Morgunblaðið - 07.12.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.12.1983, Blaðsíða 32
64 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1983 GEFUM GÓDAR fótbofta engilíinn “ tfc c* X . < ti. Ráðviórt^ónáttW \ ;#í> ‘ > / //,' Sigurður A. Magnússon Jakobsglíman Þriðja bindi uppvaxtar- sögunnar sem hófst með metsölubókinni Undir kalstjörnu. Jakobsglíman lýsir þremur átakaárum í lífi drengsins, Jakobs, tilraunum hans til að komast að heiman, mennta sig og ná fótfestu í KFUM. Togstreitu og viðkvæmu skeiði í lífi Reykjavíkur- unglings í umróti stríðsáranna er hér lýst af fágætri stílsnilld. Einar Olgeirsson Jón Guðnason Kraftaverk einnar kynslóðar Þetta er annað bindi endurminninga Einars Olgeirssonar sem Jón Guðnason skráir. Hér er sjónum m.a. beint að verkalýðsbaráttunni og vaknandi vitund verkafólks. Umbrotatím- um í íslensku þjóðlífi og atvinnulífi er hér lýst frá sjónarhóli manns sem stóð í fylkingarbrjósti og skildi samtíð sína dýpri skilningi en flestir aðrir út frá þeirri hugsjón sem hann helgaði líf sitt. Ólafur Jóhann Sigurðsson Drekar og smáfuglar f þessari miklu skáldsögu leiðir höfundur til lykta sagnabálk sinn af Páli Jónssyni blaðamanni sem hófst með Gangvirkinu (1955) og hélt áfram með Seiði og hélogum (1977). Einn örlagaríkasti tími í sögu þjóðarinnar er hér magnaður fram í andstæðum fortíðar og nútíðar, þjóðhollustu og svika. Einar Kárason Þar sem Djöflaeyjan rís Sögusviðið er „Gamla húsið" í braggahverfi í Reykjavík um og eftir 1950, og aðal söguhetjurnar eru strákarnir: Fyrst útsmogin hrekkjusvín, ósigrandi í fótbolta, síðan svalir og brilljantíngreiddirgæjar í támjóum skóm sem eiga Vetrargarðinn. Bráðlifandi frásögn af bragga- og blokkafólki sem þegar hefur fengið geysigóðar viðtökur. Þetta er önnur skáldsaga Einars. Sú fyrri hét Þetta eru asnar, Guðjón. William Heinesen Ráð við illum öndum Mál H og menning Hans-Jorgen Nielsen Fótbolta- engillinn Frands og Franke voru vinir í æsku og léku fótbolta saman fram á unglingsár. Þá skildust leiðir: Frands valdi menntabrautina en Franke varð frægur atvinnumaður í knattspyrnu. Mörgum árum síðar hittust þeir aftur með voveiflegum afleiðingum. .. Spennandi bók fyrir karlmenn, sem konur ættu líka að lesa. Kristján Jóh. Jónsson þýddi. Heinrich Böll og sagði ekki eitt einasta orð Fyrsta skáldsaga Böll sem út kemur á íslensku. Viðfangsefnið er, líkt og í mörgum öðrum bókum skáldsins, mannlíf í örbirgð og uppgjöf í Þýskalandi á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina. En í gegnum fátækt og niðurlægingu brýst mannleg reisn og þrautseigja og þeir sem minna mega sín eiga alla samúð höfundar. Böðvar Guðmundsson þýddi. P.C. Jersild Eftir flóðið Sagan segir frá ungum manni sem berst fyrir lífi sínu í óbyggilegum heimi og lýsir fjörbrotum deyjandi mannkyns. Þetta er ógleymanlegt listaverk um langtíma afleiðingar kjarnorku- styrjaldar og tvímæla- laust ein brýnasta skáldsaga síðari ára í okkar heimshluta. Njörður P. Njarðvík þýddi. Sigurður A. Magnússon Við elda Indlands 2. útgáfa. Hér segir Sigurður frá rúmlega þriggja mánaða ferð sinni um Indland þar sem hann kynnti sér land og þjóð, siði, trúarbrögð, menningu og daglegt líf fólks. Hann bregður upp Ijóslifandi myndum af því sem hann upplifirog leitast við að skilja og greina það sem mætir honum í fjarlægu og framandi landi. Fjöldi Ijósmynda prýðir þessa nýju útgáfu. Ólafur Haukur Símonarson Vík milli vina Þessi nýja skáldsaga Ólafs Hauks segir frá hópi fólks sem haldið hefur saman síðan á árunum blómlegu í kring- um 1968. Hvað er orðið um stóru hugsjónirnar og áætlanirnar? Hvert hefur einstaklingana borið í leit að lífs- hamingju? Sjöunda bókin í ritsafni Heinesen í snilldarþýð- ingu Þorgeirs Þorgeirs- sonar. ( bókinni er stutt skáldsaga, Ijóðrænar endurminningar og smásögur. Sögusviðið er Færeyjar, nema í síðustu sögunni, „Flugum", sem gerist í Suður-Frakklandi. Þorgeir Þorgeirsson endurskapar skáld- skaparheim Heinesen, líkt og í öðrum bókum ritsafnsins, á svo einstakan hátt að engu er líkara en sögurnar séu frumsamdar á íslensku. Jakobína Sigurðardóttir Kvæði Hér er á ferðinni ný útgáfa ijóðabókar Jakobínu sem kom fyrst út árið 1960. Sú bók hefur notið mikilla vinsælda meðal baráttuglaðra karla og kvenna og er fengurinn að þessari nýju útgáfu því meiri að aukið er í hana Ijóðum sem Jakobína hefur ort síðastliðna tvo áratugi. Meðal þeirra eru bæði baráttukvæði og mörg persónuleg Ijóð. Maj Sjöwall og Per Wahlöö Lögreglumorð Níunda bókin í hinum vinsæla flokki Skáld- saga um glæp. í þessari næstsíðustu bók flokksins kemst friðsælt sveitaþorp í fréttirnar þegar kona finnst myrt. Almenningur finnur fljótt sökudólg, en þá er framinn nýr glæpur - lögreglumorð. Ólafur Jónsson þýddi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.