Morgunblaðið - 11.12.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1983
45
Gallerí Heiðarás
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Fyrir kemur að myndlistar-
menn reisi sér hús — hýbýli yfir
fjölskyldu sína og vinnustofur
þar sem listrænar athafnir
þeirra fá útrás. Þeim getur einn-
ig dottið í hug að halda reglu-
legar sýningar eigin verka á
stðanum og skíra þá jafnvel
vinnustofur sínar hljómfögrum
nöfnum.
Fyrir Jón M. Baldvinsson var
ekki langt að sækja í hljómfag-
urt nafn því að hann býr á Heið-
arási 8, þar sem hann heldur
sýningu á 65 málverkum fram til
jóla.
Gerandinn hefur málað alla tíð
síðan 1958 en hóf þó fyrst að
vinna af fullum þunga upp úr
1971. Þessum athöfnum fylgdu
og sýningar, sem nú eru orðnar
fjórtán talsins.
Á sýningunni í Heiðarásnum
er uppistaðan hrein hugarflugs-
verk er listamaðurinn nefnir
gjarnan „fuglar og fantasía" og
hafa yfir sér dulrænan blæ.
Einnig eru á sýningunni eldri
verk og þá aðallega landslag og
er þá yrkisefnið sótt í sígild við-
fangsefni landslagsmálara svo
sem Þingvelli, Grafninginn,
Krísuvík, Hafnarfjarðarhraun
o.s.frv.
Eins og ég hefi áður sagt í
listdómi um sýningu hjá þessum
listamanni þá hugnast mér öllu
meira hugarflugsmyndirnar.
Ástæðan er mjög nærtæk —
nefnilega, að þær eru svo miklu
litrænni auk þess sem að skyn-
rænar kenndir málarans fá þar
eðlilegri útrás. Vil ég hér einkum
vísa til mynda svo sem: „Vor-
söngur" (3), „Fugl í grænum
heimi" (10) og „Frá Kanaríeyj-
um“ (17).
Allar eru þessar myndir gerð-
ar af næmri tilfinningu fyrir
myndefninu ásamt hinu dulræna
í umhverfinu sem á hug lista-
mannsins allan.
Flestar eru myndirnar frekar
litlar og ósjálfrátt saknar maður
þess að listamaðurinn færist
ekki meira í fang, ráðist af meiri
grimmd að viðfangsefnunum.
„Nei, málverkið var ekki fundið
upp til að skreyta íbúðir, það er
vopn til sóknar og varnar gegn
óvininum." (Picasso.)
Hér gilda nefnilega skelegg
átök við myndflötinn og að mál-
arinn skynji jafnan, að hann
stendur mitt í hringiðu lífsins og
að fegurð þess opinberast með
umbrotum og sársauka og það er
einmitt það, sem prýða þarf verk
IBM PC
viðskiptatölva
Tilboö óskast í 1 árs gamla IBM PC tölvu ásamt
fylgibúnaöi. Tölvan hefur 128K RAM minni, 2
splunkuný 320K diskettudrif og orginal IBM PC
lyklaborð. Eftirtaldar skjárútgáfur er hægt aö fá
með vélinni.
A. IBM Graphics skjárstýrispjald m/AMDEK litaskjá.
B. IBM Monochrome skjárstýrispjald m/AMDEK V310 gulum
skjá og enskum stöfum eíngöngu.
C. Texta/Grafískt (645x345 punkta) skjárstýrispjald
m/AMDEK V310 skjá og íslenskum stöfum.
Tölvunni fylgir þessi hugbúnaður:
1. IBM PCDOS 1. 1 stýrikerfi
2. BSG fjárhagsbókhald (íslenskt)
3. BSG skuldunautabókhald (íslenskt)
Meö tölvunni yröi hægt aö kaupa annan hugbúnað
s.s. til framleiðslustýringa, birgöabókíialds og
gagnagrunnvinnslu og er í boöi 10 Megabyte
harður diskur til keyrslu þessa hugbúnaöar.
Kaupanda gefst kostur á viöhaldsþjónustusamn-
ingi:
Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling, stofnun
eöa smáfyrirtæki sem vill eignast IBM PC tölvu.
Vélin er til sýnis næstu daga á söluskrifstofu okkar
aö Laugavegi 168. Sími 27333. Tilboðum þarf að
skila f. 17. desember 1983.
málarans. Þau þurfa að vera
jarðtengd sköpunarverkinu.
Ég hef áður minnst á þrjár af
myndum Jóns M. Baldvinssonar,
en í þeim skynjaði ég mestan
skyldleika við þessar innri lífæð-
ar sköpunarverksins. Mætti
listamaðurinn halda áfram á
þeirri braut og slá stórt um sig
því að hér er hann á réttri leið.
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
ýlukin þjónusta
íaðalbanka
ogíöllumútibúum:
Gialdeyris -
afgreiósla
Viö önnumst nú alla algengustu gjaldeyrisþjónustu: Kaup og sölu á
ferðamannagjaldeyri, sölu námsmannagjaldeyris, stofnun innlendra
gjaldeyrisreikninga og útgáfu VISA greiöslukorta.
Mnaðariiankinn
Reykjavík: Aðalbanki, Lækjargötu 12
Breiðholtsútibú, Drafnarfelli 16-18
Laugarnesútibú, Dalbraut 1
Grensásútibú, Háaleitisbraut 58-60
Réttarholtsútibú, Réttarholtsvegi 3
Garðabær: v/Bæjarbraut
Hafnarfjörður: Strandgötu 1
Selfoss: Austurvegi 38
Akureyri: Geislagötu 14