Morgunblaðið - 09.12.1983, Side 1
80 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
283. tbl. 70. árg.
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hörð átök á Persaflóa:
írakar
sökkt
Nicosiu, 8. des. AP.
SEX skipura írana var sökkt og ein
írönsk herþota skotin niður í dag í
mikilli orrustu á norðanverðum
Persaflóa, sem bæði skip og flugvél-
ar tóku þátt í. Skýrði INA, hin opin-
bera fréttastofa íraks frá þessu í dag
en viðurkenndi jafnframt, að ein
herþota frá frak hefði verið eyðilögð.
Var gefíð í skyn, sð flugvélin hefði
hrapað yfír írönsku landi og sagt, að
íranir bæru ábyrgð á öryggi flug-
mannsins.
INA skýrði ekki frá, um hvers
konar skip hefði verið um að ræða,
heldur aðeins, að sézt hefði til
fjölda óvinaskipa á siglingu á
norðausturhluta Persaflóa. „Skip
og herþotur frá írak réðust strax á
óvinaskipin og grönduðu sex
þeirra, sem sáust sökkva brenn-
andi í hafið, en önnur skip írana
segjast hafa
sex skipum
flýðu í ofboði til írönsku hafnar-
borgarinnar Bandar Beilam,"
sagði í tilkynningu herráðs fraka í
Korchnoi frestaði
áttundu skákinni
London, 8. desember, frí Hjálmari Jónssyni
bladamanni Morgunblaósins.
ÁTTUNDA einvígisskák Kasparovs
og Korchnoi, sem átti að hefjast
klukkan fjögur í dag, var frestað að
beiðni Korchnoi. Hvor keppenda um
sig hefur rétt til að fresta skák einu
sinni og hefur Kasparov þegar nýtt
sér sinn rétt til þess. Næsta skák í
einvígjunum hér í London er níunda
skákin í einvígi þeirra Riblis og
Smyslovs, sem þeir tefla á morgun,
föstudag.
dag. Sú borg liggur um 80 km fyrir
norðan helztu olíuútflutningshöfn
írana á Kharg-eyju. Þá sagði
ennfremur ■ í tilkynningunni, að
herþotur íraka, sem flugu á vett-
vang til aðstoðar herskipunum,
hefði mætt herþotum frá Iran og
skotið eina þeirra niður í loftbar-
daga. Hins vegar hefðu öll skip og
herþotur íraka snúið heim heilu
og höldnu nema ein flugvél, sem
hrapað hefði „sökum tæknigalla".
franska herráðið sagði í dag, að
íranskar flugvélar hefðu skotið
niður eina herþotu fraka af gerð-
inni Sukhoy-22, sem smíðuð var í
Sovétríkjunum. Hins vegar var
hvergi minnzt á þær staðhæfingar
fraka, að þeir hefðu sökkt sex
skipum fyrir frönum og skotið
niður eina flugvél þeirra.
Frá NATO-fundinum í Briissel. Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra fslands sést hér ræða við U. Elleman-
Jensen, utanríkisráðherra Danraerkur í aðalstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Briissel við upphaf fundar
utanríkisráðherra bandalagsins þar í gærmorgun.
Einhugur á iundi
NATO í Briissel
Briissel, 8. des. AP.
UTANKÍKISKÁDHEKRAR Atlantshafsbandalagsins ræddu í dag á fundi
sínum í Briissel þá neitun Rússa að halda áfram viðræðum um takmarkanir
á langdrægum kjarnorkueldflaugum (START), en viðræður þessar hafa farið
fram í Genf. Haft var eftir brezkum sendistarfsmanni, að „þetta kæmi ekki
mjög á óvart. Þessi afstaða Rússa nú þarf samt ekki að þýða það, að þessar
viðræður verði ekki teknar upp að nýju“.
Fundur NATO, sem utanríkis-
ráðherrar 16 aðildarríkja banda-
lagsins sitja, fer fram fyrir lukt-
um dyrum, en engin formleg til-
kynning var gefin út um efni fund-
arins í dag. Slík tilkynning verður
hins vegar væntanlega gefin út í
lok fundarins á morgun, föstudag.
Samkomulag mun hafa orðið um
að taka þátt í öryggismálaráð-
stefnu þeirri í Stokkhólmi, sem
hefjast á í næsta mánuði með að-
ild 35 þjóða, þar sem þjóðir Aust-
ur-Evrópu munu einnig eiga full-
trúa.
Mikill einhugur
„Ég tel, að umræður á þessum
fundi hafi verið mjög fróðlegar og
gagnlegar og e.5 mikill einhugur
hafi komið þar fram,“ sagði Geir
Hallgrímsson utanríkisráðherra í
viðtali við Morgunblaðið frá
Brussel í gær, en hann situr
NATO-fundinn fyrir Islands hönd.
Sagði ráðherrann, að fundurinn
hefði verið lokaður að undanskil-
inni setningu hans, en fundinum
lyki á morgun, föstudag, með sam-
eiginlegri yfirlýsingu. Þá sagði
utanríkisráðherra ennfremur, að
engin sérstök mál varðandi ísland
hefðu verið til umræðu á þessum
fundi.
Norðursjór:
Leyfa mínni
fiskveiðar
BríÍMsel, 8. des. AF.
Framkvæmdaráð Efnahags-
bandalags Evrópu (EBE) hefur
ákveðið, að heildarmagn þess
fisks, sem aðildarríkjum banda-
lagsins verði heimilað að veiða í
Norðursjó á næsta ári verði
1.457.960 tonn eða 162.680 tonn-
um minna en á árinu 1982, en þá
voru veiðikvótar aðildarríkjanna
síðast ákveðnir. Skýrði talsmaður
EBE frá þessu í dag. Verður heild-
armagn á þeim þorski, sem veiða
má á næsta ári 439.470 tonn, sem
er 82.870 tonnum minna en í fyrra
og leyfilegar veiðar á markríl eiga
að nema 330.000 tonnum eða
45.000 tonnum minna en í fyrra.
Þá verður ekki heimilað að veiða
nema 163.400 tonn af ýsu, sem er
38.300 tonnum minna en áður.
Þessir veiðikvótar eiga að ná
jafnt til þess hlutar Norðursjáv-
ar, sem tilheyrir landhelgi aðild-
arríkja EBE sem til svonefndra
sameiginlegra hafsvæða, þar
sem ríki utan EBE mega einnig
veiða. Að því er veiðar á síld
snertir, sem er sú fisktegund, er
verið hefur í hvað mestri hættu
á þessu svæði, hefur fram-
kvæmdaráðið til athugunar að
leyfa veiðar á 150.000 tonnum,
sem er 82.000 tonnum meira en
1982._________________________
Norskur rækju-
togari sekkur
Osló, 8. des. AP.
ÓTTAZT er um líf sjö norskra
ra'kjusjómanna, eftir að rækjutog-
aranum „Bellsund" hvolfdi og
hann sökk um 180 sjómílur fyrir
vestan Bjarnarey á þriðjudags-
kvöld. Níu manna áhöfn var á skip-
inu, en tveir þeirra fundust seint á
miðvikudagskvöld og var bjargað
lifandi, cftir að hafa verið 29
klukkustundir á reki. í kvöld var
enn haldið áfram ákafri leit, þar
sem Bellsund sökk og tók fjöldi
skipa og flugvéla þátt í leitinni.
Samkvæmt frásögn þeirra,
sem bjargað var, sökk skipið á
örfáum mínútum. Einum skip-
verja tókst ekki að komast frá
borði og fór hann niður með skip-
inu. Enda þótt öllum hinum tæk-
ist að ná í sérstaka björgunar-
búninga, komust aðeins tveir
þeirra upp í gúmbjörgunarbáta,
sem blésu sig upp sjálfir.
Tilviljun olli því, að mönnun-
um tveimur var bjargað. Enn
hefur ekkert spurzt til hinna sjö,
sem saknað er.