Morgunblaðið - 20.12.1983, Side 41

Morgunblaðið - 20.12.1983, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983 Howe vill fram- kvæmdastjóra- stöðu Arsenal Sjá nánar frásögn bls. 28. • Pirmin Zurbriggen fré Svisa er stigahæstur í heimsbikarkeppninni á skíöum. Svisslendingar hafa staöiö sig mjög vel í keppninni aö undanförnu. Heimsbikarkeppnin á skíðum: Zurbriggen stigahæstur Svisslendingurinn Pirmin Zur- briggen er stigahæstur í heims- bikarkeppninni á skíöum meö 97 stig eftir helgina, en þá var keppt í bruni og risastórsvigi í Santa Cristina á Ítalíu. Á sunnudag var keppt í bruni og í gær í risa- stórsviginu. Zurbriggen sigraöi í risastór- sviginu á 1:35,33 min. en annar varö landi hans Martin Hangl. Hangl var númer 50 í rásröðinni, en tími hans var 0,43 sek. lakari en tími Zurbriggen. Þetta var góö helgi á skíöunum fyrir Svisslend- inga þvi Urs Raeber sigraði í brun- inu á sunnudaginn — hans fyrsti sigur í heimsbikarkeppninni. Tími Raeber var 1:56,80 mín. en Kanadamenn voru i tveimur næstu sætum. Todd Brooker var 0,61 sek. á eftir Raeber og Steve Pod- borski var 0,99 sek. á eftir Sviss- lendingnum. Raeber haföi oröiö í fjóröa sæti í síöustu tveimur brunkeppnum, og sagöi fyrir keppnina í Santa Cristina: „Ég er í mjög góöu formi — tilbúinn til að sigra." Þess má geta aö Ingemar Sten- mark og Mahre-tvíburabræðurnir frá Bandaríkjunum tóku ekki þátt í risastórsviginu í gær. Annar í stigakeppninni um heimsbikarinn er Franz Heinzer meö 87 stig og þriöji er Urs Raeber með 58 stig. Nýjung hjá íþróttasíðunni: SÍMATÍMI ÍÞRÓTTASÍÐA Morgunblaðsins bryddar nú uppá þeim nýjung- um að fá þekkta íþróttamenn, þjálfara og íþróttaleíðtoga til þess að svara lesendum blaösins í símatíma. Fyrsti gestur okkar veröur Jóhann Ingi Gunnarsson hand- knattleiksþjálfari. Hann hefur starfaö aö undanförnu í V-Þýska- landi og náö mjög góöum árangri með lið sitt, Kiel, en það er nú komið í átta liöa úrslit í Evrópukeppni meistaraliða, og varð í öðru sæti í deildarkeppninni í fyrra. Jóhann Ingi fylgist grannt með öllum íþróttaviðburðum í V-Þýskalandi þó svo að hand- knattleikurinn sé hans sérgrein. Hann þjálfaöi íslenska landsliðið á sínum tíma og mun svara fyrirspurnum um stöðu íslenska handboltans í dag og aö sjálfsögðu öllum spurningum lesenda. Jóhann verður í simatíma hjá okkur á morgun, miðvikudag, frá kl. 18.00 til kl. 20.00. íþróttafréttamenn AP velja: Lewis og Navratilova íþróttamenn ársins Bandaríski frjálsíþróttamaöur- inn Carl Lewis og bandaríska tennisstúlkan Martina Navratil- ova, sem reyndar er fædd ( Tékkóslóvakíu, voru í gær kjörin íþróttamenn ársins í heiminum af íþróttafréttamönnum Associated Press fréttastofunnar í Evrópu. Lewis hefur veriö ósigrandi í spretthlaupum og langstökki á ár- inu — og vann m.a. til þrennra gullverölauna í fyrstu heimsmeist- arakeppninni í frjálsum íþróttum sem haldin var i Finnlandi í sumar: í 100 metra hlaupi, 4x100 metra hlaupi og langstökki. Navratilova varö sigurvegari í einliöaleik kvenna í Wimbledon- keppninni, Opna bandaríska meistaramótinu og Opna ástralska meistaramótinu, og hefur veriö yf- irburöamanneskja i tennisheim- inum. Edwin Moses, sem ekki hefur tapaö i 400 metra grindahlaupi í þrjú ár, varö í ööru sæti í kjörinu hjá körlunum, þriöji varö brasilíski heimsmeistarinn í Formula 1-kappakstri, Nelson Piquet, fjóröi var Bretinn Daley Thompson, heimsmeistari í tugþraut, og breski hlauparinn Steve Cram varö fimmti. Hann er heims-, Evrópu- og samveldismeistari í 1500 metra hlaupi. Næstir uröu (í réttri röö): Bandariski spretthlauparinn Calvin Smith, landi hans, skíöakappinn Phil Mahre, kínverski heimsmet- hafinn í hástökki, Zhu Jianhua, sovéski fimleikakappinn Dmitri Bilosertschev, og bandarsíski heimsmeistarinn í milliþungavigt hnefaleikanna, Marvin Hagler. Mary Decker, heimsmeistari i 1500 og 800 metra hlaupum, varö önnur af kvenfólkinu. Tékkneska hlaupakonan Jarmila Kratochvil- ova varö þriöja, bandaríska skíöa- stúlkan Tamara McKinney fjóröa og Grete Waitz, norski heims- meistarinn í maraþonhlaupi, fimmta. Marita Kock, austur-þýska spretthlaupastúlkan varö sjötta, Tamara Bykova, hástökkvari frá Sovétrikjunum, sjöunda, Ute Gew- eniger, sundkona frá Austur- Þýskalandi, áttunda, Rosalynn Summers, bandaríski heimsmeist- arinn í listdansi á skautum, níunda og í tíunda sæti varö finnska stúlk- an Tina Lillak, heimsmeistari i spjótkasti. SKÍÐI: Nanna tólfta NANNA Leifsdóttir varð í 12. sæti í svigi kvenna í móti í Osló á fimmtudaginn var. 48 keppendur tóku þátt i mótinu en 16 luku keppni. Nanna varð síöan í 24. sæti í stórsvigskeppni í Geilo á laugardaginn, þar sem 41 þátt- takandi lauk keppni. Þórdís Jónsdóttir, sem keppir fyrir Noreg, varð i 10. sæti í fyrri keppninni og í 22. sæti í þeirri seinni — haföi örlítiö betri tíma en Nanna í bæöi skiptin. Árni Þór Árnason hefur náö bestum árangri drengjanna í landsliðin: hann varö 47. í stórsvigi í Klövsjö i Svíþjóö á 2:15,23 mín. Sigurvegarinn, sem var Svii, fór á 2:04.73 mín. Svíar hafa haft mikla yfirburöi á þeim mótum sem strák- arnir hafa tekiö þátt í. GETRAUNIR: Níu með tólf rétta í 17. leikviku Getrauna komu fram níu seölar meö tólf réttum og var vinningur fyrir hverja röð kr. 52.670.- Með ellefu rétta reyndust vera 149 raöir og vinningur fyrir hverja röö var kr. 1.363,- Nú verður gert hlé á Getraunum fram yfir áramót og veröa næstu getraunaleikir laugardaginn 7. janúar en þá fer fram 3. umferö ensku bikarkeppninnar. FINNLAND: LÍKAMSRÆKT • íþróttir og útilíf eiga vaxandi vinsældum aö fagna meðal almennings. Þá er almenningur farinn aö stunda bæöi líkams- og vaxtarrækt í ríkum mæli. Viö heimsótt- um eina af líkamsræktarstöövunum á höfuöborgar- svæöinu, Æfingastööina viö Engihjalla. Sjá bls. 26—27. Lillak best TIINA LILLAK, eini gullverðlauna- hafi Finna frá heimsmeistaramót- inu í frjálsum íþróttum í Helsinki, var um helgina kjörin íþrótta- maóur ársins þar í landi. Lillak varö heimsmeistari í spjótkasti. Lillak hlaut 3.538 stig, en i ööru sæti varð heimsmeistar- inn í rally-akstri, Hannu Mikkola, meö 2.932 stig. Heimsmeistarinn í glímu, Tapio Sipilae, varö þriöji með 2.798 stig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.