Morgunblaðið - 13.12.1983, Page 26

Morgunblaðið - 13.12.1983, Page 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983 Samfélag bavíana - eftir Gunnar Finnbogason Fyrir nokkrum árum fór sá þyt- ur um landið að það ætti að breyta sem mestu í fræðslu- og skólamál- um landsins. Hér væri allt orðið gamalt og úr sér gengið og mesta furða að þjóðin héldi þó lífi enn. Og það var byrjað á mesta mein- inu, íslenskri tungu. Mikil skömm var það að menn skyldu ekki fyrir löngu hafa séð að tungan var ómöguleg, alltof mikil málfræði, of erfið nemendum og leiðinleg. Og sömuleiðis stafsetningin. Biddu fyrir þér! Hún er alltof erfið og börnum finnst hún leiðinleg! Og svo er það greinarmerkjasetn- ingin. Hún er of strembin fyrir krakkana. Þeir vilja ekki læra hana. Það er best að hver hafi sína eigin greinarmerkjasetningu, þá þurfa letingjarnir ekki að fyrir- verða sig fyrir litla kunnáttu. Allt þetta hét svo að gera til- raun með nýja kennsluhætti í ís- lensku máli. Tilraun? Það var aldrei nein tilraun gerð. Það var blekking, enda hefur aldrei sést nein úttekt á þessari tilraun, en breytingin hélt innreið sína í ís- lenskukennsluna og framhaldið þekkja best foreldrar, sem fylgjast með námi barna sinna. Nú er komið að öðrum þætti í þessum breytingum á kennsluefni. Nú skal atlögunni beint að Is- landssögunni. Rökin eru þessi: Nám í Islandssögu er of erfitt og of ieiðinlegt. Börn vilja ekki læra íslandssögu. Og í Morgunblaðinu 13. nóv. sl. er grein og viðtal um væntanlegar breytingar á kennslu í íslands- sögu. Aðalbreytingin er sú að nú skal íslandssögukennslan ná yfir 120 ár af 1100 ára tímabili. Þegar svona er í pottinn búið verður að sleppa einhverju — en hverju? Þessu virðist eiga að sleppa meðal annars: kristnitökunni, sögu bisk- upsstólanna, Sturlungaöldinni, þætti Noregskonunga í hruni þjóðveldis okkar, Gamla sáttmála, baráttu íslendinga við útlent vald, siðaskiptunum um 1550, einokun- arversluninni o.s.frv. Hér er mál á ferðinni sem á eft- ir að skipta sköpum fyrir íslenskt þjóðerni. Hér er gerð lævísleg at- laga að rót þjóðernis okkar svo að annað eins hefur ekki þekkst síðan Bjarni Jónsson, skólameistari í Skálholti (um iniðja 18. öld), lagði til að leggja islenska tungu niður en taka dönsku upp í staðinn. Sá ábyrgi aðili sem hér á hlut að máli er menntamálaráðuneytið en sú deild sem fer með þessi mál þar kallast skólarannsóknadeild. I fyrrnefndri Morgunblaðsgrein er viðtal við námsstjórann í sam- félagsfræðum, Erlu Kristjánsdótt- ur. Til þess að mál mitt verði sæmilega skýrt verð ég að draga fram nokkrar tilvitnanir úr viðtal- inu. Fyrirsögn viðtalsins er: „Gömlu námsbækurnar eru hlutdræg túlk- un á íslandssögunni." Þessu mótmæli ég algjörlega, enda er þetta staðhæft án þess að nokkur rökstuðningur fylgi. Og jafnvel þótt um hlutdrægni væri að ræða má þá ekki breyta og leið- rétta þau atriði. En þess skulu menn líka minnast að íslandssaga eftir Jónas Jónsson var einmitt skrifuð á síðustu árunum fyrir endurheimt sjálfstæðis okkar úr höndum Dana. Síðan segir námsstjórinn: „Samfélagsfræði er ætlað að leysa af hólmi námsgreinar eins og átt- hagafræði, íslandssögu, mann- kynssögu, landafræði og félags- fræði. Viðfangsefni hennar tengj- ast einnig mannfræði, sálarfræði, hagfræði, stjórnmálafræði, þjóð- háttafræði og vistfræði." Þegar þessi orð eru lesin hvarfl- ar að mér sú hugsun hvort Há- skólinn sé ekki að verða óþarfur — má ekki leggja hann niður? Og námsstjórinn heldur áfram: „Þess utan er henni ætlað að fræða um umferðarmál, félags- mál, bindindi, kynferðismál, jafn- réttismál, umhverfismál og starfsval." Hér er yfirborðsmennskan á hæsta stigi eða á ég að kalla þetta fölsun? Námsstjórinn segir að leggja eigi niður kennslu í átt- hagafræði en taka upp í staðinn m.a. kennslu í félagsfræði, vist- fræði, umferðarmálum, félags- störfum, bindindi, umhverfismál- um, starfsvali. Ef betur er rýnt í þetta kemur í ljós að átthagafræð- in er fyrst og fremst þessar grein- ar sem nú hafa verið taldar. Einu gleymdi ég næstum því en það er kennsla um kynferðismál í samfélagsfræðitímunum. Það er bara verst ef búið verður að kenna allt um þetta efni í tímum ann- arra námsgreina, t.d. íslensku. Það er nefnilega svo að nýjasta kennslubókin í íslensku, sem út kom á sl. hausti, tekur einmitt kynferðismálin fyrir og það er svo vandlega í efnið farið að þeir sem eru ólæsir geta þó alltaf skilið Gunnar Finnbogason „Hér er mál á ferðinni sem á eftir að skipta sköpum fyrir íslenskt þjóðerni. Hér er gerð lævísleg atlaga að rót þjóðernis okkar svo að annað eins hefur ekki þekkst síðan Bjarni Jónsson skólameistari í Skálholti (um miðja 18. öld) lagði til að leggja íslenska tungu niður en taka dönsku upp í stað- inn.“ eitthvað því að myndir eru í text- anum. Þar má sjá mynd af því sem höfundar kalla reðurlaga ávexti og á annarri blaðsíðu myndar höf- uð karlmanns þriðja brjóst á konu. Nú hætta kennslubækur að vera erfiðar og leiðinlegar! Þá spyr blaðamaður um rök fyrir væntanlegum breytingum á þessu námsefni. Námsstjórinn nefnir fjögur meginatriði, sbr. nefndarálit 1971: „I fyrsta lagi að hefðbundin mörk þessara greina væru miðuð við fræðilegar for- sendur sem börn á grunnskóla- aldri hefðu vart tök á að greina. í öðru lagi yrði námið raunvirkara með þessum hætti og tengdist bet- ur reynslu utan skólans. í þriðja lagi að skipulögð skipuþætting gerði námið hnitmiðaðra og kæmi í veg fyrir óþarfa skörun og endur- tekningu. I fjórða lagi var því haldið fram að ef ná ætti öllum meginmarkmiðum námsins hent- aði samþætting betur því betra væri að koma þar fyrir sjálfstæð- um afmörkuðum viðfangsefnum, en ef skipt væri í sjálfstæðar námsgreinar. Fyrsta atriðið er rugl. Annað atriðið er rugl enda er enginn kominn til að sanna að námið verði raunvirkara. Þriðja atriðið er rugl — eða skilja nemendur hugtakið skipu- lögð skipuþætting og forðast ber óþarfa endurtekningu. Hvað er óþarfa endurtekning á námi? Finnur kennarinn það ekki betur en skólarannsóknadeild? Fjórða atriðið er rugl. Hver skilur þetta?: Betra er að koma fyrir sjálfstæðum afmörkuðum viðfangsefnum en ef skipt væri í sjálfstæðar námsgreinar? Það er ekki glóra í þessu. Svona má halda áfram um þessar hug- myndir í hinni nýju samfélags- fræðikennslu. Til þess að kenna nemendum að þekkja atvinnu- hætti okkar, t.d. við sjávarsíðuna, þá á líka að kenna svo og svo mik- ið um Tansaníu og ínúíta til sam- anburðar. Þetta hlýtur að gera kennsluna skemmtilega og mark- vissa! Á fjórða námsári á m.a. að kenna um „fyrstu samfélög manna, samfélög bavíana til sam- anburðar og þrjú samfélög nátt- úrufólks." Þarna höfum við það. Þótt ná- lega ekkert hafi verið kennt um Island, íbúa þess, sögu, siðu og hætti — þá skulu börnin þekkja samfélag bavíana og þrjú samfé- lög náttúrufólks. Maður getur gubbað þegar mað- ur heyrir svona kjaftæði. Þá komum við að þeirri spurn- ingu blaðamanns þar sem segir að námsefnið í Islandssögu taki yfir 120 ár. Er þetta æskilegt? í svari námsstjórans segir: „Gömlu námsbækurnar hafa mik- ið lesmál og mikinn samþjappað- an fróðleik, en hvað situr eftir í hugum nemenda? Ég held að skilning á sögunni hafi skort, og að gömlu námsbækurnar skili ekki þeim árangri sem til hefur verið ætlast. Til þess nota þær um of hugtök sem börn átta sig ekki á, og hitt er líka mikilvægt í þessu sambandi að þær eru í reynd hlutdræg túlkun ákveðinna ein- staklinga á íslandssögunni. Nú, í samfélagsfræðinni er við það mið- að að nemendur séu í fyrsta sæti, en í hefðbundinni sögukennslu hefur sagan sjálf skipað það sæti.“ Við skulum athuga þetta nánar. 1. Það er gömlu námsbókunum að kenna að ekki situr meira eftir í hugum nemenda. Það er ekki kennurum eða nemendum að kenna? Og hvaðan fær námsstjór- inn þá vissu að eitthvað meira sitji eftir í hugum nemenda þegar lesið er um eskimóa, Tansaníu- menn eða bavíana? Og svo segir líka að börnin skilji ekki bækurnar því að í þeim eru hugtök sem þau átta sig ekki á. Manni verður á að spyrja: Til hvers eru kennararnir? Og svo er klykkt út í lok þessar- ar tilvitnunar með því að segja að nemendur eigi að vera í fyrsta sæti en hefðbundin sögukennsla hafi verið það áður. Hver skilur svona rugl? Á þetta að þýða það að nemendur geti sjálfir ráðið hvað þeir læra og hve mikið þeir læra. Mér er spurn: Þurfum við nokkra skóla? Islendingar hafa kynnst harð- æri, frosti og funa, þolað hýðingar og spjótalög, sjóræningja og af- tökur, en þeir hafa barist og þraukað með ljós feðra sinna að vopni — og sigrað, en nú skal reynt að grafa nálega alla sögu okkar því að börnunum finnst svo leiðinlegt að læra Islandssögu! Mönnum er gjarnt að líta til út- landa og sjá hvað þar er að gerast. Það er hollt ef menn kunna að greina hismið frá kjarnanum. Og ég ætla að biðja góðfúsan lesanda að íhuga eftirfarandi orð (Tíminn, 17. nóv. 1983. Þ.Þ.): „I þessu sambandi er ekki úr vegi að rifja það upp, að undir for- ustu Mitterrands Frakklandsfor- seta er að hefjast víðtæk endur- skoðun á sögukennslu í frönskum skólum. Mikil breyting hefur orðið á henni eftir 1968, þegar ný og róttæk skólalöggjöf tók gildi. Ein róttækasta breytingin náði til sögukennslunnar. Nú skyldi ekki lengur kennt um kónga og ieiðtoga, heldur lífskjör og at- vinnuhætti og annað, sem að þessu laut. Sagan skyldi ekki leng- ur vera sérstök námsgrein, heldur þáttur í eins konar samfélags- fræði, þar sem hún hefur orðið meira og minna hornreka. Eftir að hafa látið rannsaka hvernig þessi mál hafa þróast, virðist Mitterrand hafa vaknað við vondan draum. Hin upprenn- andi kynslóð er að missa áhugann á sögu þjóðarinnar. Kennararnir fá litla kennslu í henni og telja hana leiðindanámsgrein. Svo langt hefur þetta gengið, að fjöldi nemenda, sem lokið hefur barna- skólanámi, veit lítið eða ekkert um frönsku byltinguna. Svo virðist, að Mitterrand hafi meira en lítið hrokkið við. Á ráðu- Harmsaga hunda og manna í Reykjavík - eftir Guðrúnu Jakobsen 1. kapítuli Svo bar til 1978, að ein dóttir mín trúlofaðist, og parið hugðist búa í sveit. Eins og að líkum lætur þarf smalahund við fjárrekstur- inn. Svo einnig óðan veðurdag taka þau að sér gullfallegan fjög- urra vikna hvolp, tík. Það slitnaði uppúr trúlofuninni, og ég, vænt- anleg tengdamamma, sat uppi með hundsbarnið. Tobba varð fimm ára í haust. Ég hef aldrei séð eftir að hafa tek- ið hana að mér. Sjaldan höfum við raskað ró nágrannans. 2. kapítuli Svo ber til fáum árum síðar, að fráskilinn, hjartveikur maður fær leigt í götunni minni. Eftir skiln- aðinn átti þessi fullorðni granni minn ekkert nema hundtík eina. Þegar ég bauð þessari nágranna- tík inn í garðinn minn, pissaði hún í bezta stólinn á heimilinu — af tómri gleði. Eitt kvöld þegar ég er að koma úr vinnu, mæti ég þessum granna minum, er segir mér að búið sé að skjóta Týru. Hann var bifvélavirki í landi meðan hann beið eftir vélstjóraplássi til sjós, og ætlaði að taka hundinn með. Hann var að gera við bíl á vinnu- stað sínum, þegar hundurinn hans flaðraði upp um umferðarlög- regluþjón, sem þegar leiddi hann til aftöku. Fáum dögum síðar fannst granni minn látinn á eldhúskollin- um sínum. Loksins sáust afkomendur þessa manns aðrir en hundurinn. — Það var þegar tekið var burt húsgögn og bíll. 3. kapítuli Við Laufásveg býr labrador- hundur að nafni Kalli. Hann bar út Morgunblaðið um tímabil ásamt eiganda sínum eftir að heiðurshjón við Bjargarstíg minnkuðu við sig útburðinn og bera núna út Þjóðviljann og Tím- ann. Ég tek ofan fyrir þessum hljóðláta hundi og húsbændum hans. 4. kapítuli Við Ingólfsstræti býr kona ásamt dóttur sinni, hundi og gam- alli móður sem hún annast. Trekk í trekk hefur þessi kona fengið stefnu frá yfirvöldunum hér í Reykjavík um að borga hundasektina. Yfirvöldin hafa jafnvel hótað að taka veð í húsinu hennar sem hún gerði mannhellt, eftir að allskonar trantaralýður hafði svínað það út. Enginn hefur kvartað undan hundi þessarar konu. Aftur tek ég ofan fyrir hundi og húsbónda hans. 5. kapítuli Ég botna ekkert í hinu almenna mannúðarleysi gagnvart dýrum hér á landi. Sjálf þarf ég ekki nema skreppa út í búð eftir vinnu. Hundurinn bíður þolinmóður utan dyra meðan ég velti vöngum yfir nýjasta verðinu á hundakexinu — 100 krónur. Aldrei bregst það að blessuð börnin setjist ekki niður hjá Tobbu og klappi henni, meðan eldri konur svipta að sér pilsunum skíthræddar við hunda og hóta að kæra. Er enginn endir á þjónustunni við heimskingja á íslandi? Eftirmáli Hundafundur var haldinn á Hótel Sögu síðastliðinn sunnudag, 20/11. Ég var ekki viðstödd, hef orðið andstyggð á öllum félags- skap. Maðurinn á að standa undir sér sjálfur eins og fuglinn á grein- inni, sem þarf ekki nema einn sól- argeisla og mola í gogginn, til að syngja af slíkri hjartans lyst, að enginn hetjutenór, hve þrælaug- lýstur sem hann er, kemst með hælana þar sem fuglinn hefur tærnar. Hinsvegar las ég tillögur hundaræktarfélagsins. 1. Hundurinn skal skráður hjá borgaryfirvöldum, svo og nafn eig- anda eða ábyrgðarmanns. Sam- mála. 2. Meðal annars — Eiganda skal skylt að sækja námskeið varðandi meðhöndlun dýra. Ósammála. Sá sem hefur æfilanga reynslu að baki í umgengni við dýr á að vera undanþeginn setu á skólabekk líkt og eldri kona og góð móðir, sem einn góðan veðurdag gerist dag- manna. Hvað fjárútlát snertir í 3. og 4. grein, geta þau reynst þungur viðbótarbaggi á þá þjóðfélags- þegna, sem um þessar mundir draga fram lífið sem fyrirvinnur á tíu til fimmtán þúsund krónum á mánuði, og hafa þar af leiðandi ekki einu sinni efni á að tryggja sjálfan sig fyrir áföllum. Og þá er komið að síðustu grein- inni. Hundinn skal ávallt hafa i ól á götum borgarinnar og almenn- ingsgörðum. Vissulega er lífsnauðsyn fyrir hundinn að vera rækilega girtur í allri umferðaróreglunni hérna i borginni. Hinsvegar er ég því ósamþykk að hundur megi ekki spretta úr spori í almenningsgarði eins og allir heilsuræktargarparn- ir, sem virðist vera hið eina lífs- mark sem sjást má á ferli í þess- um Getsemanegörðum Reykjavík- ur. Með þökk fyrir birtinguna. Guðrún Jacobsen er rithöfundur í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.