergey fékk á sig
hnút sem skall á brú skipsins, braut
glugga og varð talsvert tjón á tækj-
um skipsins þegar sjórinn flæddi um
þau. Skipstjórinn á Bergey, Sigurður
Sigurjónsson, sagði f samtali við
Mbl., að hann hefði aldrei fyrr verið
á sjó f verra veðri en því sem skyndi-
lega skall á í gærkveldi, eins og
hendi væri veifað.
- HKJ
Nú er rétti
tíminn til aö
hyggja aö
jólamálningunni
Nú málum viö með Hörpusilki
}íaK&l
HINN árlegi 1. desemberfagnaður
sjálfstæðisfélaganna f Bolungarvfk
verður haldinn f Félagsheimilinu laug-
ardaginn 3. desember næstkomandi
og hefst klukkan 19.30.
Ræðumaður kvöldsins verður
Geir H. Haarde, formaður Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna, og
aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Flutt verður tónlist og skemmtiat-
riði. Ennfremur verður lesið úr ný-
útkominni bók um dr. Bjarna Bene-
diktsson, fyrrum formann Sjálf-
stæðisflokksins og forsætisráð-
herra.
Að loknu borðhaldi og skemmti-
dagskrá verður stiginn dans.
það var þess virði að gera sér
erindi í verslunina til hans þegar
ég þóttist vita að tími væri til þess
að setjast að búðarbaki. Var þá oft
glatt á hjalla þegar frændi reyndi
að kenna mér að flaka fisk. Dáðist
ég oft að þolinmæði hans þegar ég
eyðilagði hverja ýsuna af annarri,
en þá skemmti hann sér vel. Hefi
ég hvorki fyrr né síðar séð það
verk unnið hraðar né betur en
þegar Júlfus flakaði, enda vand-
virkur og vanur. Júlíus Halldórs-
son var ákaflega hlýr og einlægur
maður og því notalegt að vera í
návist hans. Væri drungi hvers-
dagslífsins svolítið þrúgandi, var
alltaf hægt að lífga upp á sálarlíf-
ið með því að heimækja Júlfus,
sem var f senn glaðvær og hressi-
legur maður. Oft sagði hann mér
spaugilegar sögur frá fyrri árum,
hafði næmt skopskyn og sagði vel
frá. Ekki hafði ég þekkt hann
lengi þegar mér varð ljóst hvern
mann hann hafði að geyma. Hann
var næmur tilfinningamaður og
góðhjartaður í þess orðs rétta
skilningi. Sakna ég því míns góða
frænda. Júlfus mun ekki hafa
gengið heill til skógar hin siðari ár
og finnst mér ekki ósennilegt að
hann hafi haft hugboð um að
hverju fór. Tók hann því með
stakri hugarró. Hann andaðist á
heimili sínu hér í Reykjavík þann
25. þ.m.
Öllum aðstandendum Júlfusar
Halldórssonar sendi ég og fólk
mitt allt innilegar samúðar-
kveðjur um leið og ég kveð góðan
frænda og vin.
Megi hann hvíla í friði.
Jóhannes R. Snorrason
Q /tmefa
HOLLAND
HMFAPOR
18/8 gœðastál og spegilslípað
— með og án 24 karata gullhúð
VERÐSÝNISHORN:
„PRINSESS”
18/8 24 karata
6 manna sett 24 hlutir stól: gullhúð:
— í gjafakassa 6 manna sett 30 hlutir 2.650.- 3.610.-
— í gjafakassa 3.070.- 4.150.-
hnífur, gaffall, skeið (3 stk.) 330.- 470.-
teskeið 70.- 90.-
kðkugaffall 70.- 90.-
desertskeið 105.- 145.-
sósuskeið 232.- 305.-
sallatsett (2 stk.) 325.- 427.-
tertuspaði (með sög) 232.- 305.-
súpuausa — allt í gjafakössum 520.- 695.-
Spyrjiö um munsturheitín:
Btóm — Flétta — Múrsteinn — Venus — Perla
— Rokkokó og nýja munstrið Prinsess.
Kynnið ykkur gæöi og útlit.
GERID VERÐSAMANBURÐ
IÉKK-KKI§T1LL
Laugaveg 15 sími 14320
FULL BÚD AF FALLEGUM GJAFA VÖRUM