Morgunblaðið - 17.12.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.12.1983, Blaðsíða 37
Frá Póllandi skrifar stúlka, sem líklega er rétt rúmlega tvítug. Meðal áhugamála, sem eru marg- vísleg, eru tungumál, bókmenntir, tónlist. Er að læra bókasafns- fræði: Ewa Kozalska, Kaletnik, ul. Glowna 97, 97-122 Rozyca, Poland. Fjórtán ára japönsk stúlka með mörg áhugamál: Kyoko Kato, 5-6 Kaminakano, Yamatsuna-rho, Okazaki city, Aichi 444-35, Japan. Sextán ára piltur í Ghana með áhuga á íþróttum og frímerkjum: Abudula Isakah, P.O.Box 55, Cape Coast, Ghana. Frá Þýzkalandi skrifar 17 ára stúlka með margvísleg áhugamál: Danja Nuissl, Jágerstrasse 9, D 8047 Karlsfeld, Deutschland. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1983 85 Ú RVAL LJÓSA TILGJAFA ^.. \\ .f-iiikiÞ j/'É 4 Rafkaup Suöurlandsbraut 4 - Sími 81518 sSðSfr* Va*1 jgHD W Þrælaeyjarnar er þriöja bókin í bókaflokki Thorkild Hansen um þrælahald og þrælasölu Dana í Vestur- Indíum, sem hann hlaut Bókmenntaverðlaun Norö- urlandaráös fyrir 1971. Fyrri bækurnar eru Þræla- skipín og Þrælaströndin. Thorkild Hansen hefur hlotiö einróma lof tyrir bækur sínar, m.a. hlotið Hinn gullna lárviöarsveig danskra bókaútgefenda og þriggja ára ríkisstarfslaun fyrir vinnu aö sögu- legum bókmenntaverkum. Verð kr. 796,60. 455 bls. Drottning sakamálasagnanna er hér í sínu besta formi. Agatha Christie hefur skrifaö margar sakamálasögur og allar oröiö met- sölubækur. Auk þess aö skrifa heilar bækur um einn atburö, þá hefur hún skrifaö margar smá- sögur og þar nýtur hún sín best. Frá fyrstu setningu til hinnar síöustu heldur hún les- andanum í spennu. í þessari bók birtast 10 smásögur hver annarri betri. Flestar þeirra hafa veriö kvik- myndaöar og fengu íslendingar smjörþefinn af þessum sögum í nokkrum þáttum i ís- lenska sjónvarpinu sl. vetur. Verð kr. 555,75. Bókin Innflytjendurnir er kom út á síöasta ári sló í gegn hér á landi sem annars staöar. Þar kynntust lesendurnir baráttu ítölsku innflytjendanna, Lavaette-fjölskyldunni og afkomendum þeirra. Ævin- týralegu lifi Dan Lavaette og hruni peningaveldis hans. Astarsambandi hans og kínversku stúlkunnar er varö barnsmóðir hans. Hinni stoltu eiginkonu hans sem komin var af einni ríkustu fjölskyldu San Francisco. Næsta kynslóö innflytjendanna fjallar um dóttur- ina Barböru og hennar líf, sem blandast þeim at- buröum er geröust í upþhafi seinni heimsstyrjaldar- innar, nasistar vaöa yfir Evrópu, japanir ráöast á Pearl Harbour. Barbara er eirðarlaus, aö mörgu lík fööur sínum, í leit aö sjálfri sér fer hún til Evrópu og lendir þar í ástarsambandi sem hefur afdrifaríkar afleiöingar. Þessi bók er ekki síöri en sú fyrri, enda báöar metsölubækur um allan heim. Þær eru skrifaöar fyrir nútímafólk um atburöi er gerðust á afdrifarík- um tímum. Verð kr. 796,60. 480 bls, ÆGISÚTGÁFAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.