Morgunblaðið - 03.12.1983, Síða 1
64 SIÐUR MEÐ IÐUNNARBLAÐI OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
278. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Arafat vill flýja
undir fána Sam-
einuðu þjóðanna
Sameinudu þjódunum, Beirút og New York, 2. desember. AP.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinudu þjóðanna sat í kvöld á lokuðum fundi, þar sem
rædd var sú ósk Yasser Arafats, leiðtoga PLO, að skipin er kynnu að flytja
Palestínumenn frá Trípólí bæru öll fána Sameinuðu þjóðanna. Arafat kom
þessari beiðni á framfæri við Javier Perez de Cuellar, aðalritara SÞ, í
gærkvöldi og það var de Cuellar, sem óskaði eftir lokuðum fundi um málið.
Hussein Jórdaníukonungur lýsti
því yfir í morgun, að hann væri
reiðubúinn til þess að taka upp
þráðinn að nýju í viðræðum við
Yasser Arafat um afstöðu Jórd-
ana og PLO til samningaviðræðna
við ísraela um Vesturbakka Jórd-
anár og Gaza-svæðið. Þá lét Huss-
Nýir kassar
með tölvubún-
aði finnast
Stokkhólmi, 2. desember. AP.
GÁMAMÁLIÐ svonefnda í Sví-
þjóð tók á sig nýja mynd í dag
þegar tollverðir tilkynntu, að
fundist hefðu sex nýir kassar
með háþróuðum bandarískum
tæknibúnaði í vöruskemmu f
Stokkhólmi. Fullvíst þykir að
þessi búnaður hafi átt að fara til
Sovétríkjanna.
Á sama tíma tilkynnti
sænska lögreglan, að mikil leit
stæði yfir að v-þýskum manni,
sem grunaður er um að vera
úsendari Sovétmanna í Svíþjóð.
Er hann talinn vera höfuðpaur-
inn að baki hóps manna, sem
hefur undirbúið smygl þessa
búnaðar til Sovétrikjanna.
Yfirmenn sænsku tollgæsl-
unnar hafa þegar sett kassana í
samband við vörugáma, sem
fundust í skemmum á hafnar-
bakka í Helsingjaborg og
Malmö og höfðu einnig að
geyma háþróaðan tölvubúnað,
sem ætlunin var að smygla til
Sovétríkjanna.
ein jafnframt svo um mælt, að
samkomulag Bandaríkjanna og
ísrael i þessari viku væri
„smánarlegt og sverti ótvírætt
ásjónu Bandaríkjamanna í Mið-
austurlöndum."
Allsherjarverkfall var í vestur-
hluta Beirút í dag og lamaði allt
athafnalíf þar þegar útför Sheikh
Halim Takieddine, æðsta lögspek-
ings drúsa, var gerð. Mikið fjöl-
menni var við útförina. Verkfallið
var boðað til þess að mótmæla
morðinu á Takieddine. Ekki frétt-
ist af neinum hefndarvígum í dag
vegna morðsins í gær þrátt fyrir
yfirlýsingar drúsa um hefndarað-
gerðir.
Símamynd AP.
Eiginkona Sheikh Halim Takieddine kveður mann sinn hinsta sinni, þar sem lík hans liggur á viðhafnarbörum.
Bandaríkjamenn segjast
ekki friðmælast við Rússa
Yfirvöld í Sovétríkjuniim bjóða til blaðamannafundar vegna kjarnorkumála
Washington, Bonn, Moskvu og
Lundúnum, 2. desember. AP.
AÐ SÖGN heimildarmanna AP-
fréttstofunnar í Washington hafa
Bandaríkjamenn ekki í hyggju að
friðmælast við Sovétmenn eftir þá
ákvörðun þeirra að ganga út af
samningafundum stórveldanna í
Genf. Bandaríkjamenn segjast bíða
þess, að Sovétmönnum snúist hugur,
en bæta því við, að ekki stefni í
óefni þótt Sovétmenn haldi fast við
sinn keip.
Hans-Dietrich Genscher, utan-
ríkisráðherra V-Þýskalands, sagði
í dag, að nú væri rétti tíminn fyrir
Vesturlönd til að sýna Sovét-
mönnum, að þau væru í raun
reiðubúin til samninga um meðal-
drægar eldflaugar. Utanríkisráð-
herrar NATO koma saman til
fundar í næstu viku. Vill Genscher
að ráðherrarnir lýsi því yfir í sam-
einingu, að þeir séu tilbúnir til
samkomulags.
Þrír háttsettir sovéskir embætt-
ismenn í Kreml, þar á meðal yfir-
maður alls sovéska heraflans,
hafa boðað til fréttamannafundar
á mánudag. Þykir þetta nokkrum
tíðindum sæta, þar sem frétta-
mannafundir eru ekki daglegt
brauð í Sovétríkjunum.
Á fundinum á mánudag munu
þeir Nikolai V. Ogarkov, mar-
skálkur, yfirmaður alls sovéska
heraflans og fyrsti aðstoðar-
varnarmálaráðherra, Georgei M.
Kornienko, fyrsti aðstoðarutan-
ríkisráðherra, og Leonid M. Zamy-
atin, aðaltalsmaður yfirvalda,
svara spurningum, sem „komið
hafa upp vegna staðsetningar
fyrstu meðaldrægu flauga Banda-
rikjamanna í Vestur-Evrópu" eins
og það hefur verið orðað.
Lambsdorff sviptur þing-
helgi fyrir hálftómum sal
Bonn, 2. desember. AP.
ÞEIR V'ORU fremur þunnskipaðir bekkirnir í þingsal neðri deildar v-þýska
þingsins í morgun þegar gengið var til atkvæða um hvort svipta bæri Otto
Lambsdorff, efnahagsmálaráðherra landsins, þinghelgi svo hægt væri að ákæra
hann vegna gruns um aðild að mútumáli.
Aðeins 50 þingmenn af þeim 498,
sem þar eiga sæti, voru mættir til
fundar í neðri deildinni í morgun.
Allir viðstaddir þingmenn, þar á
meðal Lambsdorff sjálfur, greiddu
atkvæði með tillögunni.
Mál ráðherrans hefur vakið feiki-
lega athygli í V-Þýskalandi að und-
anförnu eftir að saksóknarinn í
Bonn krafðist þess að hann yrði
sviptur þinghelgi svo leggja mætti
fram ákæru á hendur honum. Um
er að ræða greiðslur frá fyrirtæki
að nafni Flick, sem Lambsdorff er
sagður hafa tekið á móti og látið
renna í sjóði frjálsra demókrata
gegn því að fyrirtækið fengi skatta-
ívilnanir.
Alls er talið að ráðherrann hafi
veitt 135.000 mörkum (um 1,4 millj.
ísl. króna) viðtöku í þágu flokks
síns. Sjálfur neitar ráðherrann öll-
um sakargiftum og segist ekkert
hafa brotið af sér. Talið er, að form-
leg ákæra á hendur honum verði lög
fram í næstu viku. Ekki hefur áður
komið til þess í sögu sambandslýð-
veldisins, að ráðherra í embætti
hafi verið ákærður fyrir svo alvar-
legt afbrot.
Slmamynd AP.
Otto Lambsdorff, efnahagsmálaráðherra V-Þýskalands (lengst til hægri)
greiðir atkvæði í þinginu með því að hann verði sviptur þinghelgi.
Jacques Chirac, fyrrum ráð-
herra og nú einn kunnasti stjórn-
málamaður stjórnarandstöðu-
flokkanna í Frakklandi, sagðist í
dag efast um að sú ákvörðun Sov-
étmanna að ganga út af viðræðu-
fundunum í Genf ylli einhverjum
vandkvæðum.
„Þeir snúa aftur. Það tekur þá
kannski nokkrar vikur, e.t.v. mán-
uði, en þeir munu snúa aftur að
samningaborðinu, kannski þó með
breyttu hugarfari. Rússarnir eru
raunsæir. Þeir gera sér það ljóst
að þeir léku af sér vitlausu spili og
hafa tapað. Þeir skilja það full-
komlega, að herbragð þeirra mis-
heppnaðist," sagði Chirac.
Jafntefli
l.undunum. 2. desember. AP.
JAFNTEFLI varð í 6. einvígisskák
þeirra Ribli og Smyslov í gær-
kvöldi. Léku þeir 42 leiki áður en
þeir sættust á jafnteflið. Smyslov
hefur hlotið 3'A vinning, en Ribli
2'A.