Morgunblaðið - 11.12.1983, Side 1
96 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
285. tbl. 70. árg. SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ávarp Lech Walesa flutt við afhendingu friöarverðlauna Nóbels í gær:
„A þessum degi er hugur-
inn hjá verkamönnunum“
()sló, 10. desember. AP.
„YKKUR er Ijóst hvers vegna ég gat ekki komist til þess að vera
viðstaddur móttöku þessara virtu verðlauna. Á þessum degi mun
hugur minn verða hjá þeim, sem ég hef unnið og þroskast með,
verkamönnunum í Gdansk." Framangreind tilvitnun er úr ræðu Lech
Walesa, sem eiginkona hans, Danuta, flutti fyrir hönd hans í morgun
er hún tók á móti friðarverðlaunum Nóbels í Osió.
í ræðunni sagði Walesa m.a.:
„Ég vona, að orð mín megi leiða
ykkur fyrir sjónir þá ánægju og
von, sem bærist í brjóstum
bræðra minna — hinna mörgu
milljóna vinnandi verkamanna.
Þetta verkafólk hefur fylkt sér
undir fána verkalýðsfélags,
hvers nafn túlkar einhverja
göfugustu von mannkynsins.
Allt þetta fólk, sem og ég sjálf-
ur, er djúpt snortið af þeim
IRA grunaður um
sprengjutil-
ræði í London
Lundúnum, 10. deMember. AP.
SPRENGJA sprakk í dögun, í stöðv-
um konunglegu fallbyssudeildar
breska hersins í Woolwich í suðaust-
urhluta Lundúna. Hafði sprengjan
verið falin nærri svefnskálum fjöl-
margra hermanna. Þrír hermenn
særðust, en ekki alvarlega.
Sprengjan var nógu öflug til að
mölva rúður í nærliggjandi húsum
og þótti vera mesta mildi að um
frekara manntjón var ekki að
ræða. írski lýðveldisherinn ólög-
legi er grunaður um að hafa staðið
á bak við verknaðinn, en hann
hafði þó ekki gengist við því síðast
er fréttist. Hafi IRA staðiö á bak
við sprenginguna, er það fyrsta
tilræði hersins á breska megin-
landinu síðan í júlí á síðasta ári,
er tvær sprengjur drápu 11 manns
og særðu 48 í tveimur lystigörðum
i Lundúnum.
heiðri, sem í útnefningu þess-
ara verðlauna felst.
Ég hugsa hryggur til þeirra,
sem látið hafa líf sitt í barátt-
unni vegna trygglyndis síns við
Samstöðu, og hinna, sem af
sömu sökum sitja á bak við lás
og slá og.eru fórnarlömb kúg-
unar.
Æðsta þrá landa minna teng- !
ist friðarhugsjónum Alfred J
Nóbels, jafnvel í ljósi þess
ofbeldis og þeirrar hörku, sem
viðgengst í heiminum í dag. Við
þráum frið og það er þess vegna
sem við höfum aldrei gripið til
ofbeldis. Við krefjumst réttlæt-
is og höfum alla tíð barist fyrir
því. Leiðin til betri heims ligg-
ur í gegnum heiðarlegar samn-
ingaviðræður, hún finnst ekki
með hatri og blóðsúthelling-
um.“
Danuta Walesa
Kirkjuvígsla
Kirkja Ásprestakalls í Laugarásnum, sem vígð verður í dag.
Sóknarprestur er Árni Bergur Sigurbjörnsson. Ljósm. ói.k Mapi.
„Hefur varpað ljóma á hug-
sjónina um einingu mannkyns“
__ ^
— sagði Egil Arvik formaður norsku Nóbelsverðlaunanefndarinnar, um Lech Walesa
Osló, 10. deneniber. AP.
„LECH Walesa, handhafi friðarverðlauna Nóbels í ár, hefur varpað Ijóma
á hugsjónina um einingu mannkynsins. Jafnframt hefur barátta hans leitt
til þess, að nafn Samstöðu mun glóa í myrkrinu um ókomin ár,“ sagði Egil
Árvik, formaður norsku Nóbelsverðlaunanefndarinnar, í ræðu er friðar-
verðlaun Nóbels voru afhent um hádegisbilið.
Walesa, leiðtogi Samstöðu —
hinnar bönnuðu verkalýðshreyf-
ingar í Póllandi, varð í dag fyrsti
Pólverjinn til þess að hljóta frið-
arverðlaunin Það var kona hans,
Danuta, sem tók á móti verð-
laununum við hátíðlega athöfn í
Aula-salnum i háskólanum í
Osló. Salurinn var fagurlega
skreyttur með rauðum og hvítum
blómum í tilefni dagins. Af ótta
við að honum yrði ekki leyft að
snúa aftur sendi Walesa konu
sína og elsta son, hinn 13 ára
gamla Bogdan, til Oslóar til að
veita verðlaununum viðtöku. Á
sama tíma og verðlaunaafhend-
ingin stóð yfir dvaldi verkalýðs-
leiðtoginn heima og gætti bús og
barna. Hugðist hann hlusta á
beina útvarpssendingu Voice of
America-stöðvarinnar á pólsku
frá athöfninni i Osló. Seinna í
dag ætlaði hann til kirkju.
Við afhendingu verðlaunanna
líkti formaður norsku Nóbels-
verðlaunanefndarinnar, Egil
Arvik, Walesa m.a. við Martin
Luther King og Andrei Sakh-
arov, sem báðir hafa hlotið frið-
arverðlaun Nóbels fyrir baráttu
sina í þágu mannréttinda.
„Mannkynið sameinar okkur og
við deilum oörlögum hvers ann-
ars,“ sagði Arvik.
Hann sagði jafnframt: „Við öl-
um þá von í brjósti, að samkomu-
lag takist á milli pólskra stjórn-
valda og verkafólks áður en langt
um líður. Þar mun þáttur Lech
Waiesa verða nauðsynlegur og
ómetanlegur. Það hefur hins veg-
ar ekki farið framhjá nefndinni
hversu dyggilega pólska kirkjan,
sem á miklum vinsældum að
fagna á meðal þjóðarinnar, hefur
stutt við bak Walesa í baráttu
hans. 1 ljósi þessa eru miklar
vonir bundnar við hlutverk henn-
ar í pólsku þjóðlífi."
Lech Walesa
Alfonsin
tekinn við
Buenos Aires, 10. desember. AP.
RACL Alfonsin sór embættiseið í
Buenos Aires í dag og tók þar með
formlega við embætti forseta Arg-
entínu, fyrsti þjóðhöfðingi landsins
síðan að herforingjar hrifsuöu völdin
árið 1976.
Alfonsin er 56 ára gamali lög-
fræðingur og flokkur hans, Rad-
íkalaflokkurinn, vann athyglis-
verðan kosningasigur á dögunum,
en þá tapaöi Peronistaflokkurinn
fyrstu kosningunum síðan á
fimmta áratugnum. Fulltrúar frá
tugum þjóða hafa drifið að síðustu
dagana og voru viðstaddir athöfn-
ina. Má þar nefna Isabellu Peron,
sem kom úr útlegð á Spáni, svo og
Pierre Mauroy, forsætisráðherra
Frakklands.
Sovétmenn
skáru fjölda
afganskra
barna á háls
WaKhington, 10. desembcr. AP.
HÁTTSETTIR bandarískir emb-
ættismenn hafa sagst hafa fvrir
því árciðanlegar heimildir að
sovéskir hermenn hefðu gerst
sekir um „ótrúleg óhæfuverk" í
Afganistan. Einn þeirra, Howard
Schaffer, aðstoðarmaður utanrík-
isráðherra í málefnum Suður-
Asíu, sagði að tölur yfir myrta
óbreytta borgara væru ekki fyrir
hendi, en vitað væri að Sovét-
mennirnir skáru börn á háls í
húsum í borginni Istalef, ef grun-
ur lék á því að þau væru skyld
frelsisliðum.
Umræddir atburðir áttu sér
stað í október, en þá sótti fjöl-
mennur her Sovétmanna og
afganskra stjórnarhermanna
inn í Istalef til að uppræta
stöðvar frelsisliða, sem reyndu
af öllum mætti að verja borg-
ina ofurliðinu. 500 manns féllu
í átökunum að því að talið er,
kannski fleiri, og 40 prósent
borgarinnar var jafnað við
jörðu. „Við vitum með vissu, að
sovésku hermennirnir skáru
mörg börn á háls og drápu
önnur með byssustingjum,"
sagði Schaffer.