Morgunblaðið - 17.12.1983, Síða 8

Morgunblaðið - 17.12.1983, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1983 Morgunblaðið/Friðþjófur. Fri afhendingu gjafar útgerðar Kampen í bústað þýzka sendiherrans í gær. Dr. Jörg R. Krieg sendiherra afhendir Haraldi Henrýssyni forseta SVFÍ ávísunina og Hannes Hafstein framkræmdastjóri SVFÍ fylgist meA. Haraldur Henrýsson hjá SVFÍ um gjöf útgerðar Kampens: Framlagið auðveld- ar SVFI að auka öryggi sæfarenda „Þetta framlag er þegið með þökkum og það mun koma í góðar þarfir,“ sagði Haraldur Henrýsson, forseti Slysavarn- afélags íslands, er hann hafði tekið við ávísun úr hendi Dr. Jörg R. Krieg sendiherra Vestur-Þýzkalands, sem var gjöf frá útgerð þýzka flutningaskipsins Kampen, sem fórst á Kötlu- grunni 1. nóvember sl. Gaf útgerðin SVFÍ 10 þúsund vestur- þýzk mörk, sem er jafnvirði röskra eitthundrað þúsund króna. Sendiherra Sambandslýðveldis- ins sagði er hann afhenti forráða- mönnum SVFÍ ávísunina að með þessari gjöf vildi útgerð Kampen sýna þakklæti sitt í verki fyrir þá fórnfýsi og ósérhlifni, sem íslenzk- ir björgunaraðilar auðsýndu við björgun skipverja af Kampen. Sendiherrann sagði jafnframt að það væri þægilegt til þess að vita að þýzkir ferðalangar, sem í auknum mæli legðu leið sina til íslands, gætu átt von á því að verða hjálpað ef í nauðir ræki. Sagði sendiherrann Þjóðverja snortna af vöskum framgangi björgunarmanna, og ættu þeir mikið lof skilið. Haraldur sagði að fjárhæðin kæmi að góðum notum í þeirri við- leitni Slysavarnafélagsins að efla öryggi sæfarenda. Þótt gjöfin væri til SVFÍ kvaðst hann líta á fram- lagið sem þakklætisvott til allra þeirra sem á einhvern hátt áttu aðild að björgun skipverja af Kampen. Sagði Haraldur þar hafa komið við sögu auk björgunar- sveita SVFÍ, bæði sjómenn, loft- skeytamenn, einkum í Eyjum, flugumferðarstjóra í Reykjavík og Vestmannaeyjum og björgunar- menn Varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli. Auk þessa sagði Haraldur að tilkynningaskylda skipa hefði sannað ágæti sitt í sambandi við björgunina, því með henni væri á skjótan hátt hægt að beina nær- stöddum skipum á vettvang. Sagt frá súlu- byggð í Hellisey Á desemberfundi Fuglaverndarfé- lags íslands, fengu fundarmenn að kynnast því hvernig dugandi fugla- skoóari stendur að verki er hann tek- ur sér fyrir hendur verkefni, sem krefst mikillar vinnu og nákvæmni fuglaskoðarans. ■ Það var Þorsteinn Einarsson fyrrum íþróttafulltrúi, einn helsti fuglaskoðari landsins, sem sagði frá því er hann fyrir mörgum ár- um fór út í Hellisey í Vestmanna- eyjum til þess að kynna sér að nokkru lifnaðarhætti hafsúlunnar. í um það bil klukkustundar fyrir- lestri sagði hann frá þessari för sinni í súlubyggðina þar, en hún er ein af 10 súlubyggðum hérlendis. Hafði Þorsteinn komið sér upp byrgi á eynni á þeim stað sem hann hafði gott útsýni yfir súlu- byggðina. Á þeim stað voru alls 60 hraukar — hreiður. Úr byrginu fylgdist Þorsteinn með heimilislíf- inu hjá hafsúlunni f nær 27 klst. óslitið. Hafði hann jafnóðum hald- ið dagbók yfir það sem fyrir augu bar í byggðinni sjálfri og flugi súl- unnar yfir henni. Var frásögn hans í senn lærdómsrík og lifandi og miðlaði hann fundarmönnum miklum fróðleik. Hann gat þess t.d. að fyrir þremur árum hefði hafsúlustofninn í heiminum verið talinn 213.000 pör. — Gat hann þess að stofninn hér á landi væri talinn vera um 22.300 hjón og eru hafsúlubyggðir alls taldar vera 10 sem fyrr segir, og er Eldey að sjálfsögðu þeirra stærst. Myndi súlustofninn í Evrópulöndum vera um 180.000 hjón. Hann sagði frá því að meðan hafsúlan væri ung- fugl væri hún ósvikinn flökkufugl, sem færi frá íslandi jafnvel allt suður til Senegal i Afriku. Hann „Skilaboð til Söndru“ Frumsýning í dag Birna PörOardóttir, JOn Laxdal og fleiri. Kvikmyndatökumaður var Einar Bjarnason og honum til aðstoðar Alex DeVaal, hljóð tók Böðvar Guðmundsson og honum til aðstoðar Martien Coucke, skrifta var Elín Þóra Frið- finnsdóttir og um leikmynd ann- aðist Hákon Oddsson. Karl Sig- tryggsson klippti myndina og Þorsteinn Ulfar Björnsson klippti hljóð. Aðstoðarmaður í Grikklandi var Panos Coutras. Þau Einar, Guðný og Kristín eru öll úr sama skóla, London International Film School, og reyndar fjórir í viðbót þau Martien, Panos, Alex og Þor- steinn. Myndin var tekin að mestu leyti á Islandi, í júní og júlí í sumar, en seinustu tökur fóru fram í Grikklandi. Vinnsla myndarinnar hefur staðið yfir síðan. Kostnaður við hana er um það bil fjórar milljónir og er hún fjármögnuð með styrkjum úr kvikmyndasjóði, lánum, auk þess sem greiðslufrestur er á launum. „Skilaboð til Söndru" er nú fullgerð, komin úr okkar hönd- um. Hún er orðin sjálfstæður einstaklingur og verður nú að bjarga sér sjálf," sögðu þær kvikmyndagerðarkonur Guðný og Kristín í þessu spjalli daginn fyrir frumsýningu. „Okkur hefur enn ekki gefist tími til að hugsa um framhaldið, enda mikið átak að koma þessu í höfn.“ ViA töku myndarinnar: Einar Bjarnason kvikmyndatökumaður og Kristín Pálsdóttir leikstjóri. „SkiIaboA til Söndru“, kvik- mynd gerA eftir samnefndri sögu Jökuls Jakobssonar, verAur frum- sýnd í dag í Háskólabíói. Kvik- myndafélagiA UMBI stendur að gerA myndarinnar en í því eru GuAný Halldórsdóttir, höfundur handrits og framkvæmdastjóri, Kristín Pálsdóttir, leikstjóri mynd- arinnar, RagnheiAur Harvey, sem sá um förAun og búninga, og Árni Þórarinsson, upptökustjóri. „Söguþráðurinn snýst um Jón- as, miðaldra rithöfund," sögðu þær Kristín og Guðný í samtali við Mbl. „Þetta er maður með fastmótað lífsmunstur og verð- mætamat, en sumarið sem hann vinnur að kvikmyndahandriti fyrir ítalskt fyrirtæki hittir hann fólk sem raskar þessu öllu. Konan hans er farin til útlanda í leit að sjálfri sér og hann ræður til sín unga stúlkum, Söndru, til að sjá um ráðskonustörf. Hann RáAskonan Sandra mætir til starfa. xemsi njouega ao pvi ao nun kann ekkert til þeirra verka, en eitthvað verður til þess að hann lætur hana halda áfram samt sem áður.“ Með aðalhlutverk fara Bessi Bjarnason og Ásdís Thoroddsen, í minni hlutverkum eru Elás Mar, Bryndís Schram, Benedikt Árnason, Rósa Ingólfsdóttir, Bubbi Morthens, Andrés Sigur- vinsson, Þorlákur Kristinsson, Landsvirkjun: sagði frá því að sér virtist því þannig varið með súluna að hún þekkir ekki afkvæmi sitt ef svo fer að unginn hrekst frá hreiðrinu. Endar hrakingarsagan venjulega á þann veg að fullorðnu súlurnar drepa þessa unga. Þetta virtist Þorsteini staðreynd þó ótrúlegt muni það þykja. Þá sagði hann frá því aðspurður, að þegar súlan stingi sér eftir æti, færi hún yfir- leitt ekki djúpt niður og myndi í flestum tilfellum aðeins kafa niður svo sem 3Vi m í djúpið. Vitað er að hún getur kafað miklu dýpra. — Og þegar súlan stingur sér, er hún komin á hartnær 100 km hraða síð- asta spölinn áður en hún stingur sér undir yfirborð sjávar. Þá sakar ekki að geta þess, að Þorsteinn vék að því orðum að haf- súlan er af sama stofni og pelikan- inn. Á veturna er að öllu jöfnu einn fræðslufundur í mánuði í Fugla- verndarfélaginu og koma menn jafnan fróðari af þeim, enda góðir fyrirlesarar. til að tryggja hallalausan rekstur þurfi ekki að koma til hækkunar á gjaldskrá til almenningsrafveitna nema til að mæta kostnaðarauka vegna hugsanlegra verðlagshækk- ana umfram forsendur þjóöhags- áætlunar fyrir 1984, að því er Hall- dór Jónatansson, forstjóri Lands- virkjunar, sagði í samtali við blaða- mann Mbl. í gær. Halldór sagði að gjaldskrá fyrirtækisins hefði verið lagfærð á undanförnum árum svo að mið- að við lítið breytt verðlag ætti hún að standa fyrir sínu. „Gjald- skráin er orðin að raungildi svip- uð og hún var fyrir 10—12 árum, þegar allt fór að fara úr böndun- um vegna verðbólgu og verðlags- þróunar," sagði Halldór Jóna- tansson. „Mestu gjaldskrár- hækkanirnar urðu á árunum 1981 og 1982. En það er rétt að láta koma fram, að gjaldskrár- hækkanir umfram byggingavísi- tölu urðu af illri nauðsyn, því um 80% af rekstrarkostnaði er fjármagnskostnaður. Hann er augljóslega mjög háður gengis- þróun enda hafa nær allar fram- kvæmdir verið greiddar með er- lendum lánum.“ Gjaldskrárhækkanir ekki umfram almennt verðlag '84 STJÓRN Landsvirkjunar sam- aráætlun fyrirtækisins fyrir 1984 þykkti á fundi sínum í gær rekstr- og þá niðurstöðu áætlunarinnar, að Hafsúlan af pelikanastofni — já það leynir sér ekki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.